þriðjudagur, 10. febrúar 2009

Blogga... hvað er nú það?

Frekar langt orðið síðan ég setti eitthvað hér inn síðast... hef ekki alveg haft mig í það..

Er að safna í massíva færslu með fullt af myndum.. luma reyndar á einu myndbandi frá lokatónleikunum ennþá, en var að horfa á það aftur og finnst það eiginlega ekki nógu gott til birtingar!! Held að ég sleppi því að setja það hérna inn svei mér þá...

Allt gott að frétta héðan frá Kaupmannahöfn... er bara byrjuð að vinna og er ennþá smá í skólanum líka..

EN

nóg um það síðar

Ástæðan fyrir þessari færslu er að ég á rosa hæfileikaríka litla systur sem heitir Fríða Hansen..
(já hún er ennþá litla systir mín þó hún sé nú búin að stækka helling, að fara að fermast í vor gellan ;)

Stelpan gerði sér lítið fyrir og var í 2. sæti á söngkeppninni í skólanum sínum með lagið Dimmar Rósir eftir Tatara... upprennandi söngdíva hér á ferð það er alveg á hreinu!

Þangað til næst - njótið vel!



4 ummæli:

Eyrun S sagði...

Jeij ANNA BLOGGAÐI!:)
Greinilegt að þið systur hafið fengið góð gen:)
Mig langar í kjólinn hennar! geðveikt flottur.

Nafnlaus sagði...

Jahá, nú má stóra systir fara að passa sig!! hahaha...
Djók, þið eruð æðislegar báðar tvær... flott hjá Fríðu!!

Kv. Erla frænka

Nafnlaus sagði...

Vá frábært, til hamingju:)

Geeeðveikur kjóll sem hún er í, greinilega smekkmanneskja eins og systir sín;)

Unknown sagði...

Anna, þú sýgur aðeins of mikið í að blogga... ekki sátt!! En ég hlakka nú samt ofsalega til að hitta þig í sumar og fá okkur dominos!! :)