Já þá er víst aftur kominn mánudagur, vika frá síðustu færslu og margt búið að gerast. .
Það voru tvennir tónleikar hér í vikunni, á miðvikudaginn kom strákur að nafni Morten, gamall nemandi hérna, og hélt tónleika með Anniku vinkonu sinni. Leiðinlegt að segja það en hann var eiginlega bara hálf glataður, hún var með mjög flotta rödd reyndar en lögin þeirra beggja hálf leiðinleg bara og þau ekkert rosa klár að spila á gítar.. geta ekki allir verið frábærir, he he:)
Á föstudaginn var svo aftur á móti dönsk söngkona á besta aldri með tónleika, Lis Sørensen heitir hún og er víst voða fræg. Tónleikarnir með henni voru mjög góðir, rosa góð söngkona. Mætti líka fullt af fólki, um 150 manns og svo við krakkarnir, frekar fjölmennt bara miðað við þetta bæjarfélag held ég:) Mér leið samt pínku eins og ég væri útlendingur á Bjögga Halldórs tónleikum, þegar hún tók þekkta slagara og allir sungu með:) en skemmti mér samt að sjálfsögðu mjög vel.

Skellum inn mynd af kellunni:)
Á laugardagsmorguninn lögðum við svo af stað til århus aftur til að fara á tónleikana með The Police eins og ég talaði um í síðustu færslu (vá var búin að skrifa snakkede om í staðinn fyrir talaði um, fyndið:) )
Tónleikarnir voru mjög góðir, um 45.000 manns á svæðinu held ég og við í innsta hring:) újee

Mér reyndar finnst lögin þeirra ekkert spes, jú jú þau eru alveg mörg góð en mér finnst þau vera endalaus endurtekning, bara endalaust viðlag aftur og aftur, maður er alltaf farinn að bíða eftir að næsta lag komi.. En samt sem áður mjög gaman að sjá þá á tónleikum og rosa stemning!
Bömmer kvöldsins er samt án efa sá að þegar við komum fór ég inn á undan með Carinu, einni af stelpunum, því að hún þurfti svo nauðsynlega á klósettið, en hin ákváðu að bíða fyrir utan eftir nokkrum sem voru ekki komin enn.. haldiði ekki að þá hafi fréttirnar á stöð 2 komið og tekið viðtal við krakkana, og langaði virkilega að tala við Íslending, en neinei, kjáninn ég var nýfarin inn! Ég sem hefði pottþétt komið í fréttunum, ég meina hver vill ekki taka viðtal við íslensku gelluna sem setti upp grindverkin og sölubásana á tónleikasvæðinu ég bara spyr? Þar fóru mínar 15 sekúndur af frægð, hehe:)
En til allrar hamingju var hann Magni okkar allra á svæðinu svo að þetta bjargaðist.. gott að við getum skipst á að halda fréttavaktina hérna úti, múhaha..
Getið séð þetta hér -> http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=&programID=d93d6ddc-f3df-4c27-90e2-28d49738f306&mediaSourceID=3c9d7357-5d12-4803-90ce-c9b21dbda558&mediaClipID=c676cbdb-cec7-47bf-8155-8a3615dfb74f
Kom svo reyndar ekkert viðtal við krakkana, því miður, en ef vel er að gáð má sjá 2 stelpur í gúddí fílíng að dansa, önnur þeirra er í hvítri og blárri regnkápu.. Það eru Stine og Emilie! Gaman að því...
Eftir tónleikana kíktum við svo aðeins í bæinn í århus, það var einhver festival vika þar svo það var troðið af fólki og ekkert neitt spes fjör.. svo fengum við fría gistingu, Mikkel er þaðan og það vildi svo heppilega til að vinur hans sem er að leigja hús þarna var ekki heima um helgina svo við fengum að gista þar.. nóg pláss, jafnvel þó að við værum 15 krakkar.. Mjöög ljúft..
Annars er allt gott að frétta bara, ég var að fá þær skemmtilegu fréttir að hún Edda mín er búin að panta ferð út 18. október!! Hlakka ekkert lítið til að hitta hana, farin að sakna hennar ansi mikið:) vívíví.... Svo verða víst líka komnir hvolpar þegar ég kem heim aftur, Lukka litla hvolpafull:) gaman gaman
Mig er líka farið að dreyma á dönsku, mjög skondið.. maður er svo klár sko;)
Takk annars fyrir öll kommentin, ánægð með ykkur.. það er SVO gaman að fá smá kveðjur þegar maður er svona í úglöndum..
En ég held að ég hafi bara ekkert meira að segja í bili, bara stay in school og keep on being cool my friends..
Set svo inn myndir innan skamms!
Set svo inn myndir innan skamms!
Yours truly Annsen
11 ummæli:
Hey Lis er uppáhalds söngkonan hennar mömmu, gaman að segja frá því ;) Er alltaf að fylgjast með :)
Knus og kram,
Kristín Gjé
Sæl danska gella.
Í framtíðinni þá sé ég ykkur Jógvan fyrir mér syngjandi í gamla skólanum ykkar :) Hafðu það sem allra allra best og hils alle fra os her hjemme.
Vera
Hehe í alvöru? Fyndið:) Mér fannst hún rosa góð.. ég hefði kannski átt að fá eiginhandaráritun fyrir gömlu:)
En já Vera við Jöggi komum hingað einn daginn og tökum lagið saman, alveg bókað mál.. ;) Bið að heilsa á móti
Oj ég hefði nú bara ælt á Magna ef ég hefði séð hann;)
Gaman að heyra hvað er gaman hjá þér, ég hefði sko alveg verið til í að vera á Pólístónleikunum!
Mig langar til útlanda...
hafðu það gott honey
Ösp
æjeeeee viltu setja inn nýjar myndir??? ég er að tryllast á þessum skóla og bara tvær vikur búnar..... mig langar að fara og spila á píanó í staðinn fyrir stærðfræðiheimadæmi, reksrarhagfræðadiffrunardrasl og aðferðarfræði sem er nú bara til að drepa mann! komdu heim love you to pieces!!
Berglind
hey kommentið mitt hvarf!
allavega ætlaði að segja þér að ostasalatið vakti svaka lykke og má segja að ég hafi setið með það í fanginu allt kvöldið.
hafðu það gott sugarpuddle
Hæ Anna,
Bara gaman að lesa þig:) En damn að þú hafir farið á klósettið, heyrði einmitt Magna tala frá tónleikunum og hugsaði til þín!
Ha' det godt,
Björkin.
Haha Berglind meintirðu ekki að þig langaði út að spila á tambúrínu... múhaha
En ostasalatið er náttúrulega best í heimi, er Lilju ævinlega þakklát fyrir að hafa kennt mér þessa einföldu en vægast sagt æðislegu uppskrift:)
Hvernig væri að birta þessa ostasaltsuppskrift hér á netinu. Nei, ég segi bara si sona :)
Hæjj anna ! . Ég held að hvolparnir hennar lukku verði farnir í desember.. eða allavega gýtur 2 okt, 2 nóv, (1 mán) og svo 2 des.. þá fara hvolparnir.. :( enn jább
hafðu það gott þarna úti jebs!
Alltaf jafn gaman hjá þér! ekki frá því að það blossi upp smá öfund svona þegar maður les nýjar færslur!
ROck-n-Roll
írena
Skrifa ummæli