Röltum aðeins um á laugardeginum og komumst að því að það er Pakkhús í Helsingør, selfyssingunum í okkur til mikillar gleði
Svo var það Linjefagsuge í þarsíðustu vikuHéldum tónleika og fórum í stúdíó og tókum upp blandt andet
øl! øl! øl!
Vikan leið hjá og skyndilega var kominn föstudagur, sem þýddi Náttfatapartý í húsi númer 2
Úfið hár og ferskleiki í fyrirrúmi
Svo skyndilega var kominn laugardagur sem þýddi Diskópartý í húsi númer 7
Álpappír á lofti og veggjum, diskókúla og ljós, diskóföt og diskótónlist:)
FABULOUS!
Setti inn tengla á restina af myndunum hér til hliðar..
Edda mín, eins og þú sérð hef ég verið ótrúlega dugleg að láta taka myndir af mér, geri allt fyrir þig eins og þú veist:)
Annars er það helst í fréttum að ég er komin með nýtt gælunafn sem þið þurfið að læra, hér heiti ég nefnilega Anna Oh ( sagt Anna Ó).
Ástæðan fyrir því er sú að danir segja nafnið mitt ENNE en ekki ANNA, og þegar ég fór að segja krökkunum hvernig ég segi það fóru þau alltaf að syngja Boten Anna, lagið sem við dýrkum öll og dáum hehe.. Svo kunni Rikke mín ekki textann og söng alltaf "hun hetar Anna, Anna Anna Oh..." og eftir það var ekki aftur snúið haha.. En þetta er mjög jákvætt þar sem við erum 3 Önnur hér og þar á meðal önnur Anna H, svo að þetta auðveldar fólki aðeins lífið:)
Sambúðin með Rikke gengur ennþá eins og í sögu, við erum álíka ligeglad með að henda fötunum okkar á gólfið og svona svo að það er mjög þægilegt hahaha.. við erum reyndar báðar alveg jafn ömurlegar að vakna á morgnana, það er eini gallinn við þetta.. Stillum báðar símann okkar 3svar sinnum (ég er vön að gera það til öryggis ef ég skyldi slökkva óvart í fyrsta) og svo snúsum við báðar á 5 mínútna fresti í klukkutíma! Missum meira að segja stundum af morgunmatnum haha... meiri aularnir:)
Í síðustu viku átti ég svo uppvaskstjans eftir kvöldmat, en þegar ég kom inn í herbergi eftir það beið mín þessi líka fíni pakki frá henni á rúminu mínu..
Merci súkkulaði, en merci er auðvitað franskt orð yfir takk
"Fordi du er verdens bedste roommate"
GERI AÐRIR BETUR! ;)
Kíkið á myndirnar people
Anna Oh - verdens bedste roommate kveður að sinni!
15 ummæli:
Oh Anna eða Anna Oh, þú ert svo mikið æði. Mjög skemmtilegar myndir!
Og vá hvað húsið hennar Hörpu er fínt, ég hlakka til að koma!!
Algjör dúlla þessi herbergisfélagi þinn.
Haha alltaf gaman á fá nikkneim:D og já fensí hús maður! harpa lætu nú ekki bjóða sér neitt slor:)
BTW. hvað var númerið á almerunni þinni Harpa ef þú lest þetta? og þið hinar ef þið munið?? er ekki frá því að hann sé orðinn nágranni minn nefnilega:)
Hæ Anna mín Óóóó....
Skemmtilegar myndir. Sé að þú skemmtir þér vel og fallega - ha ha:)
Jeij, blogg og fullt af fancy myndum;)
Þú verður orðin vel æfð í að fara í búningaparty...spurning að halda eitt stk svoleiðis eftir áramótin!
En nr á almerunni er UT-072 ef minnið svíkur ekki...Ölli, þú gætir nú boðið honum í kaffi og sagt honum ævisögu gripsins;)
debet-kredit kveður að sinni!
tu ert svo sod kruttid mitt
Já húsið er geggjað sko;) en hahaha... það þýðir lítið að spyrja mig út í bílnúmer haha.. varla að ég nái að muna mitt eigið
En Vera mín ég skemmti mér alltaf fallega;) svo stillt og góð
En Björk ég á einmitt afmæli rétt eftir heimkomu, það verður eitthvað flott þema og SKYLDA að mæta í búning! svooo gaman
Din mor er sød Unnsí:)
Flott nickname Anna Oh.. og ótrúlega gaman að skoða myndirnar frá þér.. Held bara að þegar þú komir til landsins þá kennir þú okkur Íslendingum hvernig maður klæðir sig upp fyrir þemapartý, sýnist þú allaveganna verða komin með gráðu í því eftir þessa önn.. en hlakka til að lesa meira af þér Anna Oh.. og þú og Harpa knúsið hvor aðra frá mér ... ;*
Tóku Harpa og co. með sér íslenskt kók til danó eða?
geðveika íbúð/hús harpa! jisús!!!
en já damn hvað þú er lækker í öllum þessum outfittum! ég pant halda þemaparty hér hjá mér þegar þú kemur! og það verður sko ekkert slor! hvað segiði um ofurhetjuþema?
knús á þig anna mín! saknaín!
ps eg fæ alltaf í magann þegar ég skoða bloggið þitt, já og tár í augað yfir því að vera ekki lengur í höjskole :S
Hahaha held að Harpa hafi verið búin að komast að því að hún gæti fengið svona kókflöskur í Fakta.. 2 lítra ekki einn og hálfan..
Knús og sakn á móti Birna mín.. þú kemur í heimsókn og færð smá af þessu aftur í æð;)
Og já líst vel á ofurhetjuþemað haha:)
ég vil eiginlega blogg... já og myndir!
Kv. Kristín Gjé
Hæj! Herruherruherru! Það eru komnir hvolpar!! 2 vikna núna en ókei! Þeir verða pottó farnir þegar þú kemur.. Leiðingleegt ..:( Heyrðu . við sjáumst .. erum að skoða hótel í köben! Er að fara að tékka á því hvenær ég byrja í prófum! ;* <3 sjáumst
Meeeen lata blogg kona:) Þú átt að skemmta mér í próflestri! en já ég vil fá sjá blogg þú ert næstum því latari en ég að blogga:)
Halló! Blogg!!...;)
Skrifa ummæli