mánudagur, 23. júlí 2007

Alveg að koma að þessu:)

Jæja þá er aldeilis farið að styttast í að ég skelli mér út til Danmerkur í tónlistarlýðháskóla, Den Rytmiske Hojskole...
Fer út föstudaginn 10. ágúst og verð fram að Þorláksmessu og ákvað því að fá mér svona bloggsíðu til að leyfa fólki að fylgjast með.. þoli nefnilega ekki þegar fólk treður sögum inn á sameiginleg blogg af ferðalögum og skólavist erlendis:) leyfa Nöldrinu að vera í friði hehe..
Ég ætla að reyna að vera dugleg að skrifa hér inn en þá ætlast ég líka til þess af ykkur kæru lesendur að þið kvittið fyrir komuna!! Annars nenni ég þessu sko ekki;)
En eins og áður sagði fer ég út á föstudegi, flýg til Kaupmannahafnar þar sem ég kem til með að eyða helginni hjá henni Kristínu minni og Ester, svo byrjar skólinn á sunnudeginum.
HÉRNA getið þið séð hvar skólinn er staðsettur... hann er rétt við lítinn bæ sem heitir Vig (vinstra megin við þar sem stendur Frederiksund).. ekkert rosalega langt frá kóngsins köbenhavn:)

En jæja, höfum þetta ekki lengra í bili, ef þið viljið vita meira um skólann er þetta slóðin á síðuna.. http://www.drh.dk/
-Kærlig hilsen Anna-