..af því sem ég er að gera hérna:)
Eins og ég talaði um síðast er "Linjefagsuge" núna, þannig að vikan fer öll í hljómsveitina sem okkur var plantað í, mjög gaman:) Í hádeginu í dag var mín hljómsveit með tónleika uppi í sal fyrir hina í skólanum, spiluðum 3 af lögunum okkar og það gekk bara svona alveg ágætlega.. ég reyndar eitthvað stressuð eins og vanalega, aldrei nær maður að losna við það!! Óþolandi... ;)
En allavega.. þetta er lagið sem við erum sjálf búin að semja saman, vores selvskrevede nummer eins og daninn myndi segja:) Rikke mín var svo elskuleg að taka það upp á vídjó fyrir mig í dag, reyndar ekki mikil gæði en það heyrist allavega nokkurn veginn..
Nú er það bara spurning hvað ykkur finnst??? Set link á þetta hér fyrir neðan...
Á fimmtudaginn förum við svo í stúdíó og tökum þetta upp og mixum, reyni að henda þessu inn fullkláruðu líka seinna.. en þangað til.. enjoy:)
linjefagsuge tonleikar.wmv
þriðjudagur, 18. september 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
Hej Anna!
Þetta er mjög flott lag hjá ykkur, ekkert rosalega góð gæði á upptökunni, allavega ekki hérna í tölvunni hjá mér, en það verður gaman að sjá afraksturinn;) Þetta hljómar mjög spennandi skóli hjá þér, enda viðfangsefnin ekki af verri endanum:)
En endilega vertu í bandi ef þú átt leið til Århus, númerið mitt er 40632147:D
Hilsen,
Helga Lillian.
HÆ Anna... Rosa cool lag.. Ég rakst einhvern veginn hérna inn... Sá svo að þú ert í nákvæmlega sama Lýðháskóla og ég var í! Hann er bara frábær, þetta var allavega besta hálfa ár sem ég hef upplifað!:) Ertu með Ulla eða Mads sem söngkennara?
Allavega bið ég að heilsa Mads og Søren Børsting:) Bara njóttu þess í botn að vera þarna! Þetta líður sko alltof hratt:)
Kveðja frá Køben
Bryndís Erlings.
Helga: Takk fyrir það:) en nei gæðin eru ekkert svakaleg, en við vorum í stúdíói í allan dag og þetta kemur á veraldarvefinn innan skamms:) en ég læt vita ef ég verð á ferðinni aftur..
Bryndís: Já, ég vissi að þú hefðir verið hérna, þeir muna vel eftir þér hehe, var spurð hvort ég þekkti þig þegar ég byrjaði ;).. Þetta er æðislegur skóli, loving it:) En ég er hvorki með Mads né Ulla sem söngkennara, þau eru 3 núna og kennarinn minn heitir Nanna, rosa fín.. En Mads er húskennarinn minn, ótrúlega fyndinn kall:) hvað ert þú að brasa í Kaupmannahöfn?
Ég get ekki horft á lagið elsku anna mín, hlakka til að sjá þetta bara í heildinni... saknaðarkveðjur..
Já Mads er algjör dúlla... ég elskann:) Ég er flutt til Køben og er að læra Hjúkrunarfræði í Herlev:)Ætla að vera hérna næstu árin... Þú lætur þig vonandi ekki vanta á Gamel Elevdag næsta sumar:) Það er bara fjör:)
Þú ert nottla algjör töffari! cool lag og hlakka til að heyra það betur á netinu, á ekki að gera myndband og svona með!!?
já þetta er mjög töff lag ! æði
hæhæ
Ótrúlega flot lag og ofsalega gaman að sjá þig þarna:) Þannig að ég segi eins og Edda, fleiri myndir af þér... ekkert gaman að sjá hina jú plat það er ofsalega gaman. En hlakka til að heyra afraksturinn af stúdíóvinnunni:)
Vúhú, náði loksins að horfa á þetta.. ogég segi bara ertu ekki að grínast elsku anna mín. .þetta er ÓTRÚLEGA flott hjá ykkur.. geðveikt lag og ótrúlega flottur söngur... get ekki lýst því hvað ég er ánægð með þig elskan mín.. Bíð spennt eftir meiru frá ykkur.. og hlakka til að sjá þetta betur á Youtube..
Eg og íslenska rollan biðjum að heilsa þér.. ;)
Skrifa ummæli