föstudagur, 2. nóvember 2007

Léleg.....

Já já ég veit ég er léleg að blogga... hef bara ekki haft mig í það undanfarið, nóg að gera og alltaf svo gaman að ég bara hef ekki nennt því satt að segja! en nú er stóra stundin loksins runnin upp.. er ekki bara best að byrja á byrjuninni:
Fyrir tveimur helgum síðan var svokölluð "hjemrejseweekend" í skólanum, fengum frí frá föstudegi til mánudags og þá kom elsku bestasta Eddan mín hingað út og við eyddum helginni með Hörpu! :)

Við borðuðum fullt af góðum mat, bæði á veitingastöðum og heima hjá Hörpu og Sigga, en þau elduðu fyrir okkur þessa dýrindis snigla í forrétt (ég smakkaði ekki, Edda gerði það samt hehe) og svo var það önd með brúnuðum kartöflum og fíneríi í aðalrétt... mmm;)

Auðvitað var verslað dálítið... ;)


Eins og glöggir menn sjá á myndinni af stelpunum hér að ofan (halva priset) þá kíktum við til Malmö á laugardeginum.. Gerðum eiginlega ekkert annað en að versla þar samt og ákváðum því að taka túristann á þetta á leiðinni aftur upp á lestarstöðina og tókum nokkrar asnalegar myndir..


Sérstök verðlaun í boði fyrir þá sem geta fundið Eddu á myndinni af styttunum fyrir ofan.


Sænskt gangbrautarskilti - exciting stuff



Komumst líka að því að lestin milli Helsingør og Köben stoppar í Louisiana... ég sem hélt að það væri í Bandaríkjunum.. svona er maður vitlaus :) En hún stoppar samt "ekki" í Klampenborg haha... einka..


Á laugardagskvöldinu kíktum við Edda svo inn í Köben og fórum út að borða.. fengum kokteila á hálfvirði og enduðum á að flýja nánast veitingastaðinn því að ítalski þjónninn vildi svo ólmur fá okkur með sér eitthvert eftir vinnu haha...



Kíktum svo í partý heim til Fríðu sem var með Unni Lilju í ML og fórum í byen með henni, og enduðum svo kvöldið á að hitta Babs og vini hennar og Helga og einhverja fleiri úr skólanum..

Æðisleg helgi í alla staði og æði að sjá hana Eddu mína aftur:)

Í síðustu viku var svo ýmislegt að ske.. fórum í leikhús á þriðjudagskvöldinu að sjá eitthvað verk um mann sem missti pabba sinn í hryðjuverkaárásunum 11. september.. hljómar kannski ekkert allt of spennó en það var fínt stykki .. fann það hvað leikhúsfíkillinn ég hef ekki farið í leikhús lengi!

Á miðvikudeginum fórum við svo einhver 30 stykki úr skólanum á Muse tónleika í Forum í Kaupmannahöfn..


Ég og Emilie fyrir utan Forum fyrir tónleikana


Harpa og Siggi voru líka á tónleikunum


Svo var aftur komin helgi og þá kom Birna elskan í heimsókn til mín upp í skóla frá föstudegi til mánudagsmorguns!

Så hyggeligt að hafa hana hérna og gaman að einhver viti hvernig þetta lítur út allt saman:)


Á föstudeginum var "Dyrefest" í húsi 3
Stelpurnar og Bajer og Matthia klæddu sig upp á sem lýs, lúsasjampó og lúsakamb haha... frekar fyndið í ljósi þess að þau voru öll með lús fyrir dálitlu síðan... Tek það fram að ég fékk ekki lús!;)


Svo á laugardagskvöldinu var "Kærlighedsfest" í húsinu mínu, númer 6.



Hentum sófunum út og skelltum dýnum á stofugólfið, seríur voru hengdar upp, kveikt á kertum og Barry White fékk að hljóma...

Mjög skrautlegt og skemmtilegt kvöld og við skulum bara segja að ástin og kærleikurinn hafi ráðið ríkjum hahaha...



Rikke og Stine rökuðu hjarta á bringuna á Andreas haha...


Birna og Anna með pósuna á hreinu as always hehe

Hrikalega skemmtileg helgi og gaman að hafa Birnu hérna.. hana langaði nú bara held ég ekkert að fara, fannst þetta æðislegur skóli;)

Á þriðjudagskvöldið var svo Lærerjam í caféinu, allir kennararnir fóru upp á svið og "djömmuðu"

Mads og Nanna söngkennarar að troða upp

Fjör...

Svo á miðvikudagskvöldið fór hljómsveitin mín í stúdíó að taka upp nýtt lag sem kemur sennilegast inn hérna eftir helgi... Vorum í stúdíóinu frá klukkan 8 um kvöldið til hálf 4 um nóttina... tekur ekkert smá langan tíma! Vægast sagt erfitt að vakna klukkan 8 til að fara í tíma, en það var þess virði, við skellum afrakstrinum inn á myspaceið okkar við fyrsta tækifæri:)


Í byrjun kvöldsins...


Í gærkvöldi voru svo tónleikar ned i caféen með The Elephants, hljómsveitinni hennar Martine, kennarans sem sér um hljómsveitaræfingarnar hjá okkur.

Hún er gítarleikari í hljómsveitinni, voru að gefa út sína fyrstu plötu í byrjun október og eru að byrja að túra í næstu viku..

Mjög flott tónlist sem þau spila, ég festi einmitt kaup á disknum í gær, áritað eintak en ekki hvað;) hehe


Alls konar hljóðfæri sem þau nota, termínu (heitir það allavega a dönsku) barnagítar og barnahljómborð .. fyndið að horfa á þau á sviði hehe..


Endilega tékkið á þeim á myspace

www.myspace.com/theelephantsdk


Í morgun fórum við svo út í einhvern grunnskóla hérna í nágrenninu að sýna afró dansana sem við erum búin að vera að læra... gekk mjög vel og krakkarnir algjörar dúllur, komu og báðu um eiginhandaráritanir á eftir hahaha... minnti mig á góða tíma í seljahverfinu þegar ég fór einhvern tímann að horfa á einhvern jójó-meistara sýna listir sínar og fékk svo eiginhandaráritun.. toppurinn á tilverunni hahaha.. það var svo gaman að vera lítill;)

Svo er það hip-hop fest hér í kvöld, 3 aðrir lýðháskólar sem koma og svo verður rap-battle á milli skóla;) svaka stuð..


En þetta er nú bara orðið hálftíma lesning, held að ég fari að hætta þessu bulli.. spurning um að láta líða aðeins styttra á milli blogga næst svo að þetta sé ekki alltaf svona hrikalega langt!?!


Ætla að enda þetta á link á kynningarmyndband um skólann sem Fie og Andreas bjuggu til og settu á YouTube.. þar er einmitt tekið viðtal við Morten úr mínu húsi og Rikke mína, herbergisfélagann minn:) getið séð hvernig hún er í raun og veru.. eða svona næstum!

http://www.youtube.com/watch?v=QLDOLQG3wE4&eurl=http://drh.dk/p/6669


Fullt af nýjum myndum komnar hér til hliðar líka..


Góða helgi elskurnar



ANNA OH






9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir að bjarga heilsu minni með því að rita nýjan pistil!
Gaman að sjá allar myndirnar og þetta var sko ekkert of langt;)

Nafnlaus sagði...

Léttir mér líka lundina í heimaprófspásu;) alltaf gaman að lesa bloggin þín Anna mín:D

Nafnlaus sagði...

hae anna min
tid erud saetar ad vanda!

Nafnlaus sagði...

Anna af hverju smakkarðu ekki sniglanna. þú ert ekki töff!
Mér finnst þú samt vanalega töff, bara ekki töff að vilja ekki smakka:)
Jeje
excel er frábært!

Anna Hansen sagði...

HEY

Víst er ég töff.. ég er alltaf töff

Þeir litu út eins og sniglarnir sem skríða um hérna úti.. ég er ekki tímon eða pumba menn eiga ekki að borða skordýr!!!! ;)

Nafnlaus sagði...

hata þetta kommentakerfi... en ég elska excel og líka tilhugsunina um þig í rappbattli
berglind

Anna Hansen sagði...

Aðalspurningunni er samt enn ósvarað..

Gat einhver fundið eddu á myndinni?

Unknown sagði...

Hahah já ég sá hana um leið, stóru fæturnir komu upp um hana...

Nafnlaus sagði...

kvittkvitt og hafðu það gott og haltu áfram að skemmta þér svona vel! :)