Ég er ss flutt út til Danmerkur aftur, í þetta skiptið til höfuðborgarinnar sjálfrar, Kaupmannahafnar, til að læra meiri söngtækni og fleira skemmtilegt í skóla sem heitir Complete Vocal Institute.

Leigi íbúð með Telmu á Ydre Nørrebro eða i norðvestur Kaupmannahöfn, aðalinnflytjandahverfinu (enda innflytjendur sjálfar ekki satt? hehehe...)
Dálítið skemmtileg tilviljun annars fyrir þá sem ekki vissu að í sumar byrjaði strákur að nafni Arnar að vinna á Leiró hjá ma og pa þar sem ég var líka í sumar, og kom í ljós að hann var að fara í sama skóla og ég :) Hann er samt búinn að búa hérna úti í ca. 3 ár með kærastanum sínum honum Haffa, sem er hárgreiðslumaður, sem reddaði Telmu svo einmitt vinnu á Street Cut stofu hérna úti... gasalega sniðugt allt saman! :)
Ég flaug annars út 15. með dívunum sjálfum Arnari og Haffa, en Telma greyið þurfti að bíða viku lengur. Check-innið hjá okkur 3 tók annars c.a. 1 og 1/2 klukkutíma, ekki nema. Haffi byrjaði á að skella sinni tösku upp á, slétt 20 kg takk fyrir og góðan daginn, svona á að gera þetta. En við Arnar hins vegar, 100 kg samtals!!! Þannig að saman vorum við með 120 kg af farangri, geri aðrir betur!!! Náttúrulega ekki alveg í lagi... eftir smá umpökkun og blíðuhót við gelluna í Leifsstöð (lentum auðvitað á aðalfýlupúkanum á svæðinu) þurftum við að borga um 30 þús kall fyrir yfirvigtina og komumst loksins inn í fríhöfn:)
Haffi fussandi og sveiandi yfir okkur Arnari hehehe... góð saman :)

Konan í Check-inninu að reyna að koma öllum farangrinum okkar upp á færibandið
Íbúðin er bara alveg ágæt, mjög stór og fín, smá sparsl á stofuveggjunum reyndar sem er ekkert allt of fagurt, og baðherbergi sem er varla hahaha.... alveg heill fermeter að stærð eða eitthvað, sturtan tengist í vaskinn og svo til að sturta niður í klósettinu þá tosar maður í keðju sem hangir niður úr loftinu... ekta københavnskt haha :)
En við erum í óða önn að koma okkur fyrir, búið að fara 2 ferðir í Ikea og kaupa, í fyrri ferðinni var ég alein að rembast á "tag-selv" lagernum að koma 2 boxdýnum upp á vagninn sem keyrði alltaf í burtu frá mér! Ábyggilega verið frekar fyndið að fylgjast með þeim tilburðum hehe.. Svo þurfti ég að borga 2svar fyrir helv.. heimsendinguna því að ég villtist á leiðinni heim (Anna snillingur) og þeir þóttust hafa hringt í mig og bankað og eitthvað.. eitthvað fóru þau símtöl frá þeim nú fram hjá mér, en svona er þetta víst!

"DESVÆRRE" - uppáhaldsorðið hjá þessum danaelskum, svarið við öllu sem þeir nenna ekki að díla við. En nú er þetta allt að koma, stofan að taka á sig mynd, búið að kaupa eldhúsborð og 4 rauða stóla í skranbúð á Vesterbro og svona... kemur allt bara!
***
Veðrið er búið að vera fínt, allavega hlýrra en á Íslandi :) sem er svosem ekki alltaf jákvætt, eins og þegar maður er íslendingur í ENGU hjólaformi haha... alltaf kófsveitt og sexí þegar ég mæti í skólann, mmm!!! En bíðið bara, ég verð komin í toppform næst þegar þið sjáið mig!!! hehehe...
Ég að hjóla í skólann og nýi kærastinn minn hann Jörgen
Næst ætla ég að fá mér svona hjólMér líst rosa vel á skólann, rosa spennt fyrir þessari tækni sem er verið að kenna og ánægð með kennarana, þau virka rosalega vel á mig :) Við erum annars samtals 22 í skólanum, skipt í 2 hópa og ég er mjög ánægð með hópinn minn, við Arnar erum saman í hóp og hinir krakkarnir rosa hressir. Flestallir alveg geggjaðir söngvarar líka. Þetta er samt rosa nýtt fyrir mér þessi tækni, en ég er spennt að læra meira:)
Annars er ég búin að njóta þess í botn að vera hér, fyrstu helgina var djamm því það var gaypride í bænum, Rikke og Lasse bróðir hennar náttla í góðu stuði og dívurnar mínar... ég get svarið það ég fer að þekkja gay djammið í Kaupmannahöfn mikið betur en gagnkynhneigðu staðina haha.. kannski ég ætti bara að fara að koma út úr skápnum? hehehe:)
***
Svo átti Amalie úr DRH afmæli 18., hittumst nokkur og spjölluðum aðeins, á fimmtudaginn fórum við krakkarnir úr CVI svo út að borða og á Drop inn sem er tónleikastaður, þar sem er live tónlist alla daga vikunnar.. Á föstudaginn kíkti ég á tónleika í Tivoli með Stine og Emilie, á laugardaginn kom svo Telma og við kíktum í innflutningspartý hjá Fie sem var með mér í DRH... tónleikar annað kvöld með Lars úr DRH-hljómsveitinni minni og bandinu hans og Intro-fest í skólanum á föstudag... sko alveg nóg að gerast :)
Og best finnst mér hvað Köben er skemmtilega heimilisleg, þó að þetta sé stórborg miðað við Reykjavík. Ég er búin að lenda í því núna 4-5 sinnum á þessum tæpu 2 vikum að rekast á einhvern sem ég þekki hér á röltinu bara, og þá er ég ekki að tala um íslendinga í shopping spree á strikinu, finnst það nú kannski ekkert stórmerkilegt haha...
T.d. þegar ég fór og sótti Telmu út á Kastrup, settist á Starbucks með latteið mitt meðan ég beið... heyrði ég einhvern kalla á mig, þá voru það foreldrar Rikke, systir hennar og mágur, voru að fá sér einn kaffibolla áður en þau færu til Thailands í frí hehe.. mætti halda að maður væri á Íslandi ennþá bara...
Gaman að þessu:)
***
Ég get því miður ekki sett inn neinar myndir núna, myndavélasnúran mín er víst í kassa sem var sendur aftur til Íslands af einhverjum undarlegum ástæðum - desværre!! Fáum dótið okkar vonandi sem fyrst samt...
Reyni að vera dugleg að láta heyra í mér svo..
Bið að heilsa heim
Anna
14 ummæli:
veivei loksins blogg:) búin að kíkja á hverjum degi hehe.
Líst vel á Jörgen;)
Vó heitur þessi nýi kæró þarna...
Jeijj.. blogg.. jeijj.. :D það verður ótrúlega gaman að fylgjast með þér.. endilega útskýra þessa nýju tækni betur í næsta bloggi.. og já ég er sammála öldu, voða hottí gæji.. ;) lovjú
Þú ert snillingur Anna mín, það hef ég alltaf vitað:D
Ég hlakka svo vangefið þrolla mikið til að heimsækja ykkur!! get ekki beðið og get EKKI beðið eftir minni brottför sem er btw ennþá 8 dagar í !!! jesúsá jólaskónum
elska þig sykurpúði
hahha fonní bonní
er jorgen skerimadur lika?
vá hvað þetta er allt spennandi hjá þér!! hlakka til að lesa meira! hafðu það gott elskan!
Hahahahaha ég brosti út í annað og á stöku stað jafnvel út í bæði, þegar ég las yfir þetta hjá þér:D Enginn annar en þú myndir lenda í þessu...desværre;) Líst annars vel á þetta allt saman hjá þér...ég VERÐ að komast í heimsókn til e-h af ykkur!!!
Ha' det godt;)
Takk fyrir gott blogg. Nú verður fylgst rækilega með þér. Svo bíðum við bara eftir tónleikunum :)
Gangi þér vel
Vera
Desværre ANNA þú ert ynidislega seinheppin elskan ;p gaman að lesa frá þér... fékkstu lánaða tölvuna hjá írenu eða er það bara netcafé!? en ég spyr sama og unnur?!? hoho ;) hilsen og knúsiknús
hæ sæta mín...skemmtileg færsla, mun vera dugleg að kíkja hingað inná og ætla að setja link á þig...gaman að heyra hvað allt gengur vel, bið að heilsa Telmu..
ástarkv. Elín
Aaa gott að fá þig aftur á bloggið :) Mun fylgjast með hverri hreyfingu ;) Alltaf nóg að gera í BYKO sjáðu til ;) Kannast við þessa klósettlýsingu, mannstu á solbakken?? hehehe Hafðu það gott Anna mín :)
Kv. Kristín Gjé
Gaman að heyra í þér ;*
geeggjað fjör á leiró sko , ..
( þó það væri nú alveg fínt að hafa þig hérna líka sko .. )
finnst þú ættir að finna þér beeetur vaxinn gæja <3
heyrumst dúllan mín ;*
- fríða og mamma
BLOOOOOOOGGA KONA!
ég held þú þurfir að blogga!
sissy G.
Skrifa ummæli