mánudagur, 27. ágúst 2007

Titill

Hola todos..
Anna hin danska er mætt til leiks á mánudagskvöldi eftir frekar strembna helgi. Margt búið að gerast síðan ég skrifaði hér inn síðast.. Á föstudaginn bauð hús númer 2 í Togafest, og mér til mikillar undrunar sem íslendingi mættu ALLIR - og þá meina ég allir í búning, með lak vafið um sig hehe.. Mér fannst þetta mjög svo merkilegt því að þegar íslendingar eru með þemapartý er oftast ekki nema um 25%, ef það er þá svo há prósenta, af fólkinu sem mætir í búning. En þetta var mjög gaman og við enduðum inni í "hyggehuset", húsinu okkar, þar sem ég gerði grillaði samlokur ofan í gesti og gangandi.
Mjög skemmtilegt allt saman!


Eftir um 3 tíma svefn var svo ræs end sjæn til að missa ekki af rútu sem átti að flytja okkur í ferjuna til Aarhus, þar sem ég er búin að vera um helgina ásamt 24 öðrum úr skólanum að undirbúa tónleikasvæði fyrir næstu helgi. The Police, Sting og co. eru nefnilega með comeback tónleika næsta laugardag á Vestereng í Aarhus, svæði sem rúmar um 55 þúsund manns og það vantaði sárlega mannskap til að gera allt klárt. Þetta hljómaði allt mjög spennandi, skólastjórinn lét þetta hljóma eins og þetta væri smá vinna á laugardeginum, ekkert rosa mikið og við myndum fá vel borgað fyrir. En annað kom á daginn, og þreytta togaklædda liðið frá Den Rytmiske Hojskole endaði á að vera úti að vinna í 9-10 tíma á laugardeginum og 8 tíma á sunnudeginum í alls konar veðri, meðal annars við að girða allt svæðið af, ekkert smá svæði, bolta saman risastór járnskilti, setja upp pall fyrir fatlaða tónleikagesti, setja upp söluborð í tjöldum, ljós og rafmagn inn í tjöldin, setja upp innganginn og fleira og fleira skemmtilegt. Um kvöldið var upphaflega planið að kíkja eitthvað í miðbæ aarhus, en orkan var bara ekki svo mikil, en við sátum samt eitthvað frameftir með að drekka bjór og svona, bara róleg og góð stemning.. En á sunnudeginum var svo ræs klukkan hálf SJÖ..
" God morgen, klokken er half syv og vi skal staa op nu".
Yndislegt ik?



Fólkið sem við vorum að hjálpa var líka eitt það stærsta samansafn af furðulegu fólki sem ég hef á ævinni séð, öll eitthvað alveg hrikalega spes og ekki alveg eins og fólk er flest. Þau tilkynntu okkur það eftir vinnu á laugardagskvöldinu að þau færu alltaf saman NAKIN í bað, það væri svo gasalega gaman að vera öll allsber saman að drekka bjór og vildu ólm fá okkur með. Við afþökkuðum pent, sem varð til þess að enginn fór í sturtu um helgina! Geiri, einn af íslendingunum lenti í frekar skrýtinni aðstöðu þarna þegar hann fór á klósettið inni í klefanum þar sem þau voru, hann labbaði þarna inn og sá að þar sátu fullt af nöktum karlmönnum að drekka bjór, og allt í góðu, það er svo sem ekkert sem maður sér ekki í sundlaugum á Íslandi. En þegar hann kom út aftur þá stóðu 2 af stelpunum sem voru að vinna þarna, báðar frekar ómyndarlegar greyin, beint fyrir framan klósetthurðina á Evuklæðunum og biðu eftir að hann kæmi út og sæi þær, þetta var allt planað og þeim fannst þær ekkert smá fyndnar.
Frekar spes lið já.


Launin fyrir vinnuna áttu að vera annars vegar miði á tónleikana, sem er fínt, eða gjöf að verðmæti 1000 DKK. Í gærkvöldi kom svo í ljós, eftir að við höfðum unnið miklu meira en við áttum von á, að þeir sem kæmust á tónleikana fengju miða á dýrasta svæðið, inner circle, sem er náttúrulega ekkert smá gott, miði sem kostar 895 danskar krónur. En þeirsem komast hins vegar ekki á tónleikana, fengu að velja á milli þess að fá The Police PEYSU, eða þá að gefa skólanum sem við erum í 1000 danskar krónur!
Frekar skítt svo ekki sé meira sagt, og fólk skiljanlega frekar vonsvikið eftir helgina! C'est la vie..
En ég er ss að fara til Aarhus aftur næstu helgi, verður örugglega mjög gaman á þessum tónleikum og svo kannski kíkt eitthvað á næsturlífið í borginni sem er kölluð "verdens storste landsby":) Það varð eitthvað lítið úr því vegna þreytu um liðna helgi nefnilega.. Svo er ég líklegast á leiðinni til Köben helgina þar á eftir þar sem að Harpa a.k.a. Sharp er að flytja út til Sigga síns.. hlakka mikið til að hitta hana - og kannski jafnvel kíkja í nokkrar fatabúðir líka:)


Annars er bara allt fínt að frétta, skólinn er kominn á fullt skrið og ég fékk eiginlega öll þau valfög sem ég bað um, píanó, gítar og svo reyndar afródans en ekki jóga, en það er fínt líka. Þessi tími er blanda af afródansi og afrótrommum, og sá sem kennir þetta er sjálfur nemandi í skólanum, Ebenezer heitir hann og er frá Ghana í Afríku, svo að þetta er alvöru!;)
Mjög notaleg tilfinning líka eftir þessa helgi að það var gott að koma "heim". Þetta er bara orðið virkilega notalegt að vera hérna og maður farinn að líta á þetta sem heimilið sitt. Virkelig hyggeligt:)
Okkar hús er líka besta húsið, búið að setja rauð áklæði á sófana í stofunni, seríur og kertaljós, alltaf þægileg tónlist á fóninum, þetta er sko húsið sem fólk kemur inn í til að hafa það rólegt og "hygge sig". Mjög kósí!



En jæja, ég nenni ekki meir, ætla að fara að koma mér í háttinn..
Veriði nú dugleg að kommenta þið þarna svo ég viti að þið eruð að fylgjast með mér!
Hilsen í bili.. Anna

þriðjudagur, 21. ágúst 2007

Billeder!

KOMNAR INN MYNDIR
________________


















föstudagur, 17. ágúst 2007

Langaði bara að segja ykkur að..

...það er ÆÐISLEGT hérna! Vá hvað ég sé ekki eftir að hafa komið hingað út..


Hér eru samankomnar allar helstu steríótýpur sem maður finnur bara til að spila tónlist og þvílík stemning, búið að vera geggjað veður og af því að þetta er bara intro vikan þá er rosalega mikill frítími.. Þá situr maður bara við borðin fyrir utan húsin að spjalla eða inni á caféinu og það er alltaf einhver með gítar, eða að syngja eða tónlist í gangi.. Nú svo er fótboltavöllur hérna, körfuboltavöllur, maður getur farið í tennis eða blak eða borðtennis og rúsínan í pylsuendanum er svo boccia völlurinn:) já hér er sko allt sem maður þarf á að halda.. Á kvöldin eru svo alltaf einhverjir uppi í stóra sal eða æfingaherbergjunum með rafmagnsgítara, bassa, trommur, hljómborð, det hele bara að spila og syngja og hafa gaman... Ekkert smá klárir krakkar, enda mikill áhugi sem kemur mönnum ansi langt:)


Við erum búin að skila inn blaði fyrir valfög sem við vildum taka, ég valdi t.d. Tekst og musikværksted, gítartíma, píanótíma og fleira skemmtilegt... svo skráði ég mig líka í TriYoga... gæti verið spennandi;) Við fáum samt ekki að vita fyrr en á sunnudag hvort við fengum allt sem við völdum, þá fáum við stundaskrána okkar. .



En það er búið að skipta hópnum upp í nokkur "sammenspilshold", þ.e. grúppur sem koma til með að spila saman í vetur og fara í tónleikaferðalag saman.. Við á sönglínunni fórum í smá viðtal til kennaranna, sungum eitt lag og sögðum þeim aðeins frá okkur sjálfum og hvernig tónlist okkur langaði mest til að spila.. Mér líst rosa vel á hópinn minn, við komum líklegast til með að spila alternative rock/pop í bland við indie pop/rock... frekar opið samt allt saman, er mjög spennt fyrir að byrja! Svo eru hinir hóparnir mjög misjafnir, m.a. eitt metalband, tvö jazz bönd og eitt funk/soul..


Danskan er öll að koma til, er farin að skilja bara langflest og með aðeins minni hausverk á kvöldin þegar ég fer að sofa.. Það hefur samt ábyggilega aldrei verið sagt jafn oft við mig "hvad siger du?" eða " en gang til" eins og í þessari viku, en það er bara fyndið:) kemur allt saman hehe..

En ég er búin að læra það að það er eitt orð sem er alveg nauðsynlegt að kunna þegar maður er í Danmörku og það er FEDT. FEDT kemur í staðinn fyrir kúl, töff, æðislegt, geggjað, frábært, og oftar en ekki er áhersla lögð á það með því að segja t.d. MEGAfedt, SUPERfedt eða rigtig fedt haha.. Svo er ég búin að betrumbæta þetta aðeins hjá þeim og kenna þeim að nota ógeðslega sem áherslu eins og við gerum á Íslandi.. "Ulækker fedt" eða "ulækker godt" hahaha... þeim fannst það frekar skondið;)




Mér finnst samt alveg magnað að Danir skuli ekki eiga nema eitt og sama orðið yfir fyndið og svo skemmtilegt.. það er bara allt sjovt.. frekar fátæklegur orðaforði eitthvað;)



En ætli það sé ekki best að fara að koma sér í háttinn svo maður verði ferskur á festinu annað kvöld, klukkan orðin aðeins of margt:) en ég hlakka ekkert smá til, verður bara gaman..
Hvert hús á svo að koma með skemmtiatriði, erum búin að fá nótur að einhverjum gömlum, dönskum eurovision lögum sem við eigum að koma fram með.. MEGAFEDT;) hehe



Enda þetta á mynd af okkur íslendingunum við innritunina á sunnudaginn, eins og álfar út úr hól búin að dröslast með allan farangurinn milli lesta og strætóa:)






Geiri, Palli, Heisi og svo glittir í mig þarna fyrir aftan.. vantar bara Helga og Árna;) Ret fede mennesker ik?


Vi ses!
__________________________
Hahaha eitthvað misskildi útlendingurinn ég verkefnið:) það verður ss lítil "Melodie Grand Prix" (forkeppni júróvisjón í Danmörku) á festinu í kvöld og hvert hús átti að semja lag til að flytja... sem við erum búin að vera að vinna að í allan dag og það er sko megafedt, það get ég sagt ykkur! Þar sem við erum í húsi númer SEX þá var auðvitað nauðsynlegt að hafa smá neðanbeltishúmor í þessu..
Skelli hérna textanum inn fyrir ykkur til að njóta, verðið bara að ímynda ykkur hvað þetta er flott laglína... spurning samt hvort að þið skiljið textann;)

House of Nymfos
Nu står vi her
Så godt ud vi ser
Vi er fra hus seks
og vi er mega læks
Stemningen er i top
kan ikke få nok
Drengene smider det hele
og nu skal pigerne dele
Viðlag:
Vi bli'r kaldt nymfomaner
vi elsker krøllede lagner
Når vi ser vores snit
bruger vi sengene tit ah ah ah
Nu ved i hvem vi er
I har meget at lær'
Det er vores stil
både i seng og i bil
Vi bli'r kaldt nymfomaner
vi elsker krøllede lagner
Når vi ser vores snit
bruger vi sengene tit ah ah ah...
Enginn vafi á að við eigum eftir að rústa þessu!;)

mánudagur, 13. ágúst 2007

Blog nummer to

Hej allesammen:)
Er ekki kominn tími á nýja færslu, svei mér þá ég held það bara..
Ég er komin út og byrjuð í skólanum, það hafðist á endanum að dröslast með allan farangurinn í 3 strætóa og lest, mjög gaman allt saman í steikjandi hita og raka í Kaupmannahöfn:) Það er reyndar líka búið að vera rosa gott veður hér, sól og hiti, en sem betur fer ekki svona rakt eins og þar! Tók því varla að fara í sturtu þar, varð bara strax sveitt aftur hehe..
_____________________________
En skólinn er alveg lengst úti í sveit hérna á Sjálandi, er samt hálfpartinn inni í Jyderup sem er sveitaþyrping ekki ósvipuð Rauðalæk fyrir þá sem vita hvar hann er.. en hér er skógur allt í kring, fullt af trjám og bara voða gott að vera:) Reyndar allt morandi í köngulóm, maurum, sniglum, geitungum og einhverjum mjög undarlegum flugum sem ég myndi kalla drekaflugur, en heita víst "guldsmid".. ég er búin að ákveða að þær séu stórhættulegar og ætla ekkert að vera að koma of nálægt þeim:)
Svo er líka allt úti í pínkulitlum froskum sem hoppa út um allt, þeir eru voða dúllulegir..

_____________________________

En nóg af blaðri um náttúruna og dýralífið hérna, mér líst alveg ofsalega vel á allt hérna.. Ég hellti mér bara strax út í dönskuna á full swing og hef eiginlega ekkert talað ensku neitt... nema bara svona í ýtrustu neyð, og ég verð að segja að ég kom sjálfri mér nú bara nokkuð mikið á óvart í kunnáttunni! Einn strákurinn í gær var reyndar alveg viss um að ég væri norsk, hreimurinn eitthvað að klikka;) en það kemur nú allt með kalda vatninu, þarf bara að skella kartöflu í kokið á mér og þá kemur þetta hehe..
Skólinn er í nokkrum byggingum, sjálft skólastarfið fer fram í stærsta húsinu, þar er líka hálfgert kaffihús á neðstu hæðinni, svo er mötuneytið í einu húsi og svo búum við í 7 húsum, ca 10-12 manns í hverju.
Við erum 6 íslendingar hérna, 5 strákar og svo ÉG hehe.. svo er reyndar líka einn strákur hérna sem á íslenska mömmu en danskan pabba og hefur alltaf búið í Danmörku, en talar samt íslensku líka.
Ég er með danskri stelpu í herbergi sem heitir Rikke, ekta nafn til að æfa danska R-ið á:) hún er rosa hress og skemmtileg, líst bara mjög vel á hana.. við erum líka komnar í skokkhóp, fórum um 9-10 krakkar út að hlaupa í morgun svaka dugleg alveg! En það er rosa skemmtilegt stemning hérna og allir greinilega komnir hingað til að skemmta sér og lære flere mennesker at kende

_____________________________

Í gærkvöldi var bara kynning á skólanum og smá hópefli, fórum í einhverja leiki til að æfa nöfnin og svona, frekar fyndið að heyra þau reyna að bera fram nöfnin á strákunum, Geirharður, Heiðar og Páll eru allt frekar erfið nöfn fyrir danina.. svo er auðvitað Anna Hansen afskaplega flókið fyrir þau líka, alíslenskt auðvitað hehe.. en ætli það sé ekki álíka fyndið fyrir þau að heyra okkur reyna!
Svo er fyrsta vikan bara svokölluð "intro-uge", bara verið að kynna fyrir okkur hvað við erum að fara að gera og hvað við getum valið okkur sem aukafög.. í dag var okkur m.a. skipt í hópa, og í hverjum hóp voru allar gerðir af hljóðfærum, gítarar, bassi, trommur, hljómborð og svo söngvarar. Hópunum var svo plantað í nokkur herbergi þar sem kennararnir skiptust á að koma til okkar og kenna okkur, en í flestum tímunum var þetta bara "spuni", áttum bara að byrja að spila og syngja og búa til lög, mjög gaman:) Jam sessions..
Svo er það bara "intro-FEST" á föstudaginn, þá verður nú eitthvað skrallað!

_____________________________

En þetta er orðið nógu langt í bili tror jeg, bið að heilsa heim í heiðardalinn
Hej hej
Anna hin danska