miðvikudagur, 10. október 2007

Ehemm...

Úbbosí... afsakið töfina:)


Úff 11 dagar frá síðasta bloggi og frá mörgu að segja.. where to begin!?

Tökum þetta bara í réttri röð.. Varúð! gæti orðið langt..



Þar síðasta föstudag var technopartý hér í skólanum, þannig er mál með vexti að það var hér maður alla vikuna að nafni Ref, sem er technoplötusnúður, og hann hélt tónleika á föstudagskvöldinu. Pínu undarlegur maður, ekki alveg eins og fólk er flest og svo er hann líka bara með eina tönn í efri góm.. mmm lækker!

Og við sjáum mynd:





Sumir tóku þetta með trompi og skelltu sér í föt sem hentuðu tilefninu og settu upp endurskinsmerki og fleira fínt




Að sjálfsögðu var Drinkz-klub fyrir tónleikana.. Langþráð stund hjá Stine en hún fékk loksins inngöngu eftir að hafa sent inn skriflega umsókn. Hér má sjá hana með reglur klúbbsins.


Strákarnir í húsi 1 tóku þetta svo með trompi og keyptu glowsticks sem vöktu að sjálfsögðu mikla lukku.


Andreas var með glowsticksderhúfu, svaka töff hehe



Nú á laugardeginum höfðu Morten og Fie skipulagt keppni milli húsa í alls konar "íþróttagreinum".
Meðal keppnisgreina voru bordfodbold, tennis í Nintendo Wii, borðtennis, reiptog og alvöru fótbolti. Ég keppti ásamt Gerhard í tennis, og því verður ekki neitað að þessi tölva er fáránlega sniðug fyrir tölvusjúk börn, því ég var með harðsperrur í höndum og síðum næstu daga á eftir! ;) mæli með þessu, ótrúlega gaman..



Go hus 6!


Á laugardagskvöldinu var svo bara hugguleg stemning, við sátum krakkarnir í húsi 7 og sötruðum hvítvín og höfðum það gott. Síðar um kvöldið varð svo smá drama sem skapaðist út af pönnukökubakstri þar sem Stine lærði mikilvæga lexíu hahaha...sumir höfðu nefnilega fengið boð en aðrir ekki, og eins og maður á náttúrulega að vita að þá tekur maður ekki vini sína með þegar manni er boðið í pönnukökur múhahaha.. endilega heyrið í mér ef þið viljið heyra söguna ;)




Mánudaginn eftir var svo starfsdagur hjá kennurunum og í staðinn fyrir venjulegan kennsludag var okkur skipt í 2 hópa, helmingurinn af sammenspilsholdunum voru með hljómsveitaræfingar og hinn helmingurinn fór í STOMP tíma! Rosa gaman, fengum gestakennara til okkar, trommuleikari sem hefur æft með hinum og þessum stomphópum, mjög klár og kenndi okkur smá takta:)


Þriðjudagurinn var svo líka óhefðbundinn þar sem að eftir hádegi var teambuilding úti í skógi, keppni milli hljómsveita í alls konar þrautum, t.d. að keyra hvort annað í hjólbörum yfir brú með bundið fyrir augun, koma hvoru öðru í gegnum kaðlanet án þess að snerta og fleira í þeim dúr.


Ekki laust við að ég hafi fengið smá flashback frá því að vera í skátunum, hehe ;)










Á þriðjudagskvöldinu var svo partý í húsi 7 vegna þess að Palli átti afmæli og var um leið að kveðja okkur. Frekar skrýtið að einn af íslendingunum sé farinn heim.. men sådan er det


Palli í uppáhaldsfötunum sínum



Restin af vikunni var svo bara ósköp róleg, frekar skondið samt á fimmtudagskvöldinu, fengum við stelpurnar þá frábæru hugmynd að horfa á bíómynd saman og Dancer in the dark, Lars von Trier myndin sem Björk leikur í, varð fyrir valinu. Þeir sem hafa séð þessa mynd vita að hún er ótrúlega erfið að horfa á , rosa sorgleg og þung, og ég skil eiginlega ekki hvað ég var að spá að horfa á hana með þeim því ég hef séð hana áður! Kvöldið endaði að sjálfsögðu með því að við sátum allar saman í sófanum og grenjuðum yfir henni hahaha... þvílíkt harðar gellur;)





En þá að síðustu helgi:) Á föstudaginn var lagt í hann með rútu frá skólanum til Köben vegna þess að á laugardeginum var búið að skipuleggja eitthvað sem hét "Musik uden grænser", fjölmenningardag þar sem fólk frá mismunandi menningarheimum hittist og dansaði og söng saman. Við lögðum þó af stað degi fyrr vegna þess að Andreas, frá húsi 1, var að hita upp á tónleikum með hiphop hljómsveit sem heitir Nobody Beats the Beats, og var því tilvalið að við kíktum þangað fyrst við vorum á annað borð að fara inn í stórborgina.



Eftir tónleikana var svo kíkt í "byen", en Lasse, bróðir hennar Rikke, sem kom með okkur stjórnaði hvert við færum og þar sem hann er hommi þræddum við Rikke og Babs aðal homma og lesbíustaðina með honum hahaha.. Mjög skemmtilegt kvöld, og má með sanni segja að Barbara hafi gert allt vitlaust á lessustöðunum! Voru ekki lítið skúffaðar gellurnar yfir að hún væri gefin fyrir hitt kynið:)


Systkinin



Á laugardeginum ákvað ég svo að skrópa í þessu Musik uden grænser ( engar áhyggjur það var ekki skyldumæting;) ) og eyddi deginum í staðinn í að rölta um Kaupmannahöfn í bongóblíðu, sól og 20 stiga hita! Ekki slæmt það svona í byrjun októbermánaðar!


Kíkti með Rikke í búðir þar sem hún verslaði frá sér allt vit, ég var samt skynsöm og passaði peningana mína ;) Svo skelltum við okkur í kanalsiglingu þar sem mamma hennar joinaði okkur og enduðum svo í kvöldmat heima hjá mömmu hennar og pabba, en þau búa í geggjaðri íbúð á efstu hæð í svona mjóu veitingastaðarhúsi í Nyhavn.. Æðisleg staðsetning! Ofsa gott að fá "mömmumat", smakkaðist reyndar að sjálfsögðu ekki jafn vel og maturinn sem mamma mín gerir, en það næsta sem maður kemst því hér:) En þetta var "en virkelig dejlig weekend", afslöppuð og fín :)


Svo er bara alltaf nóg að gera í skólanum, gengur enn mjög vel í hljómsveitinni minni. Einn af gítarleikurunum, Jonas, er samt hættur í skólanum út af einhverjum peningamálum, frekar leiðinlegt, en við björgum okkur án hans.. Erum með 3 ný frumsamin lög í vinnslu og svo einhver cover númer líka, svo er stefnan að fara aftur í stúdíó í næstu viku og taka fleiri upp.. ég læt vita þegar það verður tilbúið:) Svo eru ekki nema 6 vikur í tónleikaferðalagið okkar þar sem við munum ferðast um Fyn.. spennandi!




Fyrir þá sem áttu í vandræðum með að ná í lagið síðast er hægt að hlusta á það hér:



www.myspace.com/heromachima



Svo er ég komin í 3 fritidsbönd líka, utan skólans.. eitt með stelpunum, Korean Chicks, þar sem ég er gítarleikari haha.. spilum allar á eitthvað sem við kunnum ekki alveg.. svo eitt þungarokksband þar sem ég syng og er eina stelpan innan um svaka rokkara:) og svo að lokum eitt með Helga frá Íslandi, spilum þar lög sem hann hefur samið.. svo er eitt band til viðbótar í bígerð, Kelly Clarkson tribute með Babs hahaha... það verður gaman:)

Svo er fullt fullt af hlutum framundan til að hlakka til..


Þarnæstu helgi kemur hún EDDA mín hingað út og við eyðum helginni með Hörpu! Hlakka sko alveg úber mega mikið til að hitta þessa elsku!! :)

Nú svo helgina eftir það kemur hún BIRNA mín til mín hingað í skólann og eyðir helginni með mér hér! Hlakka líka ótrúlega mikið til að sjá hana!!


Telma kemur svo sennilegast til Köben í nóvember, mamma og Fríða systir í byrjun des og mér heyrist Alda Marín eitthvða vera að velta því fyrir sér.. allir að koma til Danó:)

Svo er midtvejsfest hér á morgun... búin að vera hér helminginn af tímanum!:o
Frekar spúkí tilhugsun, ekkert smá fljótt að líða!

En jæja.. ætli það sé ekki best að hætta þessu blaðri, þetta er orðið svo langt að það nennir örugglega enginn að lesa þetta allt saman:) En ég hef ekki tíma til að henda öllum myndunum inn núna, geri það við fyrsta tækifæri..

*****


En ég enda á því að segja ykkur frá samtali sem Andreas átti við manninn á pizzastaðnum einn sunnudag ekki alls fyrir löngu.. Maðurinn sem rekur staðinn er innflytjandi, frá Indlandi held ég og er ekki sá klárasti í bransanum..



Klukkan var 2 síðdegis og Andreas tók að sér að panta þynnkupizzu fyrir okkur í húsinu...



Andreas: Góðan dag, ég ætlaði að panta hjá þér pizzu og fá sent upp í Den Rytmiske Hojskole..

(Pizzumaðurinn tekur niður pöntunina og kemur svo með ræðu um það að þeir bjóði nú ekki upp á heimsendingar fyrir hádegi um helgar... ég minni lesendur á að klukkan var 2 síðdegis)

Samtalið heldur áfram...


Pizzumaður: Hversu fljótlega viltu fá pizzurnar?

Andreas: Uuuu... eins fljótt og hægt er bara! ( Við hverju bjóst hann, eftir 5 tíma?)



Löng þögn...



Pizzumaður: Já...ég veit ekki alveg hvað þetta tekur langan tíma.. heyrðu, má ég ekki taka símann hjá þér og láta þig vita hvað er langt í þetta?"


Andreas hikar aðeins en gefur honum númerið og þeir kveðjast.

Nokkrum mínútum hringir svo síminn hans og viti menn, það er hann, rosa ánægður með sig kominn með lausn á þessu öllu saman..


"Heyrðu, ég kem bara með pizzuna þegar hún er tilbúin!!"

*****

Hahahahaha.... þvílíkur spekingur:)

Later dudes:)

ANNA OH

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

haha, já, þetta var soldið langt blogg! En ég nennti nú samt að lesa það, maður verður að vita hvað er að gerast hjá þér;) Þetta er greinilega bara djammdjammdjamm, svaka stuð! Haltu áfram að skemmta þér svona vel og blogga vel um það;)

Nafnlaus sagði...

Haha klári pizzamaður! minnir mig bara á gelluna í Bárubúð á Dalvík...en það er önnur saga...;)
Ég nennti sko alveg að lesa allt bloggið upp til agna og hafði gaman af:D
Ótrúlegt að þú sért hálfnuð! tíminn flýgur!!!
Og mig langar til Danó...
Hafðu það gott dúllan mín:)

Nafnlaus sagði...

gaman ad tad sé svona mikid fjor hjá ykkur ;)!! ég sá ad tú hafdir verid á Police tónleikunum... ég hefdi nú turft ad vita tad tá hefdi ég nú reynt ad kíkja á tig, var nebbla ad vinna á teim ;) Eda vann vid innganginn og svo var eg bara á tonleikunum tegar teir byrjudu ;)!!

Nafnlaus sagði...

Las ALLT! Var líka að hlusta á lagið í fyrsta skiptið! Mega fedt lag ;) Búin að fara í bónus og kaupa smá birgðir ;) ég fékk mér bara kvef hérna på island ;( bara glatað, en fer alveg að koma út í blíðuna aftur!! síjú verí sún, hlakka til að sjá þig honey ;*

Nafnlaus sagði...

Mjög gott blogg og ég las það alt! Fyndi pítsukall hehe. En haltu áfram að skemmta þér svona vel:)
kv.
Lilja

Anna Hansen sagði...

Guðrún: You know me, alltaf stuð á djammdívunni ;) ehe

Ösp: Hmmm.. mig langar að heyra söguna:)

Elísabet: Já, við vorum einmitt fengin í það að vinna við að setja allt upp fyrir tónleikana.. og fengum svo miða í staðinn.. fór 2 ferðir til Aarhus, en var ekki með númerið þitt! Hefði verið gaman að hittast:)

Harpa: Hlakka líka mega til að hitta þig! Ég kem seinnipart fimmtudags til þín, það er frí á föstudeginum.. En mm ég hlakka til að fá íslenskt gotterí, þarf samt aðeins að uppfæra listann, heyri í þér áður en þú kemur út aftur:)

Lilja: Já sko ég er ennþá duglegri en þú að blogga.. það er markmiðið að halda í það:)

Nafnlaus sagði...

Hæj ;* gott að sé gaman hjá þér! En heyrðu,,? Mamma er held ég búin að senda eitthvað íslenskt, djúpur, þrist og appollo lakkris til þín það er á leiðinni :) Sjáumst!

Nafnlaus sagði...

Heij já ? Við erum eitthvað að pæla í hótelum í köben núna.. ! Heyrum í þér. .!

Nafnlaus sagði...

'eg hlakka svo til ad koma til tin snullan min!

eg er annars bara i frii i dag, tarf held eg ad fara ad leita mer hjalpar vegna afengisvanda!