miðvikudagur, 14. nóvember 2007

Mojn

Jæja...í fréttum er þetta helst:

Hip hop festin var æði.. enda ekki hægt annað en að fíla sig í botn dansandi í víðum buxum og strigaskóm.. þvílík sæla! Annars þótti ég alveg bera af, var spurð af ansi mörgum hvort ég hefði verið skoppari einhvern tímann.. hahaha... "Anna Hoe" kann þetta;)


Ghettoið


Babs og Stine homegirls

Anna með ofurbros en Babs eitursvöl með pósuna á hreinu




Á fimmtudaginn var það svo hvorki meira né minna en rúmlega 5 tíma lestar/rútuferð til Jótlands, Tønder nánar tiltekið, þar sem dönsku ættingjar mínir búa. Ættræknin alveg að fara með mig;) Gisti hjá Lene og Lars, en amma hennar og afi Jacob, pabbi pabba, voru systkini. Ofsalega fín helgi...vissi ekki alveg hvernig þetta yrði því að ég þekki þetta fólk nú ekki neitt, hitt þau einu sinni áður, en þetta var bara rosa gaman!

Byrjaði á að kíkja með Lene í vinnuna á fimmtudaginn en hún er kennari í litlum grunnskóla rétt fyrir utan Tønder. Fór með henni í kennslustund hjá 3. bekk þar sem þau giskuðu á hvaðan ég væri og fengu aðeins að heyra af hverju í ósköpunum ég væri þarna.. fannst líka mikið til þess koma að mamma mín og pabbi ættu hótel á íslandi og fullt fullt af hestum hehe.. ;)



Á laugardeginum fékk ég svo "the grand tour" um svæðið, Inger og Gunnar, foreldrar Lene, keyrðu með mig til Arrild, sem er bærinn sem afi var frá, sá húsið sem langamma og alnafna Anna Hansen bjó í, kirkjuna sem pabbi var skírður í, heimsótti 2 systur hans afa og fleira.. Svo fékk ég auðvitað FULLT af góðum mat alla helgina og svona.. Sé alls ekki eftir að hafa skellt mér!





Gunnar með barnabörnin



Gaman að vita hvernig þetta allt saman er þarna og kynnast fólkinu aðeins, fékk nefnilega aldrei tækifæri til að hitta afa, þar sem hann dó í bílslysi þegar pabbi var rúmlega tvítugur ..

Annars var ég búin að búa mig undir að skilja ekki neitt af því sem þau segðu þarna... Búa svo nálægt þýsku landamærunum að þau tala Suður-jósku af bestu gerð hahaha... Lene talar nú bara eins og krakkarnir í skólanum, unga fólkið er ekki með svo mikinn hreim, en eftir því sem fólkið er eldra því erfiðara er að skilja það.. átti td MJÖG erfitt með að skilja systur hans afa!

Dæmi um hvernig þau segja hlutina...

Mojn: Notað í staðinn fyrir hej og hej hej eða farvel.. heilsast/kveðjast

Dav: Dá (Dagur)

Læste: Lojste

Hvad for noget : Hvad for ná
Gøre/køre: Gu/ku

Mad:
Hed/Ved: Heyj/veyj

Dernede: Derni

Meget: Moj


Hehehe.. frekar fyndið..


Annars virðist ég vera búin að ná mér í yndislega flensu, kvef, hálsbólga og hausverkur að hrjá mig og röddin í tómu tjóni.. alveg á besta tíma eða þannig, hljómsveitaræfingar á hverju kvöldi núna því að við leggjum í hann til Fyn á mánudaginn, á tónleikaferðalag.. má samt kannski segja að það er betra að taka út veikindin núna en í næstu viku.. líta á björtu hliðarnar ekki satt!? ;)


Þetta er svaka spennandi, komin með 6 gigg á 4 dögum svo þetta verður dálítil keyrsla.. Í gær var einmitt engin kennsla í skólanum, bara "æfingatónleikar" í salnum, öll böndin spiluðu 2 lög fyrir hina og kennararnir og hinir nemendurnir komu með gagnrýni og alls konar ábendingar um hvað mætti betur gera..

Gaman frá því að segja að þau voru alveg yfir sig hrifin af okkur! Sögðu að það geislaði alveg af okkur hvað við nytum þess mikið að spila saman og náðum vel saman, röddunin hjá okkur Marie væri mjög góð og við spiluðum bara virkilega vel... og að það væri sko ekki að heyra á okkur að við værum einhver skólahljómsveit heldur bara alvöru band á tónleikum.. rosa gott að fá svona jákvæð viðbrögð, þó svo að þetta hafi ekki verið neitt sem við ekki vissum hehe;) Ótrúlega góð stemning hjá okkur, alveg klárlega besta grúppan! Á eftir að sakna þess svakalega að spila með þeim þegar ég verð komin aftur heim, það er alveg á hreinu..

Svo um helgina eru bara æfingar og generalhljóðprufur og svona..

Nýja lagið okkar, Wrong Lane Relations, er svo í "mixun" og kemur inn von bráðar.. fylgist með:)

Lítið annað sem ég get sagt ykkur akkúrat núna, bara nóg að gera eins og þið sjáið og brjálað stuð..

Íbúafjöldinn í herbergi 6.5 hefur samt hækkað örlítið.. Stine, Emilie og Babs eru nefnilega nánast fluttar inn til okkar Rikke hehe... ákváðum að halda sleepover hérna í fyrrakvöld og þær komu yfir með dýnurnar sínar, svo gistu þær aftur í gær og mér sýnist á öllu að þær verði hér í kvöld líka... så hyggeligt að gista svona margar saman.. við erum hvort sem er alltaf að spjalla saman allar langt fram á nótt þannig að það er alveg eins gott að vera bara klárar í háttinn fyrir;) Týpískar stelpur hahaha...

Höfum þetta ekki lengra í bili

Anna "Hoe" kveður með hor í nös og ráma rödd

WOOOORD

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

SVALA!!!
Gangi ykkur vel á tónleikaferðalaginu;)

ég kannaðist ágætlega við jóskuna btw;p

Nafnlaus sagði...

nigga please.... greinilegt að þú bjóst í ghettóinu áður en þú fluttir í sveitina!! sagðiru þeim það ekki? skotbardagar, morð og fleira í þeim dúr bara daglegt brauð. Annars er ég bara farin að hlakka til að þú komir heim thug....
Berglind

Nafnlaus sagði...

Anna svala hipphopgella! hehe...
Hlakka til að heyra nýja lagið og gangi ykkur ógó vel á tónleikaferðalaginu!
Og láttu þér nú batna fljótt og vel:D

Nafnlaus sagði...

Hæææj<3;* ohh ég sakna þín geðveikt mikiiið ! En þarna.. jám skemmtu þér bara geðveikt vel í tónleikaferðalaginu! ;) settu lagið inn á síðuna sem fyrst! ;* Heyrðu,, láttu þér batna ! xD

- Fríða

Nafnlaus sagði...

ÉG KEM Á MORGUN!!
SJÚGUMST A FÖSTUDAGINN!

Nafnlaus sagði...

FOkk þú ert svo svööööööl! Hvenær kemurðu heim bjalla?

Sissy gjé

Nafnlaus sagði...

Jey gaman að ég fann þessa síðu!! Alltaf svo gaman að fylgjast með ;) fíla bandið í tætlur, var að skoða mæspeisið, þið verðið bara að taka gigg á íslandi líka ;)
góða skemmtun anna mín..
kv. Magga (Guðrúnar)

Nafnlaus sagði...

þú ert nú meiri pæjan!
gangi ykkur vel með giggin ;)

Unknown sagði...

Anna mín, Það er orðið langt síðan ég kíkti síðast á síðuna þína, en ég sé að þér leiðist sko ekki! Flott hjá þér að hitta ættingjana :)
Ciao,
Vera (ég er sko að læra ítölsku!).