föstudagur, 19. september 2008

Svo erfitt að finna titil á þetta alltaf hreint :)

Hæhæhæ

Þar sem ég er komin í helgarfrí ákvað ég að gefa mér smá tíma í að henda inn nýrri færslu fyrir ykkur fallega fólk!

Héðan er allt það besta að frétta og ég hef ekki enn orðið fyrir byssuskoti þrátt fyrir endalausar skotárásir og driveby hérna í nágrenninu.. ein þeirra var um hábjartan dag niðri á Nörrebrogade sem ég hjóla alltaf framhjá í skólann - meiri vitleysan... stríð milli Vítisengla og innflytjendaklíku hérna, efast nú um að þetta sé búið enn.. Löggan ætlar nú eitthvað að fara að herða öryggisgæsluna hérna, svo eru einhverjir íbúar líka búnir að hengja upp skilti á alla gljósastaurana hérna sem stendur á "Gun Free Zone".. Kreisí!!


Skólinn er annars bara æðislegur, líkar ekkert smá vel!
Kennararnir hafa svo gaman af því að kenna þetta og það skilar sér alveg, er búin að læra alveg helling af nýju dóti og hlakka til að læra meira..

Cathrine Sadolin, "guðmóðir" tækninnar ef svo má kalla, hún er búin að rannsaka allt varðandi söng og hefur farið rosa mikið í gegnum líffræðina á bakvið sönginn, það er búið að fara með myndavélar ofan í háls og skoða raddböndin og barkann og allt þetta og skoðað hvað er að gerast þegar maður syngur. Þetta gerir það svo miklu auðveldara að átta sig á tækninni og hvernig maður nær tónunum, þar sem maður sér það bara svart á hvítu hvað maður er að gera. Þegar maður syngur þennan tón fer tungan þangað, barkinn upp, strekkist á raddböndunum o.s.frv.
Allt annað en söngkennslan sem ég er vön, þegar maður átti að ná háa tóninum og var sagt að "hugsa upp og slaka á í hnjánum" og þá kæmi þetta hehe...

Spurning um að koma með smá nördapistil um það sem ég er að læra:)

_____

En öllum söng er hægt að skipta niður í 4 "mode"

Neutral, Curbing, Overdrive og Edge(hét belting áður)

Neutral er bæði með og án lofts á röddinni, og það er "non metallic"
Mjög mjúkt og ekki hægt að syngja mjög hátt í þessu modei, fyrr en komið er upp á allra hæstu nóturnar
Góðir sérhljóðar til að æfa neutral eru td. Ú og Í

Curbing er "half-metallic" og þar er komið smá "hold" á, ekki jafn opið og neutral
Góð leið til að finna curbing er að syngja á I og "UH" eins og "come" og gott að ímynda sér að maður sé smá að kvarta - getið hugsað um Britney Spears t.d. hún syngur mjög mikið í curbing.

Overdrive er "full metallic mode" og best að æfa á sérhljóðunum Ó og EI, og kjálkinn verður að mynda svokallað "bite" án þess þó að það verði of mikil spenna.
Mjög kraftmikið en bara upp að ákveðnum nótum, þá verður að skipta um mode til að halda kraftinum. Getið ímyndað ykkur þegar maður er að kalla á einhvern "HEY!" það er í overdrive:) Þetta er líka algengasta modeið til að tala í.

Svo er það Edge. Það er líka "full metallic" og mjög hávært, sker alveg í eyrun á fullum krafti! ég er td. búin að komast að því á þessum tíma að ég er mjög góð í þessu haha... til að ná þessu mode verður maður að setja mikið "twang" á röddina sem gerir að hún verður beittari, og svo kemst maður alveg upp á ótrúlegustu tóna. Aretha Franklin notar td. Edge á hæstu nótunum
(R.E.S.P.E.C.T. - find out what it means to me)

Ofan á þessi mode er svo hægt að bæta alls konar "effects" eins og vibrato, distortion(rokkhljóð), creaks(brak í röddinni) og líka hægt að leika sér með "sound color", ljósan eða dökkan og alls konar! Möguleikarnir eru endalausir hehe :)

Allir geta sungið í öllum modeum, það þarf bara að læra tæknina og koma henni inn í "the muscular memory" heheh... En samt magnað hvað þessi tækni hefur hjálpað mörgum, fullt af fólki sem hefur alveg misst röddina og farið til talsérfræðinga og alls konar og ekkert gengið, hefur fengið ótrúlegan bata eftir að hafa tileinkað sér þessa tækni!

En já þarna fenguði smá innsýn í það sem ég er að læra, ættum að sjá okkur í Techique tímunum þar sem við erum að stúdera þetta og gera hljóðin, hlusta á söngvara og greina hvaða mode þau eru að syngja í... bara nördalegt sko!! Maður er líka farinn að standa sjálfan sig að því úti á götu að greina hvaða modei fólk talar í og ef maður heyrir eitthvað lag fer maður strax að hugsa um það! haha..


Hérna er líka youtube myndband af Cathrine þar sem hún sýnir mismunandi mode og talar aðeins um tæknina - á dönsku reyndar hehe :)

_______

Námið byggist annars rosa mikið upp í kringum Masterclass tíma sem við erum í á hverjum mánudegi. Þeir virka þannig að við veljum okkur eitthvað lag til að vinna með og syngjum í tímanum, kennararnir skiptast svo á að kenna tímana og hjálpa okkur að komast í gegnum vandræðin í laginu og segja okkur hvernig við eigum að æfa þetta.. stundum er píanóleikari en stundum er líka svokallaður Digital Masterclass, þá látum við vita með viku fyrirvara hvað við ætlum að syngja og þau redda playbackinu.. gefur manni aðeins meiri vídd í lagavalið :) Eitt skiptið verður líka klassískur masterclass þar sem það er skylda að taka eitthvað klassískt lag, og enn annað skiptið verður það sem heitir "defined assignment" þar sem kennararnir ákveða lag fyrir okkur.. mjög spennandi :)


Svo er full meira, td. túlkunartímar þar sem við syngjum og förum í túlkunina á lögunum, oft er okkur líka skipt upp í "study groups" þar sem við vinnum saman og æfum tæknina.. Við erum líka í tímum sem heita "Rhythm and improvisation" þar sem við lærum um mismunandi taktskiptingar og að impróvisera á lögum og svona, einu sinni í viku er kór og svo fáum við líka kennslu í míkrafóntækni..


Bara gaman:)

Minn bekkur er svo að skipuleggja tónleika föstudaginn 3. október, verða haldnir uppi í skóla og hver syngur ca 2 lög, verðum með gítara og píanó, bara róleg og hyggelig stemning:)

_____

Svo er víst komin helgi og helgarfrí - erum að fara að hjálpa Arnari og Haffa að flytja á morgun, hugsa að við kíkjum svo eitthvað út eftir það.. ætlum annars í kvöld að fara og ná í sjónvarpið sem við erum að kaupa - fengum þetta líka fína notaða sjónvarp á 350 Dkk! Búnar að vera sjónvarpslausar OF lengi haha..
Svo er Ösp þessi elska búin að panta sér far um næstu helgi, kemur 26. og verður fram á 30 :) verður eitthvað skrallað þá..

Svo kemur Lára vinkona Telmu í heimsókn 2 vikum seinna - allt að gerast bara

Skellti inn nokkrum myndum frá síðustu helgi - getið tékkað á þeim

HÉR


Svo að lokum langar mig að sýna ykkur mjög forvitnilega síðu sem við vorum að skoða í technique um daginn þar sem er hægt að skoða vídjó af raddböndunum og hvernig þau virka


http://www.bmc.med.utoronto.ca/anatomia/intro.swf

smellið á larynx, svo á laryngoscopy og svo á normal anatomy

Dáldið magnað ekki satt!!

Hehehe...


Anna nörd kveður að sinni





Venlig hilsen from da hoood




8 ummæli:

unnurlilja sagði...

þetta finnst mér áhugavert nám kona góð.

ég vona mjög svo að þu verðir ei skotin í fótinn í danó, ég vil dansa footloose við þig um jólin. við ölli ætlum einmitt að halda ammli milli xmas og áró ef þig langar að vera með:)

knúsogkiss

Nafnlaus sagði...

Þetta var mjög áhugaverður pistill Annie! Væri alveg til í að vera í þessu með þér svei mér þá;)
Passaðu þig á þessum vetleysingjum í Köben...þetta er bara orðið of hættulegt!
knus fra Island

Nafnlaus sagði...

Hljómar mjög spennandi!!! Segi sama og hinar tvær hér á undan.... watch your back, meira liðið þarna úti!! miss jú ;)

Unknown sagði...

jeeeee, stórhættulegir þessi baunarar! En gaman að fá blogg, og eins gott að þið Telma séuð duglegar í sjálfsmyndunum... annars gæti maður gleymt því hvernig þið lítið út haha:)

Unknown sagði...

Ekkert smá snilld þessi skóli sem þú ert í Anna mín..:) En já ég segi eins og hinar.. þú verður að passa þig að verða ekki skotin svo þú getir orðið fræg söngkona.. Mamma fékk líka símhringingu frá vinkonu sinni um daginn sem var að biðja um númerið hjá þér, hún ætlaði að biðja þig um að syngja í jarðaför hjá einhverjum nákomnum henni því hún var svo hrifin af söngnum þínum í jarðaförinni hjá pabba... :) Enda varstu æðisleg þar elskan mín.. en kossar og knús og gangi þér ótrúlega vel...

Dísin sagði...

Æði að heyra hvað er gaman hjá þér! Ég ætla að reyna að nýta mér þetta sem þú varst að skrifa um sönginn :) svo kem ég bara geðveikt pró í næsta tíma hahaha! hafðu það gott elskan!

Unknown sagði...

Hmmm..... Ertu í stórhættu þarna? Hef ekki alveg verið að fylgjast með:/ En ég er miklu fróðari núna varðandi söng; ´held ég sæki bara um þarna! Eru ekki einhverjir möguleikar fyrir gamlar kellingar á besta aldri?
Gangi þér vel með tónleikana. Eg bíð eftir stórtónleikum á Íslandi og þá ætla ég að sitja á fremsta bekk og klappa og góla! Þú ert nefnilega hin bestasta söngkona:)
Knús knús
Vera

Nafnlaus sagði...

Jiiii... en spennandi nám hjá þér...
Farðu varlega sæta mín, og passaðu þig á þessum vitleysingum!! ;)