laugardagur, 11. október 2008

11. október

Mikið rosalega líður tíminn hratt - vá
Að verða kominn miður október - jólin verða komin áður en maður veit af svei mér þá!!

Sit hérna heima í letikasti á laugardegi, ekkert annað í stöðunni en að blogga smá!

Lára vinkona hennar Telmu er í heimsókn og þær eru einhvers staðar niðri í bæ að spóka sig..

Allt rosa gott að frétta héðan og alltaf eitthvað skemmtilegt að ske.. er ekki málið að fara aðeins yfir það sem er búið að vera um að vera síðustu vikur...

Í fyrsta lagi fjárfestum við í sjónvarpi og erum búnar að vera ansi duglegar í SexyTime:)
(sem er auðvitað Hringbrautarlingó fyrir að horfa á Sex and the City)

Haldiði að sé fínt - fengum þessa græju á 350 dkk:) og allir vita að flatskjár er sooooo 2007!!


Við hjálpuðum þessum hér að flytja

Eins og sjá má á myndinni af Haffa voru þeir að flytja út í SUBURBIA - glænýtt allt saman við hliðina á Fields..

Við Vignir brugðum aðeins á leik á nýju svölunum haha..

Kíktum svo í bæinn þar sem Arnar rakst á þetta líka fína skilti - "Men at work" hahaha

***

Helgina eftir kíkti bekkurinn minn "Ruby Team" í bústað.. svo heppin að Nicky sem er með mér í hóp á sumarhús ekki svo langt frá Kaupmannahöfn


Arnar og Frouke frá Hollandi

Rebecka frá Svíþjóð og Siv frá Noregi

Sundlaugin var of köld fyrir sundsprett - svo hún var bara nýtt í að kæla bjórinn hehe

Ég og Rebecka

Fórum í karaoke


Siv lét kuldann ekki á sig fá og fékk sér smá sundsprett morguninn eftir - frekar fyndið að sjá hana á sundi innan um allar bjórkippurnar hahaha

***

Ösp elskan kom svo líka í heimsókn til okkar frá Englandi og var hjá okkur frá föstudegi til þriðjudags

Kíktum m.a. í partý til Babs þar sem þemað var TransSexual, strákar klæddir sem stelpur og stelpur sem strákar

Klæddum okkur nú ekki upp en kenndum að sjálfsögðu nokkrum útvöldum "HISSA"

Telma að reiða Ösp - hahahaha

Æðislegt að hafa Ösp hér - eyddum góðum tíma í að tjilla, sex and the city, elda, baka pönnsur, versluðum smá ...
Rosa kósí!

***


Svo voru það auðvitað tónleikarnir um síðustu helgi og partý eftir þá, takk fyrir öll kommentin á vídjóið sem ég setti inn, gaman að fá viðbrögð:)

Ég er líka komin með vinnu með skólanum, á kvöldin og um helgar að þjóna á Hereford við Kongens nytorv.. ekkert vit að vera með íslenska peninga hérna núna!!


Í kvöld erum við svo að fara í afmæli hjá Róberti sem er vinur Arnars og Haffa og er að vinna með Telmu - verður án efa skrautlegt kvöld þar sem það verða aðallega íslendingar á svæðinu hehe..

Held að ég láti þetta duga í bili

Annars var ég með annan pistil í sunnlenska í gær fyrir þá sem vilja kíkja á hann

Baráttukveðjur heim í kreppuna :)

Knus Anna Oh!



7 ummæli:

Unknown sagði...

nohh ánægð með þig að láta stutt líða á milli blogga:)
En Anna túpa??? Túpa?? so 2000!

þangað til næst!

Nafnlaus sagði...

þetta er allt osom og ísland er ömurlegt. hressar kveðjur á laugardagskvöldi sem fer í að læra operations management
berglind
ps verður að setja pistlana á netið eða senda mér í email þar sem að ég fæ ekki sunnlenska innum lúguna og vefurinn liggur niðri.
ps2 Vilhelm Leví gerir wicked hissa

Eyrun S sagði...

Hæhæ gaman að sjááá þig:)
ég er farin að ryðga í pósunum.. þarf að fara að æfa mig á fullu aftur:)

unnurlilja sagði...

þú ert ofurbloggari kona góð, ég er það ekki hinsvegar.

elskjú

Nafnlaus sagði...

ú takk fyrir góða færslu með nóg af myndum...


og vá, hvað þú ert dugleg að vera komin með vinnu að þjóna, ánægð með þig!! öfunda þig að vera í útlandinu, væri alveg til í það í þessari hrikalegu kreppu;)

hafðu það rosa gott mín kæra...

kv. ELÍN

Nafnlaus sagði...

Ég eeeeeelska Hereford! pant koma að borða til þín :D Og ég er svo hress svo hress með þetta blogg og myndir :) knús á þig kona :*

Kristín Gjé

Nafnlaus sagði...

hæ beibý girl!

Var að sjá síðuna þína. gott og gaman að geta fylgst með þér héðan úr ástralíu. ;) Verð tíður gestur.. þú ert náttla að meika það þarna í útlandinu, ert æði!

kveðja frá down under,
Sigga karls

p.s getur fylgst með mér, er með síðu.. 123.is/misssigga

LOVE