mánudagur, 23. júlí 2007

Alveg að koma að þessu:)

Jæja þá er aldeilis farið að styttast í að ég skelli mér út til Danmerkur í tónlistarlýðháskóla, Den Rytmiske Hojskole...
Fer út föstudaginn 10. ágúst og verð fram að Þorláksmessu og ákvað því að fá mér svona bloggsíðu til að leyfa fólki að fylgjast með.. þoli nefnilega ekki þegar fólk treður sögum inn á sameiginleg blogg af ferðalögum og skólavist erlendis:) leyfa Nöldrinu að vera í friði hehe..
Ég ætla að reyna að vera dugleg að skrifa hér inn en þá ætlast ég líka til þess af ykkur kæru lesendur að þið kvittið fyrir komuna!! Annars nenni ég þessu sko ekki;)
En eins og áður sagði fer ég út á föstudegi, flýg til Kaupmannahafnar þar sem ég kem til með að eyða helginni hjá henni Kristínu minni og Ester, svo byrjar skólinn á sunnudeginum.
HÉRNA getið þið séð hvar skólinn er staðsettur... hann er rétt við lítinn bæ sem heitir Vig (vinstra megin við þar sem stendur Frederiksund).. ekkert rosalega langt frá kóngsins köbenhavn:)

En jæja, höfum þetta ekki lengra í bili, ef þið viljið vita meira um skólann er þetta slóðin á síðuna.. http://www.drh.dk/
-Kærlig hilsen Anna-

17 ummæli:

Nafnlaus sagði...

kúl

Nafnlaus sagði...

ég ætla að reyna að koma í heimsókn mín kæra, hverjar ætla með mér???

Nafnlaus sagði...

Ánægð með þig, gamla;) Ég verð tíður gestur á síðunni...veit ekki með í Danmörkinni!

Nafnlaus sagði...

úúú beibí ánægð með þig:) jú ég skoða þetta reglulega og reyni að smella inn góðum kommentum af og til:)
kv.
Lilja

Nafnlaus sagði...

Flott síða, ákaflega hipp og kúl yfirbragð á henni;)

Sigurborg ég er með! Spurning hvort við förum ekki bara að panta ferð!

Nafnlaus sagði...

ég væri ógó mikið til í að koma til danó....hinsvegar spurning um hvort debbinn minn sé til í það...visað klikkar nú samt ekki, múhahaha

en þetta er úber tippó hjá þér væna hæna!

Nafnlaus sagði...

neinei heyrðu ég meina úber hippó...dirty me já

Nafnlaus sagði...

Awesome gamla:D

Anna Hansen sagði...

Hahah úber tippó:)

Dörtí vúman

Ragnar Gylfason sagði...

Já nokkuð nett. Frekar kúl meira að segja, en já Sibba ég er með.. :)

Nafnlaus sagði...

Ég hef aðeins eitt að segja; í guðanna bænum vertu duglegri að blogga en ég! ;)

Þetta verður algjört ævintýri!

Nafnlaus sagði...

Ég skal sko kvitta fyrir komuna :) gott með þig að fara svona út til DK hehe :)

kv. Jóhanna Þorbjörg :Þ

Nafnlaus sagði...

Hæ mús! Hlakka til að fá þig!! :D

Nafnlaus sagði...

ég ætla til dk í heimsókn! ég lofa því, þá meina ég LOFA og ég skal sko ekki sofa yfir mig :D ehh..

Nafnlaus sagði...

Glæsileg síða Anna!
Pabbi

Nafnlaus sagði...

oh, anna þetta verður svo mikið stuð hjá þér!!
ég verð súpergóð í kommentakerfinu í allan vetur og hlakka á móti til að hafa eitthvað djúsí að lesa í leiðinlegum tímum i Háskólanum;)
hafðu það rosa gott min skat, venlig hilsen, Elín

Nafnlaus sagði...

jæja vertu nú dúleg að blogga svo ég hafi eitthvað að gera í vörken!
ég var samt á gröfu í allan gærdag, múhahaha!