mánudagur, 13. ágúst 2007

Blog nummer to

Hej allesammen:)
Er ekki kominn tími á nýja færslu, svei mér þá ég held það bara..
Ég er komin út og byrjuð í skólanum, það hafðist á endanum að dröslast með allan farangurinn í 3 strætóa og lest, mjög gaman allt saman í steikjandi hita og raka í Kaupmannahöfn:) Það er reyndar líka búið að vera rosa gott veður hér, sól og hiti, en sem betur fer ekki svona rakt eins og þar! Tók því varla að fara í sturtu þar, varð bara strax sveitt aftur hehe..
_____________________________
En skólinn er alveg lengst úti í sveit hérna á Sjálandi, er samt hálfpartinn inni í Jyderup sem er sveitaþyrping ekki ósvipuð Rauðalæk fyrir þá sem vita hvar hann er.. en hér er skógur allt í kring, fullt af trjám og bara voða gott að vera:) Reyndar allt morandi í köngulóm, maurum, sniglum, geitungum og einhverjum mjög undarlegum flugum sem ég myndi kalla drekaflugur, en heita víst "guldsmid".. ég er búin að ákveða að þær séu stórhættulegar og ætla ekkert að vera að koma of nálægt þeim:)
Svo er líka allt úti í pínkulitlum froskum sem hoppa út um allt, þeir eru voða dúllulegir..

_____________________________

En nóg af blaðri um náttúruna og dýralífið hérna, mér líst alveg ofsalega vel á allt hérna.. Ég hellti mér bara strax út í dönskuna á full swing og hef eiginlega ekkert talað ensku neitt... nema bara svona í ýtrustu neyð, og ég verð að segja að ég kom sjálfri mér nú bara nokkuð mikið á óvart í kunnáttunni! Einn strákurinn í gær var reyndar alveg viss um að ég væri norsk, hreimurinn eitthvað að klikka;) en það kemur nú allt með kalda vatninu, þarf bara að skella kartöflu í kokið á mér og þá kemur þetta hehe..
Skólinn er í nokkrum byggingum, sjálft skólastarfið fer fram í stærsta húsinu, þar er líka hálfgert kaffihús á neðstu hæðinni, svo er mötuneytið í einu húsi og svo búum við í 7 húsum, ca 10-12 manns í hverju.
Við erum 6 íslendingar hérna, 5 strákar og svo ÉG hehe.. svo er reyndar líka einn strákur hérna sem á íslenska mömmu en danskan pabba og hefur alltaf búið í Danmörku, en talar samt íslensku líka.
Ég er með danskri stelpu í herbergi sem heitir Rikke, ekta nafn til að æfa danska R-ið á:) hún er rosa hress og skemmtileg, líst bara mjög vel á hana.. við erum líka komnar í skokkhóp, fórum um 9-10 krakkar út að hlaupa í morgun svaka dugleg alveg! En það er rosa skemmtilegt stemning hérna og allir greinilega komnir hingað til að skemmta sér og lære flere mennesker at kende

_____________________________

Í gærkvöldi var bara kynning á skólanum og smá hópefli, fórum í einhverja leiki til að æfa nöfnin og svona, frekar fyndið að heyra þau reyna að bera fram nöfnin á strákunum, Geirharður, Heiðar og Páll eru allt frekar erfið nöfn fyrir danina.. svo er auðvitað Anna Hansen afskaplega flókið fyrir þau líka, alíslenskt auðvitað hehe.. en ætli það sé ekki álíka fyndið fyrir þau að heyra okkur reyna!
Svo er fyrsta vikan bara svokölluð "intro-uge", bara verið að kynna fyrir okkur hvað við erum að fara að gera og hvað við getum valið okkur sem aukafög.. í dag var okkur m.a. skipt í hópa, og í hverjum hóp voru allar gerðir af hljóðfærum, gítarar, bassi, trommur, hljómborð og svo söngvarar. Hópunum var svo plantað í nokkur herbergi þar sem kennararnir skiptust á að koma til okkar og kenna okkur, en í flestum tímunum var þetta bara "spuni", áttum bara að byrja að spila og syngja og búa til lög, mjög gaman:) Jam sessions..
Svo er það bara "intro-FEST" á föstudaginn, þá verður nú eitthvað skrallað!

_____________________________

En þetta er orðið nógu langt í bili tror jeg, bið að heilsa heim í heiðardalinn
Hej hej
Anna hin danska

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæj anna okkar!
Fínasta blogg hjá þér og jah! Sjáumst bara í kööben í desembeer!:)

- Fríða & Sara & Mamma & Pabbi!

Unknown sagði...

Gaman að fá svona dönskusletturnar inn á milli.. ;) efast ekki um að þær eigi eftir að aukast þegar líður á veturinn! en það er gott að heyra að þér líkar þetta vel, líst samt ekkert á þessa umfjöllun þína um köngulær og einhverjar skrýtnar flugur..
En vonast til að hitta þig á msn sem oftast og lesa sem mest um þig á síðunni.. kossar og knús Sigurborg hin íslenska.. ;)

Nafnlaus sagði...

hæ Anna mín ,stórskemmtilegt blogg alveg:) Versta er að maður er farin að sakna þín strax:) Mér finnst nú frekar fyndin tilhugsunin að hugsa mér allar pöddurnar í kringum pödduhræddu manneskjuna þig:)Ég dáist alveg að þér að vera gera þetta og þora að spuna og líst vel á dugnaðinn að fara hlaupa strax!

Nafnlaus sagði...

nauðsynlegt að fá pödduumfjöllun með líka :) hlakka til að lesa meira.

Nafnlaus sagði...

magnað! gamangaman að það sé svona gaman!
hafðu það ógó gott!

Anna Hansen sagði...

Já maður verður að leyfa ykkur að fylgjast með pöddu og dýralífinu þarna heima hehehe...

Það eru samt helvítis moskítóflugur hérna sem eru óþolandi og koma alltaf á kvöldin, eða krakkarnir segja að þetta séu moskítóflugur, mygger held ég að þær heiti á dönsku... ógeð..

En ég er svo varkár með skordýrin að ég er ekki með nein bit ennþá múhaha...

... sjitt hvað ég á samt eftir að vakna með 50 í fyrramálið fyrst að ég sagði þetta;)

Nafnlaus sagði...

hohoho.. gott blog!!

gaman samt að vera í svona litlum húsum! hljómar spennandi! og hey! það sem ég þekki af RIKKE-um er allt mjög gott þannig hún er bókað mjög skemmtileg! rikke mín var það sko allavegana

knús og kram

Nafnlaus sagði...

Anna litla, velkomin til DK! Hurðu, moskító???? Er þetta ekki bara mý? En nú bíð ég eftir tónsmíðum o.s.frv. og tónleikum í kjölfarið :)
Hafðu það gott og vertu dugleg að skrifa.
Fanney Sif biður að heilsa.
Vera

Anna Hansen sagði...

Ju sko eg helt lika fyrst ad tad væru ekki moskitoflugur her, buin ad spyrja nokkra um tetta og tad segja allir ad tetta seu moskito.. tær eru stærri en myflugurnar, tad eru lika svoleidis her, og tær klessa ser a mann og madur finnur tad tegar tær bita..frekar uhyggeligt allt saman!

Nafnlaus sagði...

Hellú!! Var búin að gleyma að þú ætlaðir að vera með síðu maður!! En frábært að þér líkar vel... en þetta með moskító þetta ER moskító!! Siggi og stákarnir eru búnir að vera vinna eitthvað fram eftir á kvöldin núna undanfarið og eru alltaf bitnir og sumir bólgna þvílíkt í kringum bitin very disskösting!! ;) Þannig éttu bara B-vítamín og fáðu þér moskítófælur í apó og helst bara einhvern hjúp eða eitthvað ef þú ert úti á kvöldin ;p híhíhí... en skemmtu þér bara ógó vel og vonandi hitti ég þig bara sem allra fyrst þegar ég kem!! :-D þangað til þá knús ;*

Nafnlaus sagði...

Vá mundi alltíeinu eftir að þú ætlaðir að blogga!! Frábært að allt er gott:D skemmtu þér ógó vel áfram!!
heyrumst!