mánudagur, 27. ágúst 2007

Titill

Hola todos..
Anna hin danska er mætt til leiks á mánudagskvöldi eftir frekar strembna helgi. Margt búið að gerast síðan ég skrifaði hér inn síðast.. Á föstudaginn bauð hús númer 2 í Togafest, og mér til mikillar undrunar sem íslendingi mættu ALLIR - og þá meina ég allir í búning, með lak vafið um sig hehe.. Mér fannst þetta mjög svo merkilegt því að þegar íslendingar eru með þemapartý er oftast ekki nema um 25%, ef það er þá svo há prósenta, af fólkinu sem mætir í búning. En þetta var mjög gaman og við enduðum inni í "hyggehuset", húsinu okkar, þar sem ég gerði grillaði samlokur ofan í gesti og gangandi.
Mjög skemmtilegt allt saman!


Eftir um 3 tíma svefn var svo ræs end sjæn til að missa ekki af rútu sem átti að flytja okkur í ferjuna til Aarhus, þar sem ég er búin að vera um helgina ásamt 24 öðrum úr skólanum að undirbúa tónleikasvæði fyrir næstu helgi. The Police, Sting og co. eru nefnilega með comeback tónleika næsta laugardag á Vestereng í Aarhus, svæði sem rúmar um 55 þúsund manns og það vantaði sárlega mannskap til að gera allt klárt. Þetta hljómaði allt mjög spennandi, skólastjórinn lét þetta hljóma eins og þetta væri smá vinna á laugardeginum, ekkert rosa mikið og við myndum fá vel borgað fyrir. En annað kom á daginn, og þreytta togaklædda liðið frá Den Rytmiske Hojskole endaði á að vera úti að vinna í 9-10 tíma á laugardeginum og 8 tíma á sunnudeginum í alls konar veðri, meðal annars við að girða allt svæðið af, ekkert smá svæði, bolta saman risastór járnskilti, setja upp pall fyrir fatlaða tónleikagesti, setja upp söluborð í tjöldum, ljós og rafmagn inn í tjöldin, setja upp innganginn og fleira og fleira skemmtilegt. Um kvöldið var upphaflega planið að kíkja eitthvað í miðbæ aarhus, en orkan var bara ekki svo mikil, en við sátum samt eitthvað frameftir með að drekka bjór og svona, bara róleg og góð stemning.. En á sunnudeginum var svo ræs klukkan hálf SJÖ..
" God morgen, klokken er half syv og vi skal staa op nu".
Yndislegt ik?



Fólkið sem við vorum að hjálpa var líka eitt það stærsta samansafn af furðulegu fólki sem ég hef á ævinni séð, öll eitthvað alveg hrikalega spes og ekki alveg eins og fólk er flest. Þau tilkynntu okkur það eftir vinnu á laugardagskvöldinu að þau færu alltaf saman NAKIN í bað, það væri svo gasalega gaman að vera öll allsber saman að drekka bjór og vildu ólm fá okkur með. Við afþökkuðum pent, sem varð til þess að enginn fór í sturtu um helgina! Geiri, einn af íslendingunum lenti í frekar skrýtinni aðstöðu þarna þegar hann fór á klósettið inni í klefanum þar sem þau voru, hann labbaði þarna inn og sá að þar sátu fullt af nöktum karlmönnum að drekka bjór, og allt í góðu, það er svo sem ekkert sem maður sér ekki í sundlaugum á Íslandi. En þegar hann kom út aftur þá stóðu 2 af stelpunum sem voru að vinna þarna, báðar frekar ómyndarlegar greyin, beint fyrir framan klósetthurðina á Evuklæðunum og biðu eftir að hann kæmi út og sæi þær, þetta var allt planað og þeim fannst þær ekkert smá fyndnar.
Frekar spes lið já.


Launin fyrir vinnuna áttu að vera annars vegar miði á tónleikana, sem er fínt, eða gjöf að verðmæti 1000 DKK. Í gærkvöldi kom svo í ljós, eftir að við höfðum unnið miklu meira en við áttum von á, að þeir sem kæmust á tónleikana fengju miða á dýrasta svæðið, inner circle, sem er náttúrulega ekkert smá gott, miði sem kostar 895 danskar krónur. En þeirsem komast hins vegar ekki á tónleikana, fengu að velja á milli þess að fá The Police PEYSU, eða þá að gefa skólanum sem við erum í 1000 danskar krónur!
Frekar skítt svo ekki sé meira sagt, og fólk skiljanlega frekar vonsvikið eftir helgina! C'est la vie..
En ég er ss að fara til Aarhus aftur næstu helgi, verður örugglega mjög gaman á þessum tónleikum og svo kannski kíkt eitthvað á næsturlífið í borginni sem er kölluð "verdens storste landsby":) Það varð eitthvað lítið úr því vegna þreytu um liðna helgi nefnilega.. Svo er ég líklegast á leiðinni til Köben helgina þar á eftir þar sem að Harpa a.k.a. Sharp er að flytja út til Sigga síns.. hlakka mikið til að hitta hana - og kannski jafnvel kíkja í nokkrar fatabúðir líka:)


Annars er bara allt fínt að frétta, skólinn er kominn á fullt skrið og ég fékk eiginlega öll þau valfög sem ég bað um, píanó, gítar og svo reyndar afródans en ekki jóga, en það er fínt líka. Þessi tími er blanda af afródansi og afrótrommum, og sá sem kennir þetta er sjálfur nemandi í skólanum, Ebenezer heitir hann og er frá Ghana í Afríku, svo að þetta er alvöru!;)
Mjög notaleg tilfinning líka eftir þessa helgi að það var gott að koma "heim". Þetta er bara orðið virkilega notalegt að vera hérna og maður farinn að líta á þetta sem heimilið sitt. Virkelig hyggeligt:)
Okkar hús er líka besta húsið, búið að setja rauð áklæði á sófana í stofunni, seríur og kertaljós, alltaf þægileg tónlist á fóninum, þetta er sko húsið sem fólk kemur inn í til að hafa það rólegt og "hygge sig". Mjög kósí!



En jæja, ég nenni ekki meir, ætla að fara að koma mér í háttinn..
Veriði nú dugleg að kommenta þið þarna svo ég viti að þið eruð að fylgjast með mér!
Hilsen í bili.. Anna

11 ummæli:

Anna Hansen sagði...

Æ þetta kemur allt í einni klessu og ég get ekki lagað! Þið verðið bara að þola það!

Nafnlaus sagði...

Sjett hvað mig langar á þessa tónleika! elskaelskaelska sting og police!! Mig langar til Danó!
Ég er veik heima:( í fyrsta skipti í áraraðir og mér leiðist!
Hafðu það gott áfram dúllan mín:D

Nafnlaus sagði...

Hæ krúsla... gott að það er svona gaman hjá þér. Ég er veik heima og get varla hreyft mig án þess að þurfa að gubba. Gaman já! Mig langar svo að koma og heimsækja þig (já heví metnaður í þessum skóla)... Haltu nú áfram að hafa það svona huggulegt, ég er samt ekki svo mikið að elska þessa dönsku æh. knús og kossar á þig vinkona. Berglind.
p.s. ghana, spurðu hvort að hann þekki ayeshu!!! ómægod ég er svo fyndin

Nafnlaus sagði...

check, er að fylgjast með.

Unknown sagði...

Já ég fylgist stöðugt með þér Anna mín.. en mer fannst þessi saga af nakta fólkinu ekki töff... frekar ógeðslegt svona.. en mér sýnist að ég geti ekki komið í heimsókn til ykkar en við förum bara saman sýnist mér seinna í heimsókn allar til Hörpu!! :) Er það ekki. ;)kossar og knús ..Sigurborg Sif

Nafnlaus sagði...

Hæjh! ertu bar smá fúl útaf helginni? En allavega flott blogg !

- Sjáumst!

Nafnlaus sagði...

kvittkvitt!! :)
ætla að fara að kíkja á myndir :)
hafðu það gott elskan! kv hjördís

Nafnlaus sagði...

Ja hérna hér!! Nöktu gellur!! En ógó góða skemmtun á tónleikunum fyrir allt erfiðið og hlakka líka rosa rosa mikið að hitta þig... bara vika og einn dagur þangað til Sharp stígur fæti í baunalandið!!!! ;-)

Nafnlaus sagði...

Þú ert nú ekki óvön timburmönnum með mikilli vinnu:) Það sem drepur mann ekki herðir mann bara:) En kíkki reglulega:)

Nafnlaus sagði...

hehehe þú ert fyndin! er að lesa bloggið hjá þér fyrst núna, ekki alveg að standa mig, en á sko eftir að kíkja reglulega eftir þetta! frábært að sjá hvað þú ert að njóta þín og allt ógó hugguelgt! hlakka til að heimsækja þig í danaveldi :)

Nafnlaus sagði...

helló honí, bara að skilja eftir handafar.
saknjú, Unnsí