Ákvað að breyta aðeins út af vananum og skella inn sjóðheitu bloggi á sunnudegi en ekki mánudegi..
Allt frábært að frétta, tóm gleði og hamingja en vikurnar farnar að vera skuggalega fljótar að líða! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, þetta verður búið og ég á heimleið áður en ég veit af! úff...
Helgin er búin að vera alveg frábær, og voða þægilegt að vera bara hérna í skólanum og ekki að þvælast eitthvað eins og síðustu helgar..
Á föstudaginn var menningarkvöld inni í Vig, smábænum sem er hérna rétt hjá, og fórum við öll þangað uppeftir um kvöldið og einhverjir krakkar úr skólanum voru að troða upp. Eftir dagskrána var svo ball í "Forsamlingshuset" og mér leið eins og ég væri allt í einu komin inn í Djöflaeyjuna eða eitthvað, lengst aftur í fornöld því þetta var svo gamaldags og sveitó allt saman haha.. Svo til að toppa gamaldagsstemninguna var líka svona "glymskratti" á svæðinu, eins og maður kallar jukebox á góðri íslensku.
Mjög skemmtilegt allt saman.
Í gær var svo þemafest hér í skólanum sem herbergisfélaginn minn og ein önnur mjög hress stelpa skipulögðu, og var þema kvöldsins (h)eldri borgarar hahaha.. algjör snilldarhugmynd sem ég kem til með að nota einhvern tímann þegar ég held partý heima, alveg bókað!;) Og eins og með tógapartýið um daginn tóku allir þetta mjög alvarlega og ALLIR í búning.. Hugsa að það sé mjög langt síðan að Rauða Kross búðin inni í Vig hefur rakað inn eins miklum seðlum á einni viku!;) stórgræddu á þessu alveg..
En þetta var algjör snilld, mættu allir uppáklæddir í kvöldmatinn, svo um hálf átta leytið var mæting niður í Caféið og þar spiluðum við Bingó, eða Banko eins og það heitir á dönsku, eins og sönnum eldri borgurum sæmir haha... Ótrúlega skemmtilegt kvöld í alla staði:)

Tek ég mig ekki bara vel út svona með grátt í vöngum?

Sumir tóku þemað alvarlegar en aðrir, Anders tók sig til og rakaði á sig ekta gamalmennaskalla hehe
Dagurinn í dag byrjaði svo á því að við í mínu húsi áttum þann tjans að þrífa í Caféinu... yndislegt alveg hreint, allt úti í tómum flöskum og dósum, bjórslettur á gólfinu, sígarettustubbar úti um allt fyrir utan og svona.. hressandi:)
Annars er búið að vera geggjað veður í dag og sunnudagsklúbburinn búinn að afreka mikið, en í honum fær fólk tækifæri til að miðla sérstökum hæfileikum til hvors annars, til að mynda hvernig maður heldur 3 boltum á lofti í einu með höndunum, prjónar eða "skeitar" á hjólabretti. Ég lærði hins vegar að flauta svaka hátt svona með 2 putta uppi í munninum, flott það;) þarf að komast á fótboltaleik eða eitthvað fljótlega til að geta nýtt þessa nýju hæfileika hehe..
Myndir koma vonandi inn sem allra fyrst, tölvan er bara með einhvern kjaft við mig og segir að það sé ekki pláss fyrir meira á harða disknum, meira vesenið.. Ætla að reyna að kaupa tóma geisladiska á morgun til að setja þær myndir sem eru nú þegar á tölvunni á, þá rýmkar eitthvað á henni greyinu.. Þetta eru einhverjar 2-3 hundruð myndir og minnið á vélinni er orðið fullt, svo ég hendi þessu inn við fyrsta tækifæri! Þangað til verðið þið bara að láta þessar tvær duga!:)
En ég ætla að fara að koma mér aðeins út að hlaupa, hætta þessu hangsi.. svo bíður gítarinn eftir að ég æfi mig aðeins líka!
En vegna fjölda áskorana (Veru) skelli ég hér inn í lokin uppskriftinni að ostasalatinu fræga og góða..
*
Slatti af sýrðum rjóma
Kryddostar að eigin vali ( mæli með pepperoniosti og mexíkóosti, piparostur hefur líka gefið góða raun)
Paprika
Vínber
Rauðlaukur
Sýrðum rjóma slett í skál, ostar, paprika, laukur og vínber brytjuð niður í litla bita og blandað saman við, og voilá! Borið fram með kexi.. Best er svo að leyfa salatinu að standa í smátíma til að laukbragðið nái að koma fram.
*
Svo er stefnan næstu helgi að hitta á þessa hressu skvísu hér:

Kíkja kannski í Tivoli, kannski smá búðarölt og eitthvað meira gaman:) Vííííí...
En - þangað til næst
Knus og kram
-den danske pige-
8 ummæli:
HAHAHAHA!!!
Ég þekkti þig ekki á myndinni!!!!
Knústu hörpu frá mér og láttu hana knúsa þig frá mér! ;)
Síðasti ræðumaður sagði allt sem ég vildi sagt hafa!!!
Ciao;)
Haha flott, stelpur takið vel eftir þessari mynd því mig grunar að þetta sé fyrst og eina skiptið sem við munum sjá Önnu gráhærða. Grunar að stelpuskjóðan muni verða fastagestur í lit og klp og hugsanlega strp í framtíðinni;)
Þú ert samt voða virðulega svona.
En það er rétt hjá þér með að tíminn líði hratt, ekki nema 38 dagar þangað til ég kem;)
hahaha fönní!
gaman að höre í dig í gör min skatten sie bitte!
teik ker mæ einalvúmen
Hahaha... Greinilegt að nýja símadaman á Unique hár og spa er með þetta allt á hreinu :) lit og klp og strp;)
Þetta hljómar ekkert smá spennandi hjá þér allt saman! Gaman að lesa bloggin þín, það er allt svo spennandi sem þú ert að gera;)
HEhe þú verður fallegt gamalmenni;)
Annars bara að kvitta fyrir mig, hafðu það ógó gott áfram:D
Hell yeah maður er nú ekki lengi að ná lingóinu í hárgreiðslubransanum..hehe;)
Skrifa ummæli