Ég er ss flutt út til Danmerkur aftur, í þetta skiptið til höfuðborgarinnar sjálfrar, Kaupmannahafnar, til að læra meiri söngtækni og fleira skemmtilegt í skóla sem heitir Complete Vocal Institute.

Leigi íbúð með Telmu á Ydre Nørrebro eða i norðvestur Kaupmannahöfn, aðalinnflytjandahverfinu (enda innflytjendur sjálfar ekki satt? hehehe...)
Dálítið skemmtileg tilviljun annars fyrir þá sem ekki vissu að í sumar byrjaði strákur að nafni Arnar að vinna á Leiró hjá ma og pa þar sem ég var líka í sumar, og kom í ljós að hann var að fara í sama skóla og ég :) Hann er samt búinn að búa hérna úti í ca. 3 ár með kærastanum sínum honum Haffa, sem er hárgreiðslumaður, sem reddaði Telmu svo einmitt vinnu á Street Cut stofu hérna úti... gasalega sniðugt allt saman! :)
Ég flaug annars út 15. með dívunum sjálfum Arnari og Haffa, en Telma greyið þurfti að bíða viku lengur. Check-innið hjá okkur 3 tók annars c.a. 1 og 1/2 klukkutíma, ekki nema. Haffi byrjaði á að skella sinni tösku upp á, slétt 20 kg takk fyrir og góðan daginn, svona á að gera þetta. En við Arnar hins vegar, 100 kg samtals!!! Þannig að saman vorum við með 120 kg af farangri, geri aðrir betur!!! Náttúrulega ekki alveg í lagi... eftir smá umpökkun og blíðuhót við gelluna í Leifsstöð (lentum auðvitað á aðalfýlupúkanum á svæðinu) þurftum við að borga um 30 þús kall fyrir yfirvigtina og komumst loksins inn í fríhöfn:)
Haffi fussandi og sveiandi yfir okkur Arnari hehehe... góð saman :)

Konan í Check-inninu að reyna að koma öllum farangrinum okkar upp á færibandið
Íbúðin er bara alveg ágæt, mjög stór og fín, smá sparsl á stofuveggjunum reyndar sem er ekkert allt of fagurt, og baðherbergi sem er varla hahaha.... alveg heill fermeter að stærð eða eitthvað, sturtan tengist í vaskinn og svo til að sturta niður í klósettinu þá tosar maður í keðju sem hangir niður úr loftinu... ekta københavnskt haha :)
En við erum í óða önn að koma okkur fyrir, búið að fara 2 ferðir í Ikea og kaupa, í fyrri ferðinni var ég alein að rembast á "tag-selv" lagernum að koma 2 boxdýnum upp á vagninn sem keyrði alltaf í burtu frá mér! Ábyggilega verið frekar fyndið að fylgjast með þeim tilburðum hehe.. Svo þurfti ég að borga 2svar fyrir helv.. heimsendinguna því að ég villtist á leiðinni heim (Anna snillingur) og þeir þóttust hafa hringt í mig og bankað og eitthvað.. eitthvað fóru þau símtöl frá þeim nú fram hjá mér, en svona er þetta víst!

"DESVÆRRE" - uppáhaldsorðið hjá þessum danaelskum, svarið við öllu sem þeir nenna ekki að díla við. En nú er þetta allt að koma, stofan að taka á sig mynd, búið að kaupa eldhúsborð og 4 rauða stóla í skranbúð á Vesterbro og svona... kemur allt bara!
***
Veðrið er búið að vera fínt, allavega hlýrra en á Íslandi :) sem er svosem ekki alltaf jákvætt, eins og þegar maður er íslendingur í ENGU hjólaformi haha... alltaf kófsveitt og sexí þegar ég mæti í skólann, mmm!!! En bíðið bara, ég verð komin í toppform næst þegar þið sjáið mig!!! hehehe...
Ég að hjóla í skólann og nýi kærastinn minn hann Jörgen
Næst ætla ég að fá mér svona hjólMér líst rosa vel á skólann, rosa spennt fyrir þessari tækni sem er verið að kenna og ánægð með kennarana, þau virka rosalega vel á mig :) Við erum annars samtals 22 í skólanum, skipt í 2 hópa og ég er mjög ánægð með hópinn minn, við Arnar erum saman í hóp og hinir krakkarnir rosa hressir. Flestallir alveg geggjaðir söngvarar líka. Þetta er samt rosa nýtt fyrir mér þessi tækni, en ég er spennt að læra meira:)
Annars er ég búin að njóta þess í botn að vera hér, fyrstu helgina var djamm því það var gaypride í bænum, Rikke og Lasse bróðir hennar náttla í góðu stuði og dívurnar mínar... ég get svarið það ég fer að þekkja gay djammið í Kaupmannahöfn mikið betur en gagnkynhneigðu staðina haha.. kannski ég ætti bara að fara að koma út úr skápnum? hehehe:)
***
Svo átti Amalie úr DRH afmæli 18., hittumst nokkur og spjölluðum aðeins, á fimmtudaginn fórum við krakkarnir úr CVI svo út að borða og á Drop inn sem er tónleikastaður, þar sem er live tónlist alla daga vikunnar.. Á föstudaginn kíkti ég á tónleika í Tivoli með Stine og Emilie, á laugardaginn kom svo Telma og við kíktum í innflutningspartý hjá Fie sem var með mér í DRH... tónleikar annað kvöld með Lars úr DRH-hljómsveitinni minni og bandinu hans og Intro-fest í skólanum á föstudag... sko alveg nóg að gerast :)
Og best finnst mér hvað Köben er skemmtilega heimilisleg, þó að þetta sé stórborg miðað við Reykjavík. Ég er búin að lenda í því núna 4-5 sinnum á þessum tæpu 2 vikum að rekast á einhvern sem ég þekki hér á röltinu bara, og þá er ég ekki að tala um íslendinga í shopping spree á strikinu, finnst það nú kannski ekkert stórmerkilegt haha...
T.d. þegar ég fór og sótti Telmu út á Kastrup, settist á Starbucks með latteið mitt meðan ég beið... heyrði ég einhvern kalla á mig, þá voru það foreldrar Rikke, systir hennar og mágur, voru að fá sér einn kaffibolla áður en þau færu til Thailands í frí hehe.. mætti halda að maður væri á Íslandi ennþá bara...
Gaman að þessu:)
***
Ég get því miður ekki sett inn neinar myndir núna, myndavélasnúran mín er víst í kassa sem var sendur aftur til Íslands af einhverjum undarlegum ástæðum - desværre!! Fáum dótið okkar vonandi sem fyrst samt...
Reyni að vera dugleg að láta heyra í mér svo..
Bið að heilsa heim
Anna