Hej kære venner...
ákvað bara að henda inn einu bloggi til að láta ykkur vita að það eru loksins komnar nýjar MYNDIR:) veiveivei .. veit að Berglind mín bíður allavega spennt:) fullt fullt af myndum! skrifaði samt ekkert við þær, geri það kannski eftir helgi.
Tenglarnir eru allir hér til hliðar.. svo henti ég líka inn einhverjum myndum frá í sumar af símadjömmum, getið fundið þær inni í möppunni.
Tenglarnir eru allir hér til hliðar.. svo henti ég líka inn einhverjum myndum frá í sumar af símadjömmum, getið fundið þær inni í möppunni.
Annars langaði mig líka að deila með ykkur hvað ég er ótrúlega ánægð með sammenspilsholdið mitt, þ.e. hljómsveitina sem ég æfi með og fer á tónleikaferðalag.. Við erum komin með einhver 5-6 lög nú þegar og þar af eitt samið af okkur sjálfum ;) og það gengur bara alveg ótrúlega vel..
Uppáhaldslagið mitt, og okkar allra held ég, er gamalt Mercury Rev lag sem heitir Holes.. Mjög spes lag, en það er svo gaman að spila það og við erum búin að gera svo margt skemmtilegt við það. Martina, kennarinn okkar er t.d. búin að lána mér og Marie, sem syngur líka, tvo lítil hljómborð sem við spilum á meðan við syngjum. Það sem ég spila á er svona lítið Casio barnahljómborð eins og maður lék sér alltaf með þegar maður var lítill, og Marie spilar á Micro Korg, sem er hljómborð sem gerir alls konar skrýtin og speisuð hljóð hahaha.. svo er einn gítarleikarinn með svona mixer sem gerir gítarhljóðin hálfskrýtin og það eru alls konar óhljóð í laginu, en það kemur svo ótrúlega flott út!!
Love it.. ;)
Getið heyrt orginalinn af laginu hér :
Okkar útgáfa er sko miklu flottari, mikið betur sungið auðvitað hehe og raddað og svona..
Annars er spennandi vika framundan, næsta vika er nefnilega "linjefagsuge", en þá er hefðbundin stundaskrá brotin upp og við verðum eiginlega bara á hljómsveitaræfingum alla vikuna, svo halda allar hljómsveitirnar tónleika í salnum til að sýna hinum afraksturinn og endum svo á að taka upp eitt lag:) Svo verður líka farið í undirbúningsvinnu á tónleikaferðalaginu, þó að það sé nú samt ekki fyrr en í nóvember...
Þetta verður æðisleg vika..
Aldrei að vita hvort að ég fái einhvern til að taka smá brot af tónleikunum upp svo að þið getið fengið smjörþef af því sem ég er að gera hérna..
Annars er búið að vera jam kvöld í kvöld, niðri í caféi, þar sem maður getur leikið sér og spilað og sungið fyrir hina... mjög hyggeligt:)
Svo er það hittingur með Hörpunni á morgun veiiiii...
En ég enda þetta á mjög fyndnu myndbandi af Stine frá því í eldriborgarapartýinu...
Hluti af hennar gervi voru nefnilega lafandi brjóst hahaha...
Men nu går jeg i seng..
Ha' en god weekend,
knus og kram Anna:)
6 ummæli:
hahha magnað myndband!
en þú ættir að sjá hvað ég er orðin klár að valta!
hæ sæta spæta, ég átti mikið með að lesa allt bloggið. Greinilega of langt síðan ég kítki síðast. En ég hef góða afsökun ég var að koma frá Barcelona:) úr sól og hita meira en 30 gráðu hita:)Þetta var yndi En keyptu þér með bara svona geymi, svona utanáliggjandi harðan disk. Kostar ekki svo marga penge:) og þá geturðu geymt allt dótið þar:) vona að tölvan fari ekki að gefa upp öndina á þig. Bíllinn okkar virðiast hins vegar að vera gera það þessa daganna. Veit ekki hvar við værum ef við hefðum ekki þinn:) kv. Lilja
Hæ elskan, smá kvörtun hérna, mér finnst vanta fleiri myndir af þér. Vertu duglegri við að láta krakkana taka mynd af þér, ekkert asnalegt við það og svo verður svo gaman að eiga þær þegar þú kemur heim;)..missjú!
Hæ hæ vildi bara kvitta. Ég les öll bloggið þín og fylgist vel með þér elsku Annan mín.
Kiss kiss og klem
Júlía G.
oh, svo gaman að heyra að þú skemmtir þér svona vel!!
er í leiðinlegum tíma og gaman að kíkja hér inná og lesa hvað þú ert að gera skemmtilegt!
ætla að skoða myndirnar, kkv. Elín
Mér líst vel á það hvað þú ert dugleg að blogga! Haltu því áfram og hafðu það gott Anna mín :)
Stína fína
Skrifa ummæli