þriðjudagur, 10. febrúar 2009

Blogga... hvað er nú það?

Frekar langt orðið síðan ég setti eitthvað hér inn síðast... hef ekki alveg haft mig í það..

Er að safna í massíva færslu með fullt af myndum.. luma reyndar á einu myndbandi frá lokatónleikunum ennþá, en var að horfa á það aftur og finnst það eiginlega ekki nógu gott til birtingar!! Held að ég sleppi því að setja það hérna inn svei mér þá...

Allt gott að frétta héðan frá Kaupmannahöfn... er bara byrjuð að vinna og er ennþá smá í skólanum líka..

EN

nóg um það síðar

Ástæðan fyrir þessari færslu er að ég á rosa hæfileikaríka litla systur sem heitir Fríða Hansen..
(já hún er ennþá litla systir mín þó hún sé nú búin að stækka helling, að fara að fermast í vor gellan ;)

Stelpan gerði sér lítið fyrir og var í 2. sæti á söngkeppninni í skólanum sínum með lagið Dimmar Rósir eftir Tatara... upprennandi söngdíva hér á ferð það er alveg á hreinu!

Þangað til næst - njótið vel!



þriðjudagur, 9. desember 2008

GJUGG I BORG

Hæhæ
Her koma 2 myndbønd
Fyrra frá tónleikum sem vid skipuløgdum sjálf og héldum uppi í skóla, tar sem ég søng lag med Arethu Franklin sem heitir Don´t play that song for me ....
Píanóleikarinn spiladi reyndar eins og hann væri á spítti hehe.. allt of hratt fyrir minn smekk.. Gaman frá tví ad segja ad mamma og pabbi kíktu vid í sólarhring og nádu ad sjá mig syngja tetta lag ;) Rosa gaman ad sjá tau...
En seinna myndbandid er af acoustic tonleikum i Lindevangskirken a Frederiksberg tar sem vid Arnar syngjum duett... Horfdu aftur( Góda Nótt) sem Páll Óskar og Kristjana Stefáns sungu á sínum tíma... og tar spiladi píanóleikarinn allt of hægt haha... aldrei hægt ad gera manni til geds ha? ;)
Annars er allt gott ad frétta ... sídasta vikan í skólanum TVÍ MIDUR og tónleikar á føstudaginn
Ég er ordin RAUDHÆRD
og
11 dagar í jólafrí á Íslandi!!
Er tølvulaus svo ég hef tetta ekki lengra í bili
Knús í krús
Anna panna pottur og kanna


þriðjudagur, 11. nóvember 2008

2/3 tónleikar

Hey folks...

Skelli hérna inn upptöku af tónleikunum sem voru síðasta laugardag..

Var að prófa nýju hlutina sem ég er búin að vera að læra, EDGE og DISTORTION hehe..
Tók Cryin' með Aerosmith, hækkaði það örlítið ...

Vantar sumsstaðar á hæstu köflunum aðeins meira "twang" (sem þið vitið að sjálfsögðu vel hvað er ekki satt?) og meiri stuðning, ekki alveg fullkomið, en... maður er alltaf að læra ekki satt!??

Ég skemmti mér allavega alveg konunglega við að syngja það, svo vel reyndar að ég gleymdi á einum stað að það ætti að vera solo hahaha...

jæja.. hér er þetta allavega... vona að þið njótið vel..

Allt frábært að frétta annars:)

Hilsen Anna Oh!



laugardagur, 1. nóvember 2008

Enn á lífi :)

Ætli það sé ekki best að skella inn smá færslu svo þið haldið nú ekki að það sé búið að skjóta mig niður!


Allt glimrandi að frétta af mér, róleg helgi hjá mér, sit hérna ein heima á laugardagskvöldi og hef það voða, voða huggulegt með tölvuna í fanginu og eitthvað stjörnuslúður í sjónvarpinu.
Dagurinn fór annars í ræktina, var uppi í skóla að æfa og svo kíkti ég aðeins á Stine og Emilie en þær voru að flytja í nýja íbúð á Amagerbro..

Margt búið að gerast frá síðasta pistli

Í fyrsta lagi vorum við í viku haustfríi um daginn - ágætt að fá smá breik en það var líka rosalega gott að byrja aftur.. held að allir hafi saknað skólans rosalega mikið :)
Þetta er nefnilega algjör snilldarskóli - og svo góður hópur.. höfum heyrt einhverjar sögur af því að í fyrra hafi verið eitthvað um prímadonnustæla og samkeppni og svona í bekkjunum .. en það er sko alls ekki hjá okkur

Allir bara þarna til að læra og hafa gaman og styðja við bakið á hvoru öðru :)

Í síðustu viku var "Songwriting Week".
Þá var ekki venjuleg kennsla heldur voru alls konar tímar til að hjálpa okkur við lagasmíðar, fengum alls konar tips hvernig við gætum sótt innblástur ef við værum stopp og svoleiðis...

svo var okkur skipt upp í hópa og hver hópur átti að semja lag til að flytja á tónleikum á fimmtudagskvöldinu.. Ég var í hóp með Arnari og danskri stelpu sem heitir Julie, og okkur gekk svona líka vel, fórum alveg á flug og kláruðum lagið nánast á einum og hálfum degi..

Slógum náttúrulega alveg í gegn á tónleikunum, en lagið okkar heitir Sparkling Glamour og er ástarljóð frá manni til míkrafóns hahaha... algjör steypa og við skemmtum okkur sko konunglega við þetta:)

Set hérna inn link þar sem þið getið downloadað upptöku af tónleikunum:

SPARKLING GLAMOUR! - ANNA, AR
NAR & JULIE

Tónleikarnir sjálfir voru svo algjör "hygge".. allir komu með einhverjar smá veitingar, byrjuðum á að borða saman og svo fluttu allir sitt... við Arnar komum með heitan brauðrétt með aspas og slógum sko aldeilis í gegn.. fyndið ég sem hélt að íslendingar hefðu lært að gera svoleiðis af dönum.. en það virtist enginn hafa smakkað svona áður!


Allt að verða klárt fyrir tónleikana og kræsingarnar allar komnar á borðið!



Lára vinkona hennar Telmu kom í heimsókn eina helgi um daginn og við kíktum í afmæli til Róberts sem er að vinna með Telmu


Haffi, Arnar og Sigga hress á því


Ég og Haffi og ég með pósuna mína góðu haha...


Lára, ég og Telma - HISSA!!




Arnar og ég að rembast við að taka sjálfsmynd


Ég og afmælisbarnið

Lára var svo sæt í sér að lána Arnari smá af hárinu sínu

***

Annars er mér hætt að lítast á hvað er stutt eftir af skólanum... 1. nóvember í dag sem þýðir að það er ekki nema einn og hálfur mánuður í skólaslit... úfff væri sko alveg til í að hann væri lengur!! Þetta er svooo gaman

Um daginn var td. klassískur masterclass þar sem allir áttu að velja sér eitthvað klassískt lag.. ég valdi Habanera úr Carmen.. og hafði rosa gaman af! Ekkert smá árangur sem maður nær á einum tíma með þessum kennurum!! Gaf Mariu Callas bara ekkert eftir svei mér þá.. hehe nei segi svona:)
Svo vorum við núna síðast með Cathrine Sadolin sjálfa í masterclass... sú kona vinnur hratt og hnitmiðað það er alveg á hreinu! Veit sko alveg um leið hvað það er sem maður þarf að vinna í og hvernig maður nær því!

Ég er annars búin að vera mikið að æfa "Edge-ið" mitt ... tónleikar um næstu helgi þar sem ég ætla að syngja " Cryin' " með Aerosmith

Getið hlustað á það hér fyrir þá sem ekki vita hvaða lag það er

http://www.youtube.com/watch?v=1HD3Sqlcm3o

Ég er búin að hækka það um einn og hálfan tón, en það verður hljómsveit sem spilar undir! Ætla líka að reyna að setja smá "distortion" á það...
Spennandi!
Aldrei að vita nema það sé hægt að semja við einhvern að taka upp á vídjó eins og síðast - og jafnvel þá ALLT lagið en ekki bara helminginn hehehe....

Svo eru aftur tónleikar 18. nóv í kirkju á Frederiksberg.. þar ætlum við Arnar að syngja dúett.. aftur tónleikar sem við sjálf skipuleggjum þann 28. nóv... og svo aftur lokatónleikar í desember... nóg framundan eins og þið sjáið!!!

En jæja... komið gott í bili ... er að fara að vinna í fyrramálið .. og ekki á Hereford, kom í ljós að það var víst ekkert mikil vinna í boði þar eftir allt saman.. svo að ég verð að vinna hér í staðinn

www.bottega.nu

Voða kósý staður, svona kaffihús/veitingastaður með létta ítalska rétti og bar á kvöldin...
hef rosa góða tilfinningu fyrir þessu!

Svo er það bara upp í skóla eftir vinnu á morgun að æfa EDGE!! og digital masterclass á mánudaginn...

Skelli hérna inn link í lokin sem ég mæli með að þið kíkið á, af Cathrine að kenna einhverri gellu að "distorta" eins og maður segir á góðri íslensku..
Mögnuð kelling! :)

Masterclass með Cathrine

Ciao í bili

ykkar einlæg Anna

sunnudagur, 19. október 2008

...in the ghettoooo

http://nyhederne.tv2.dk/krimi/article.php/id-17010883.html

Jájá þetta var hérna áðan, við Telma kíktum út í búð að versla í matinn og ætluðum að fara með pantinn ... Pantvélin var svo biluð þannig að Telma ákvað bara að bíða úti með flöskupokann meðan ég kláraði að versla...

Haldiði þá ekki að það sé byrjað að skjóta beint fyrir framan búðina.. hrundi úr múrsteinunum í veggnum við hliðina á henni.. þetta er náttúrulega ekki í lagi !!! Svo var allt í einu allt fullt af löggum og búið að strengja gula borða úti um allt.. meira ruglið..


....og rétt í þessu var löggubíll að bruna framhjá á milljón fyrir utan hjá okkur....


Á einhver skothelt vesti til að lána mér???

laugardagur, 11. október 2008

11. október

Mikið rosalega líður tíminn hratt - vá
Að verða kominn miður október - jólin verða komin áður en maður veit af svei mér þá!!

Sit hérna heima í letikasti á laugardegi, ekkert annað í stöðunni en að blogga smá!

Lára vinkona hennar Telmu er í heimsókn og þær eru einhvers staðar niðri í bæ að spóka sig..

Allt rosa gott að frétta héðan og alltaf eitthvað skemmtilegt að ske.. er ekki málið að fara aðeins yfir það sem er búið að vera um að vera síðustu vikur...

Í fyrsta lagi fjárfestum við í sjónvarpi og erum búnar að vera ansi duglegar í SexyTime:)
(sem er auðvitað Hringbrautarlingó fyrir að horfa á Sex and the City)

Haldiði að sé fínt - fengum þessa græju á 350 dkk:) og allir vita að flatskjár er sooooo 2007!!


Við hjálpuðum þessum hér að flytja

Eins og sjá má á myndinni af Haffa voru þeir að flytja út í SUBURBIA - glænýtt allt saman við hliðina á Fields..

Við Vignir brugðum aðeins á leik á nýju svölunum haha..

Kíktum svo í bæinn þar sem Arnar rakst á þetta líka fína skilti - "Men at work" hahaha

***

Helgina eftir kíkti bekkurinn minn "Ruby Team" í bústað.. svo heppin að Nicky sem er með mér í hóp á sumarhús ekki svo langt frá Kaupmannahöfn


Arnar og Frouke frá Hollandi

Rebecka frá Svíþjóð og Siv frá Noregi

Sundlaugin var of köld fyrir sundsprett - svo hún var bara nýtt í að kæla bjórinn hehe

Ég og Rebecka

Fórum í karaoke


Siv lét kuldann ekki á sig fá og fékk sér smá sundsprett morguninn eftir - frekar fyndið að sjá hana á sundi innan um allar bjórkippurnar hahaha

***

Ösp elskan kom svo líka í heimsókn til okkar frá Englandi og var hjá okkur frá föstudegi til þriðjudags

Kíktum m.a. í partý til Babs þar sem þemað var TransSexual, strákar klæddir sem stelpur og stelpur sem strákar

Klæddum okkur nú ekki upp en kenndum að sjálfsögðu nokkrum útvöldum "HISSA"

Telma að reiða Ösp - hahahaha

Æðislegt að hafa Ösp hér - eyddum góðum tíma í að tjilla, sex and the city, elda, baka pönnsur, versluðum smá ...
Rosa kósí!

***


Svo voru það auðvitað tónleikarnir um síðustu helgi og partý eftir þá, takk fyrir öll kommentin á vídjóið sem ég setti inn, gaman að fá viðbrögð:)

Ég er líka komin með vinnu með skólanum, á kvöldin og um helgar að þjóna á Hereford við Kongens nytorv.. ekkert vit að vera með íslenska peninga hérna núna!!


Í kvöld erum við svo að fara í afmæli hjá Róberti sem er vinur Arnars og Haffa og er að vinna með Telmu - verður án efa skrautlegt kvöld þar sem það verða aðallega íslendingar á svæðinu hehe..

Held að ég láti þetta duga í bili

Annars var ég með annan pistil í sunnlenska í gær fyrir þá sem vilja kíkja á hann

Baráttukveðjur heim í kreppuna :)

Knus Anna Oh!



mánudagur, 6. október 2008

Sneak peek




Smá sýnishorn af tónleikunum á föstudaginn - gekk rosa vel bara :)
Telma tók þetta upp á myndavélina sína svo þetta eru engin rosaleg gæði - svo náði hún ekki að taka nema helminginn af laginu því minnið á myndavélinni var búið .. en þetta er eitthvað samt!

Lagið sem ég tók heitir The Man Who Sold The World - David Bowie samdi það en Nirvana gerðu það líka frægt aftur...

Tveir bekkjarfélagar mínir spila undir - Siv frá Noregi og Dagfinn frá Færeyjum


Fyrir áhugasama þá er þetta aðallega curbing - nokkur vocal breaks yfir í neutral - og á einum stað má heyra þar sem ég geri það sem ég á voða mikið til og er ekki hollt - "push the volume in curbing"

hehehehehe

Njótið vel - lofa að skella inn annarri færslu og myndum mjög fljótlega :)

Knus Anna :)