fimmtudagur, 11. september 2008

Jæja



Verður bara stutt og laggott í þetta skiptið



Var að setja inn myndir sem þið getið skoðað

hér:

http://picasaweb.google.com/annahansen86/FyrstuDagarnirDK02#

set líka link hér til hliðar

Fullt af myndum af mér, löng sjálfsmyndasería af mér og Telmu, íbúðamyndir og fleira skemmtilegt:)



Eigum við eitthvað að ræða hvað við erum heppnar með útlit eða?? Hélt ekki!



Lofa að ég er svo alveg að fara að blogga!




Skelli samt hérna inn pistlinum sem birtist eftir mig í Sunnlenska í síðustu viku fyrir þá sem ekki voru búnir að sjá hann !



Sunnlenska 4. september 2008

"Það hlakkar í Dönum þessa dagana. Ég hjóla af stað í skólann og finn fyrir undarlegu augnaráði í minn garð. “Þessi hlýtur að vera Íslendingur” hugsar fólkið um stelpuna með plokkuðu augabrúnirnar og litaða hárið, enginn Dani myndi klippa sig svona. Fólkið pískrar, bendir á mig og hlær. Nyhedsavisen er farið á hausinn.

Innrás Íslendinga í danskt viðskiptalíf hefur farið frekar mikið í taugarnar á þeim síðustu árin, þessi litla þjóð sem eitt sinn heyrði undir danskt konungsríki hefur eytt fúlgum fjár í Danmörku undanfarin ár. Magasin du Nord, Nyhedsavisen, Illum - enginn skilur hvaðan þeir fá alla þessa peninga. Danirnir sem kaupa sér aldrei neitt nema eiga fyrir því fyrst og smyrja sér nesti í vinnuna til að eyða ekki óþarfa í hádegismat, þessir sem banka upp á hjá þér daginn eftir partý í þeim tilgangi að ná í tómu bjórflöskurnar sínar til að missa ekki “pantinn”, eru frekar ánægðir með þennan skell. Sjálf hef ég það gott svona nýflutt út, komin með þónokkrar freknur á nefið og skófar á tærnar eftir sólina sem skín við hvert tækifæri. Leigi íbúð í København Nord-Vest, steinsnar frá nýja Ungdomshúsinu. Hverfi sem er kallað Norð-VERST, vegna fjölda innflytjenda í bæjarhlutanum sem eru víst stórhættulegir. Ekki hef ég nú orðið vör við það og finnst ég bara nokkuð örugg í þessu rólega hverfi. Skellti mér í hjólatúr um daginn í góða veðrinu. Það tók aðeins lengri tíma en ég bjóst við því búið var að loka Nørrebrogade með mótorhjólum. Litla íslenska hjartað tók að slá örar í smá stund af ótta við að þarna væru að hefjast hörð mótmæli eða að þetta væru Vítisenglar sem ég hef heyrt að eigi sér samastað hérna í nágrenninu. Spurði nokkrar löggur sem stóðu og gúffuðu í sig pizzu og fékk að vita að þetta væri árviss viðburður hjá mótorhjólamönnum hér úti, hittast þarna og keyra svo saman út í Bakken til að skemmta sér. Ég andaði léttar, engin hætta á ferðum svo ég hélt leið minni áfram á sandölum í gegnum leðurklædda þvöguna.

Velti því samt fyrir mér hver kom þeim orðrómi af stað að það væri ekkert mál að hjóla í Köben. Sá hinn sami hefur greinilega ekki heyrt um mótvindinn og brekkurnar sem eru bara víst til hérna og gera manni erfitt fyrir í hitanum. Ég á líka voða erfitt með að átta mig á því þegar ég heyri “ding” fyrir aftan mig, að það þýði að ég sé fyrir. Stend oft úti á miðjum hjólastíg, fólk byrjað að dingla hjólabjöllunum til að fá mig til að færa mig en ég heyri ekkert. Annað sem ég á í vandræðum með eru vespurnar. Get ómögulega haldið kúlinu þegar ég sé þær koma fljúgandi í áttina að mér. Búin að lenda í því þónokkrum sinnum að gera mig að fífli með hóp af Dönum, horfi á þau slá vespurnar frá sér og í áttina að mér og ég dett svo aftur fyrir mig í móðursýkiskasti. Afskaplega asnalegt allt saman. Að ekki sé nú minnst á það þegar ég datt af hjólinu á leiðinni yfir götu við Nørreport-station. Stýrið losnaði og fór til hægri, hjólið sjálft til vinstri og ég í götuna. Ofsa kúl á því. Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera Sunnlendingur í Kaupmannahöfn, það er sko alveg á hreinu"



Knús í bala

Anna


11 ummæli:

unnurlilja sagði...

jes a many like!!

ég skal skella inn einni færslu í kvöld kannski! hef skemmtilega kínverjasögu í farteskinu!
lovjúamany

Nafnlaus sagði...

Hahaha.... ég sé þetta fyrir með hjólaslysið þitt!! en var þetta ekki innflutt gæðahjól frá íslandi sem þú ert á eða.... ekki sem þú fékkst gefins á miðvikudegi í danaveldi!?!? og b.t.w ég ég hélt án gríns að telma væri sest við hliðina á mér í tíma í dag.... þorði ekki að líta til hliðar, en píkaði svo örlítið og sá að svo var ekki en gellan var að tala í símann og hún var með NÁKVÆMLEGA eins rödd, á hún tvíbbasystir?? lot of luuuuuv ;)

Nafnlaus sagði...

Flottur pistill anna mín.. :)

Unknown sagði...

ótrúlega er íbúðin flott hjá ykkur, mér sýnist bara fara vel um ykkur:) Ótrúlega notaregt að sjá svona grænt gras og græn tré... hér er bara rigning, þú kannast við haustin hérna...:)

Nafnlaus sagði...

Ég HLAKKA SVO TIL AÐ KOMA Í HEIMSÓKN!!! 13 dagar sjittífokkittífokk!

BettýWettýOneFoot sagði...

sammála með hjólamennskuna!
það verður líka ennþá skemmtilegra að hjóla í grenjandi rigningu:) ég hlakka rosalega til!

Nafnlaus sagði...

skemmtilegur pistill og grein eftir þig sæta mín....missjú, kv. ELÍN

Nafnlaus sagði...

flott blogg ! ;*
haha .. svaka myndir maðuuur <3 x)

hlakka til að heyra í þér,
fríða.

Nafnlaus sagði...

haha Þú ert sætust! sé þig fyrir mér á hjólinu og skil þig vel í sambandi við vespurnar, algjörir klikkhausar finnst mér ;)
hvenar má ég koma í heimsókn??
luuuv

BettýWettýOneFoot sagði...

ég leitaði uppi bloggið þitt og ætla mér að kíkja í heimsókn til ykkar e-n daginn:) kannksi kíkjum við anna panna þegar hún kemur til dk 11. okt:) þá erum við báðar í vetrarfríi :D

Dísin sagði...

Hélt ég væri fyrir löngu búin að blogga! En ég vildi bara hrósa þér fyrir pistiilinn, hrikalega vel skrifað hjá þér :) hafðu það gott elskan!