mánudagur, 26. nóvember 2007

Yo

Hey long time no see..


Tølvan min er med einhverja stæla, tekur ekki straum svo eg get ekki kveikt a henni.. verdid ad tola utlensku stafina i tetta skiptid allavega..


Eg er komin heim aftur eftir tonleikaferdalagid til Fyn og tad var bara i einu ordi sagt GEDVEIKT;) Ekkert sma gaman og gekk svaka vel, fengum rosa godar mottøkur og allt sem heitir svidskrekkur er nanast alveg horfid ur minum ordaforda. Reyndar einn skoli sem vid spiludum i tar sem tad gekk ekkert allt of vel, lelegt hljod og lelegir ahorfendur... enda bara greinilega leleg stemning i skolanum og bara rumlega 20 nemendur.. frekar kaldhædnislegt ad skolinn het Båring højskole.. profid ad segja tad med enskum hreim, jaja BORING højskole hehehe....




a føstudaginn for eg svo til Køben ad hitta hana Unni mina;) hun var herna fra midvikudegi til laugardagsmorguns svo eg rett nadi ad sja hana adur en hun for heim.. gisti med henni heima hja Fridu vinkonu hennar og Ragnheidur vinkona teirra var lika tar..


Forum i Tivoli ad borda og skoda, buid ad opna jolativoliid, voda gaman.. eg og Unnur skelltum okkur svo i eitt tæki, stærsta russibanann og SHIT hvad eg var hrædd hahaha... ekki mesti spennufikill i heimi og vid erum ad tala um tad ad eg var has eftir ferdina, buin ad øskra fra mer allt vit ... og myndin sem teir toku af okkur hahaha... priceless svipur a mer, augun alveg klemmd aftur og med galopinn munn.. og Unnur bara brosandi sæl og glød vid hlidina a mer!


Svo skelltum vid okkur heim ad skipta um føt og gera okkur sætar og svo nidur i bæ tar sem eg nadi ad tyna simanum minum, Anna Hansen alltaf sami saudurinn!




Tannig ad eg er komin med nytt numer sem tid getid sed her til hlidar..var svo heppin ad Unnur var buin ad vera med gamla simann minn i lani og var akkurat med hann tannig ad eg turfti ekki ad kaupa nyjan.. sorry elskan ad eg turfti ad rifa hann af ter!




En tad er nog um ad vera to svo ad tonleikaferdalagid se buid.. i tessari viku er svokøllud after-turne vika, førum i studio og tøkum upp, klippum saman turvidjoid og fleira.. svo spila 2 og 2 hljomsveitir tonleika i cafeinu i lok dags, sem eru teknir upp og vid faum a geisladisk.. live upptaka, spennandi hvernig tad kemur til med ad hljoma;) næstu tvær vikur verda svo projekt-uger, tar sem vid høfum tækifæri a ad vinna i okkar eigin efni og fritidsbøndunum og fleira skemmtilegt;)




Vona ad vid førum svo ad koma tessu lagi inn a netid sem allra fyrst svo tid getid fengid ad heyra..




Annars er ekki nema tæpur manudur i heimkomu.. frekar blendnar tilfinningar ad hætta her og kvedja alla.. en tad verdur audvitad voda gott ad koma heim aftur lika;) kem heim a torlaksmessu og Telma min er buin ad panta ad sækja mig a flugvøllinn, heppin eg, fæ hana til ad klippa mig og gera mig fina i leidinni;) og sja nyju ibudina sem hun var ad flytja inn i gellan!

Elska annars hvad tid erud dugleg ad kommenta.. svo gaman ad sja hverjir eru ad fylgjast med.. keep up the good work!;)
Eg kved i bili.. vona ad eg geti svo sett einhverjar myndir inn fljotlega, vona ad tølvan se ekki alveg dain!


Læt samt fylgja med tessar 2 myndir sem Hans kennari tok og komu daldid tøff ut..






Later Anna ykkar Oh;)

miðvikudagur, 14. nóvember 2007

Mojn

Jæja...í fréttum er þetta helst:

Hip hop festin var æði.. enda ekki hægt annað en að fíla sig í botn dansandi í víðum buxum og strigaskóm.. þvílík sæla! Annars þótti ég alveg bera af, var spurð af ansi mörgum hvort ég hefði verið skoppari einhvern tímann.. hahaha... "Anna Hoe" kann þetta;)


Ghettoið


Babs og Stine homegirls

Anna með ofurbros en Babs eitursvöl með pósuna á hreinu




Á fimmtudaginn var það svo hvorki meira né minna en rúmlega 5 tíma lestar/rútuferð til Jótlands, Tønder nánar tiltekið, þar sem dönsku ættingjar mínir búa. Ættræknin alveg að fara með mig;) Gisti hjá Lene og Lars, en amma hennar og afi Jacob, pabbi pabba, voru systkini. Ofsalega fín helgi...vissi ekki alveg hvernig þetta yrði því að ég þekki þetta fólk nú ekki neitt, hitt þau einu sinni áður, en þetta var bara rosa gaman!

Byrjaði á að kíkja með Lene í vinnuna á fimmtudaginn en hún er kennari í litlum grunnskóla rétt fyrir utan Tønder. Fór með henni í kennslustund hjá 3. bekk þar sem þau giskuðu á hvaðan ég væri og fengu aðeins að heyra af hverju í ósköpunum ég væri þarna.. fannst líka mikið til þess koma að mamma mín og pabbi ættu hótel á íslandi og fullt fullt af hestum hehe.. ;)



Á laugardeginum fékk ég svo "the grand tour" um svæðið, Inger og Gunnar, foreldrar Lene, keyrðu með mig til Arrild, sem er bærinn sem afi var frá, sá húsið sem langamma og alnafna Anna Hansen bjó í, kirkjuna sem pabbi var skírður í, heimsótti 2 systur hans afa og fleira.. Svo fékk ég auðvitað FULLT af góðum mat alla helgina og svona.. Sé alls ekki eftir að hafa skellt mér!





Gunnar með barnabörnin



Gaman að vita hvernig þetta allt saman er þarna og kynnast fólkinu aðeins, fékk nefnilega aldrei tækifæri til að hitta afa, þar sem hann dó í bílslysi þegar pabbi var rúmlega tvítugur ..

Annars var ég búin að búa mig undir að skilja ekki neitt af því sem þau segðu þarna... Búa svo nálægt þýsku landamærunum að þau tala Suður-jósku af bestu gerð hahaha... Lene talar nú bara eins og krakkarnir í skólanum, unga fólkið er ekki með svo mikinn hreim, en eftir því sem fólkið er eldra því erfiðara er að skilja það.. átti td MJÖG erfitt með að skilja systur hans afa!

Dæmi um hvernig þau segja hlutina...

Mojn: Notað í staðinn fyrir hej og hej hej eða farvel.. heilsast/kveðjast

Dav: Dá (Dagur)

Læste: Lojste

Hvad for noget : Hvad for ná
Gøre/køre: Gu/ku

Mad:
Hed/Ved: Heyj/veyj

Dernede: Derni

Meget: Moj


Hehehe.. frekar fyndið..


Annars virðist ég vera búin að ná mér í yndislega flensu, kvef, hálsbólga og hausverkur að hrjá mig og röddin í tómu tjóni.. alveg á besta tíma eða þannig, hljómsveitaræfingar á hverju kvöldi núna því að við leggjum í hann til Fyn á mánudaginn, á tónleikaferðalag.. má samt kannski segja að það er betra að taka út veikindin núna en í næstu viku.. líta á björtu hliðarnar ekki satt!? ;)


Þetta er svaka spennandi, komin með 6 gigg á 4 dögum svo þetta verður dálítil keyrsla.. Í gær var einmitt engin kennsla í skólanum, bara "æfingatónleikar" í salnum, öll böndin spiluðu 2 lög fyrir hina og kennararnir og hinir nemendurnir komu með gagnrýni og alls konar ábendingar um hvað mætti betur gera..

Gaman frá því að segja að þau voru alveg yfir sig hrifin af okkur! Sögðu að það geislaði alveg af okkur hvað við nytum þess mikið að spila saman og náðum vel saman, röddunin hjá okkur Marie væri mjög góð og við spiluðum bara virkilega vel... og að það væri sko ekki að heyra á okkur að við værum einhver skólahljómsveit heldur bara alvöru band á tónleikum.. rosa gott að fá svona jákvæð viðbrögð, þó svo að þetta hafi ekki verið neitt sem við ekki vissum hehe;) Ótrúlega góð stemning hjá okkur, alveg klárlega besta grúppan! Á eftir að sakna þess svakalega að spila með þeim þegar ég verð komin aftur heim, það er alveg á hreinu..

Svo um helgina eru bara æfingar og generalhljóðprufur og svona..

Nýja lagið okkar, Wrong Lane Relations, er svo í "mixun" og kemur inn von bráðar.. fylgist með:)

Lítið annað sem ég get sagt ykkur akkúrat núna, bara nóg að gera eins og þið sjáið og brjálað stuð..

Íbúafjöldinn í herbergi 6.5 hefur samt hækkað örlítið.. Stine, Emilie og Babs eru nefnilega nánast fluttar inn til okkar Rikke hehe... ákváðum að halda sleepover hérna í fyrrakvöld og þær komu yfir með dýnurnar sínar, svo gistu þær aftur í gær og mér sýnist á öllu að þær verði hér í kvöld líka... så hyggeligt að gista svona margar saman.. við erum hvort sem er alltaf að spjalla saman allar langt fram á nótt þannig að það er alveg eins gott að vera bara klárar í háttinn fyrir;) Týpískar stelpur hahaha...

Höfum þetta ekki lengra í bili

Anna "Hoe" kveður með hor í nös og ráma rödd

WOOOORD

föstudagur, 2. nóvember 2007

Léleg.....

Já já ég veit ég er léleg að blogga... hef bara ekki haft mig í það undanfarið, nóg að gera og alltaf svo gaman að ég bara hef ekki nennt því satt að segja! en nú er stóra stundin loksins runnin upp.. er ekki bara best að byrja á byrjuninni:
Fyrir tveimur helgum síðan var svokölluð "hjemrejseweekend" í skólanum, fengum frí frá föstudegi til mánudags og þá kom elsku bestasta Eddan mín hingað út og við eyddum helginni með Hörpu! :)

Við borðuðum fullt af góðum mat, bæði á veitingastöðum og heima hjá Hörpu og Sigga, en þau elduðu fyrir okkur þessa dýrindis snigla í forrétt (ég smakkaði ekki, Edda gerði það samt hehe) og svo var það önd með brúnuðum kartöflum og fíneríi í aðalrétt... mmm;)

Auðvitað var verslað dálítið... ;)


Eins og glöggir menn sjá á myndinni af stelpunum hér að ofan (halva priset) þá kíktum við til Malmö á laugardeginum.. Gerðum eiginlega ekkert annað en að versla þar samt og ákváðum því að taka túristann á þetta á leiðinni aftur upp á lestarstöðina og tókum nokkrar asnalegar myndir..


Sérstök verðlaun í boði fyrir þá sem geta fundið Eddu á myndinni af styttunum fyrir ofan.


Sænskt gangbrautarskilti - exciting stuff



Komumst líka að því að lestin milli Helsingør og Köben stoppar í Louisiana... ég sem hélt að það væri í Bandaríkjunum.. svona er maður vitlaus :) En hún stoppar samt "ekki" í Klampenborg haha... einka..


Á laugardagskvöldinu kíktum við Edda svo inn í Köben og fórum út að borða.. fengum kokteila á hálfvirði og enduðum á að flýja nánast veitingastaðinn því að ítalski þjónninn vildi svo ólmur fá okkur með sér eitthvert eftir vinnu haha...



Kíktum svo í partý heim til Fríðu sem var með Unni Lilju í ML og fórum í byen með henni, og enduðum svo kvöldið á að hitta Babs og vini hennar og Helga og einhverja fleiri úr skólanum..

Æðisleg helgi í alla staði og æði að sjá hana Eddu mína aftur:)

Í síðustu viku var svo ýmislegt að ske.. fórum í leikhús á þriðjudagskvöldinu að sjá eitthvað verk um mann sem missti pabba sinn í hryðjuverkaárásunum 11. september.. hljómar kannski ekkert allt of spennó en það var fínt stykki .. fann það hvað leikhúsfíkillinn ég hef ekki farið í leikhús lengi!

Á miðvikudeginum fórum við svo einhver 30 stykki úr skólanum á Muse tónleika í Forum í Kaupmannahöfn..


Ég og Emilie fyrir utan Forum fyrir tónleikana


Harpa og Siggi voru líka á tónleikunum


Svo var aftur komin helgi og þá kom Birna elskan í heimsókn til mín upp í skóla frá föstudegi til mánudagsmorguns!

Så hyggeligt að hafa hana hérna og gaman að einhver viti hvernig þetta lítur út allt saman:)


Á föstudeginum var "Dyrefest" í húsi 3
Stelpurnar og Bajer og Matthia klæddu sig upp á sem lýs, lúsasjampó og lúsakamb haha... frekar fyndið í ljósi þess að þau voru öll með lús fyrir dálitlu síðan... Tek það fram að ég fékk ekki lús!;)


Svo á laugardagskvöldinu var "Kærlighedsfest" í húsinu mínu, númer 6.



Hentum sófunum út og skelltum dýnum á stofugólfið, seríur voru hengdar upp, kveikt á kertum og Barry White fékk að hljóma...

Mjög skrautlegt og skemmtilegt kvöld og við skulum bara segja að ástin og kærleikurinn hafi ráðið ríkjum hahaha...



Rikke og Stine rökuðu hjarta á bringuna á Andreas haha...


Birna og Anna með pósuna á hreinu as always hehe

Hrikalega skemmtileg helgi og gaman að hafa Birnu hérna.. hana langaði nú bara held ég ekkert að fara, fannst þetta æðislegur skóli;)

Á þriðjudagskvöldið var svo Lærerjam í caféinu, allir kennararnir fóru upp á svið og "djömmuðu"

Mads og Nanna söngkennarar að troða upp

Fjör...

Svo á miðvikudagskvöldið fór hljómsveitin mín í stúdíó að taka upp nýtt lag sem kemur sennilegast inn hérna eftir helgi... Vorum í stúdíóinu frá klukkan 8 um kvöldið til hálf 4 um nóttina... tekur ekkert smá langan tíma! Vægast sagt erfitt að vakna klukkan 8 til að fara í tíma, en það var þess virði, við skellum afrakstrinum inn á myspaceið okkar við fyrsta tækifæri:)


Í byrjun kvöldsins...


Í gærkvöldi voru svo tónleikar ned i caféen með The Elephants, hljómsveitinni hennar Martine, kennarans sem sér um hljómsveitaræfingarnar hjá okkur.

Hún er gítarleikari í hljómsveitinni, voru að gefa út sína fyrstu plötu í byrjun október og eru að byrja að túra í næstu viku..

Mjög flott tónlist sem þau spila, ég festi einmitt kaup á disknum í gær, áritað eintak en ekki hvað;) hehe


Alls konar hljóðfæri sem þau nota, termínu (heitir það allavega a dönsku) barnagítar og barnahljómborð .. fyndið að horfa á þau á sviði hehe..


Endilega tékkið á þeim á myspace

www.myspace.com/theelephantsdk


Í morgun fórum við svo út í einhvern grunnskóla hérna í nágrenninu að sýna afró dansana sem við erum búin að vera að læra... gekk mjög vel og krakkarnir algjörar dúllur, komu og báðu um eiginhandaráritanir á eftir hahaha... minnti mig á góða tíma í seljahverfinu þegar ég fór einhvern tímann að horfa á einhvern jójó-meistara sýna listir sínar og fékk svo eiginhandaráritun.. toppurinn á tilverunni hahaha.. það var svo gaman að vera lítill;)

Svo er það hip-hop fest hér í kvöld, 3 aðrir lýðháskólar sem koma og svo verður rap-battle á milli skóla;) svaka stuð..


En þetta er nú bara orðið hálftíma lesning, held að ég fari að hætta þessu bulli.. spurning um að láta líða aðeins styttra á milli blogga næst svo að þetta sé ekki alltaf svona hrikalega langt!?!


Ætla að enda þetta á link á kynningarmyndband um skólann sem Fie og Andreas bjuggu til og settu á YouTube.. þar er einmitt tekið viðtal við Morten úr mínu húsi og Rikke mína, herbergisfélagann minn:) getið séð hvernig hún er í raun og veru.. eða svona næstum!

http://www.youtube.com/watch?v=QLDOLQG3wE4&eurl=http://drh.dk/p/6669


Fullt af nýjum myndum komnar hér til hliðar líka..


Góða helgi elskurnar



ANNA OH