föstudagur, 17. ágúst 2007

Langaði bara að segja ykkur að..

...það er ÆÐISLEGT hérna! Vá hvað ég sé ekki eftir að hafa komið hingað út..


Hér eru samankomnar allar helstu steríótýpur sem maður finnur bara til að spila tónlist og þvílík stemning, búið að vera geggjað veður og af því að þetta er bara intro vikan þá er rosalega mikill frítími.. Þá situr maður bara við borðin fyrir utan húsin að spjalla eða inni á caféinu og það er alltaf einhver með gítar, eða að syngja eða tónlist í gangi.. Nú svo er fótboltavöllur hérna, körfuboltavöllur, maður getur farið í tennis eða blak eða borðtennis og rúsínan í pylsuendanum er svo boccia völlurinn:) já hér er sko allt sem maður þarf á að halda.. Á kvöldin eru svo alltaf einhverjir uppi í stóra sal eða æfingaherbergjunum með rafmagnsgítara, bassa, trommur, hljómborð, det hele bara að spila og syngja og hafa gaman... Ekkert smá klárir krakkar, enda mikill áhugi sem kemur mönnum ansi langt:)


Við erum búin að skila inn blaði fyrir valfög sem við vildum taka, ég valdi t.d. Tekst og musikværksted, gítartíma, píanótíma og fleira skemmtilegt... svo skráði ég mig líka í TriYoga... gæti verið spennandi;) Við fáum samt ekki að vita fyrr en á sunnudag hvort við fengum allt sem við völdum, þá fáum við stundaskrána okkar. .



En það er búið að skipta hópnum upp í nokkur "sammenspilshold", þ.e. grúppur sem koma til með að spila saman í vetur og fara í tónleikaferðalag saman.. Við á sönglínunni fórum í smá viðtal til kennaranna, sungum eitt lag og sögðum þeim aðeins frá okkur sjálfum og hvernig tónlist okkur langaði mest til að spila.. Mér líst rosa vel á hópinn minn, við komum líklegast til með að spila alternative rock/pop í bland við indie pop/rock... frekar opið samt allt saman, er mjög spennt fyrir að byrja! Svo eru hinir hóparnir mjög misjafnir, m.a. eitt metalband, tvö jazz bönd og eitt funk/soul..


Danskan er öll að koma til, er farin að skilja bara langflest og með aðeins minni hausverk á kvöldin þegar ég fer að sofa.. Það hefur samt ábyggilega aldrei verið sagt jafn oft við mig "hvad siger du?" eða " en gang til" eins og í þessari viku, en það er bara fyndið:) kemur allt saman hehe..

En ég er búin að læra það að það er eitt orð sem er alveg nauðsynlegt að kunna þegar maður er í Danmörku og það er FEDT. FEDT kemur í staðinn fyrir kúl, töff, æðislegt, geggjað, frábært, og oftar en ekki er áhersla lögð á það með því að segja t.d. MEGAfedt, SUPERfedt eða rigtig fedt haha.. Svo er ég búin að betrumbæta þetta aðeins hjá þeim og kenna þeim að nota ógeðslega sem áherslu eins og við gerum á Íslandi.. "Ulækker fedt" eða "ulækker godt" hahaha... þeim fannst það frekar skondið;)




Mér finnst samt alveg magnað að Danir skuli ekki eiga nema eitt og sama orðið yfir fyndið og svo skemmtilegt.. það er bara allt sjovt.. frekar fátæklegur orðaforði eitthvað;)



En ætli það sé ekki best að fara að koma sér í háttinn svo maður verði ferskur á festinu annað kvöld, klukkan orðin aðeins of margt:) en ég hlakka ekkert smá til, verður bara gaman..
Hvert hús á svo að koma með skemmtiatriði, erum búin að fá nótur að einhverjum gömlum, dönskum eurovision lögum sem við eigum að koma fram með.. MEGAFEDT;) hehe



Enda þetta á mynd af okkur íslendingunum við innritunina á sunnudaginn, eins og álfar út úr hól búin að dröslast með allan farangurinn milli lesta og strætóa:)






Geiri, Palli, Heisi og svo glittir í mig þarna fyrir aftan.. vantar bara Helga og Árna;) Ret fede mennesker ik?


Vi ses!
__________________________
Hahaha eitthvað misskildi útlendingurinn ég verkefnið:) það verður ss lítil "Melodie Grand Prix" (forkeppni júróvisjón í Danmörku) á festinu í kvöld og hvert hús átti að semja lag til að flytja... sem við erum búin að vera að vinna að í allan dag og það er sko megafedt, það get ég sagt ykkur! Þar sem við erum í húsi númer SEX þá var auðvitað nauðsynlegt að hafa smá neðanbeltishúmor í þessu..
Skelli hérna textanum inn fyrir ykkur til að njóta, verðið bara að ímynda ykkur hvað þetta er flott laglína... spurning samt hvort að þið skiljið textann;)

House of Nymfos
Nu står vi her
Så godt ud vi ser
Vi er fra hus seks
og vi er mega læks
Stemningen er i top
kan ikke få nok
Drengene smider det hele
og nu skal pigerne dele
Viðlag:
Vi bli'r kaldt nymfomaner
vi elsker krøllede lagner
Når vi ser vores snit
bruger vi sengene tit ah ah ah
Nu ved i hvem vi er
I har meget at lær'
Det er vores stil
både i seng og i bil
Vi bli'r kaldt nymfomaner
vi elsker krøllede lagner
Når vi ser vores snit
bruger vi sengene tit ah ah ah...
Enginn vafi á að við eigum eftir að rústa þessu!;)

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jú.. i er rigtigt fede og ser fede ud ;)

æj veistu ég er með í maganum því ég veit hvað þú hefur það æðislegt þarna, fæ nostalgíu og langar bara aftur út! ég held ég prófi næst e-ð sem er ekki íþróttaskóli.. hmm.. spurning að maður fari bara að æfa sig á bassann!! hahhahahaha

stórt knús til dk mí love

Nafnlaus sagði...

hehe fínasta orð? En sjáumst ! Ja, sko græjurnar eru komnar innímitt herb.en vantar fjarstýringuna.. ;**
kossar -

Nafnlaus sagði...

hæhæ... Takk sömuleiðis fyrir samflotið á leiðinni út, þetta var frekar fyndið... við gjörsamlega hlupum til að ná þessari lest og vittu til við NÁÐUM henni ;)!! En ánægð með þig að henda þér strax útí dönskuna, ég hefði betur gert það er að strögglast núna við að koma mér úr enskunni í dönskuna ;( En þetta hljómar allt voða spennó, bara skemmtu þér vel !!;)

Nafnlaus sagði...

hahahhaha
kræst ég hefði ekki þorað að syngja þennan texta svona nýbyrjaður heimskur íslendingur..
hahahhahhaha

Nafnlaus sagði...

já Fríða komin með græjurnar og hún Lilja komin með bílinn. haha megafedt ! og lykillinn kominn úr skránni og allt

Nafnlaus sagði...

haha magnað, ég skildi textann en fattaði samt ekki neinn húmor.
Annaðhvort er danskan mín alveg farin eða ég hef lélegan húmor...

..og ég held að allir sættist á fyrri niðurstöðuna....múhahahaha

Nafnlaus sagði...

flottar myndir!
gaman að sjá hvað allt er cosy þarna.. núna getur maður séð rétt fyrir sér umhverfið þegar þú ert að segja manni sögur ;)

góða skemmtun í "hus i fest 1"

Anna Hansen sagði...

Hehehe lykillinn kominn úr og ALLT:) frábært.. þið passið vel upp á brumma bláa

Nafnlaus sagði...

HAHA þú ert snilli! frábært hvað allt ef gaman og gott! aldreiii leiðinlegt hjá hansen!:D hafðu það gott dúlla!