Jú gott kvöld dömur mínar og herrar, Frk. Hansen er sest hér að skrifum á þessu yndislega miðvikudagskvöldi, í svengri kantinum því að ég borðaði ekki svo mikið af kvöldmatnum..í matinn fengum við fiskrétt að hætti kvensanna í eldhúsi Den Rytmiske Højskole, fisk í sósu sem bragðaðist eins og Frískamín... ekki beint vont kannski, en skrýtið!
Í síðustu viku var líka soðin smálúða.. jájá heilli lúðu bara hent ofan í pott og svo á fat með roði, uggum, augum og det hele!! Ógeð! Nicolas fékk svo 20 dkk fyrir að borða augun.. frekar lítið myndi ég nú segja hehe.. 200 kall;)
En hvað um það, ætla að byrja á því að óska þessari hérna gellu til hamingju með afmælið:)
Já hún Telma Ýr, mussan mín, er nefnilega 21 árs í dag, og veit fyrir víst að hún kíkir reglulega hingað inn þó svo að hún kvitti nú aldrei... suss suss;) Til hamingju elskan mín
Svo er ég alveg að fara að setja inn myndir... bæði þær sem ég lofaði fyrir viku síðan (lélegt!) og frá síðustu helgi...
Tók nóg af myndum þá nefnilega, á föstudeginum var midtvejsfest, þar sem við klæddum okkur upp á og borðuðum flottan mat með kennurunum, og enduðum kvöldið ned i caféen þar sem við kepptum við kennarana í danskeppni... mjög fyndið að sjá þau dilla sér, og einhvern veginn náðu kennararnir að snúa þessu upp í eitthvað strippshow.. meiri perrarnir ;)
Heidelbach byrjaður að rífa sig úr
Strákarnir gátu nú ekki verið minni menn
Ég og Asger að meika það í dansinum..
Laugardagurinn var svo bara frekar rólegur, fór að mestu leyti í soundcheck þar sem að á sunnudaginn var familie/vennedag hér í skólanum, þar sem fjölskyldu og vinum gafst tækifæri til að skoða skólann og hvað við erum búin að vera að gera, hlusta á okkur syngja það sem við erum búin að æfa í kórtímum og svo voru tónleikar í salnum þar sem öll sammenspilsholdin spiluðu 2 lög hvert. Mjög vel heppnaður dagur, geggjað veður og fullt af fólki og ég náði að klára allt mitt stressLAUST;) örugglega í fyrsta skipti á ævinni, gott það! söng meira að segja einsöng með kórnum og allt gekk bara eins og í sögu..
Kórsóló..
Heromachima söngkonurnar
Um kvöldið borðuðu svo allir saman og eftir það var Jam-kvöld í caféinu þar sem fritidsböndin spiluðu og fadølið rann ljúflega niður:)
Babs the bartender með hjálparhellunum sínum Rikke og Andreas
Svo verður eintóm gleði um helgina því að hún EDDA er að koma á MORGUN!!!! Víííííííííí get ekki beðið eftir að hitta hana og knúsa og auðvitað Hörpu líka:) egg í holu! hahaha
Löng helgi í skólanum svo að ég kemst strax til þeirra vúhú.. þetta verður æði!
Svo sætar þessar elskur:)
Annars er ég í algjöru sykursjokki þessa vikuna, fékk nefnilega pakka frá mömmu með fullt af íslensku nammi, þristum, appollo lakkrís, djúpum og trompi... mmmmmm nammi namm... skil ekki að danir séu ekki búnir að átta sig á hvað lakkrís og súkkulaði passa vel saman, ótrúlegt alveg ! Svo fæ ég líka íslenskt nammi frá Hörpu og Eddu sem ég bað þær um að kaupa fyrir mig.. aðeins farin að sjá eftir því núna eftir pakkann frá múttu.. Ekki láta ykkur bregða þó ég verði orðin 100 kíló við heimkomu.. bara meira til að elska ekki satt;)
En ástæðan fyrir pakkanum var sú að það virðist bara meira vesen en að hitta forseta Bandaríkjanna en að kaupa linsur í þessu landi.. alveg magnað, vantar alltaf einhverjar upplýsingar og svo þarf maður að binda sig í að minnsta kosti hálft ár og eitthvað rugl... þannig að ég fékk bara mömmu og pabba til að kaupa þær á Íslandi og senda mér út, mikið auðveldara.. fékk líka myndir af litlu sætu hvolpunum hennar Lukku sem ég missi af, bara krúttlegir..
Rikke er farin að skrifa niður gullkorn sem detta út úr mér þegar ég er að sýna snilli mína í dönskunni.. Svona þegar ég spyr hvort við eigum ekki að kaupa "gule bønder" (þýðir víst gula bændur en ekki baunir hehe) og að það séu 10 skrev í eitthvað (10 klof en ekki skref ) ;) Gaman að því haha..
En já... myndirnar detta inn strax eftir helgi, vona að þið hafið það gott og gaman um helgina elskurnar..
Annan kveður með fullan munn af gulum bændum:)
9 ummæli:
Haha þú ert snilli Anna mín:D Haha
Góða helgi sömuleiðis;) Verð með ykkur í anda þarna í Köben!
Þú ert snillingur!! :)
Sorry hvað ég er eitthvað löt við að kvitta, reyni að fara að bæta úr því, vona að þið hafið það gott og gaman um helgina! :)
jám! Þá hef ég eitthvað til að knúsa þegar þú kemur heim aftur! ;*
kvittkvitt
...ekkert smá skemmtilegt blogg! oh, svo heppin að vera þarna í góðum fíling, ég er eins og er að deeeeyja úr kulda...sit inní tíma í háskólanum í þykkri peysu og jakka og næ bara ekki upp neinum hita:/
mjög gaman að lesa bloggið þitt, kíki alltaf reglulega...bíð spennt eftir myndum;) skemmtu þér vel með eddu hjá þér, kærkv. Elín Áslaug
bloggggggggaðu.....berglind
Létt ábending um linsukaup!
Kíktu á heimasíðuna visiondirect.com
Þar er hægt að panta allar mögulegar tegundir af linsum og þær geta verið ca. þrisvar sinnum ódýrari en á Íslandi - þó maður borgi sendingagjöld og toll!!
Kv. Anna Lilja
Nei Anna, nú gengur þetta ekki lengur! 16 dagar í óvissu er ekki að virka fyrir mig! Mig vantar lesefni í félagsfræði takk! NÚNA
Kristín Gjé
Skrifa ummæli