fimmtudagur, 11. september 2008

Jæja



Verður bara stutt og laggott í þetta skiptið



Var að setja inn myndir sem þið getið skoðað

hér:

http://picasaweb.google.com/annahansen86/FyrstuDagarnirDK02#

set líka link hér til hliðar

Fullt af myndum af mér, löng sjálfsmyndasería af mér og Telmu, íbúðamyndir og fleira skemmtilegt:)



Eigum við eitthvað að ræða hvað við erum heppnar með útlit eða?? Hélt ekki!



Lofa að ég er svo alveg að fara að blogga!




Skelli samt hérna inn pistlinum sem birtist eftir mig í Sunnlenska í síðustu viku fyrir þá sem ekki voru búnir að sjá hann !



Sunnlenska 4. september 2008

"Það hlakkar í Dönum þessa dagana. Ég hjóla af stað í skólann og finn fyrir undarlegu augnaráði í minn garð. “Þessi hlýtur að vera Íslendingur” hugsar fólkið um stelpuna með plokkuðu augabrúnirnar og litaða hárið, enginn Dani myndi klippa sig svona. Fólkið pískrar, bendir á mig og hlær. Nyhedsavisen er farið á hausinn.

Innrás Íslendinga í danskt viðskiptalíf hefur farið frekar mikið í taugarnar á þeim síðustu árin, þessi litla þjóð sem eitt sinn heyrði undir danskt konungsríki hefur eytt fúlgum fjár í Danmörku undanfarin ár. Magasin du Nord, Nyhedsavisen, Illum - enginn skilur hvaðan þeir fá alla þessa peninga. Danirnir sem kaupa sér aldrei neitt nema eiga fyrir því fyrst og smyrja sér nesti í vinnuna til að eyða ekki óþarfa í hádegismat, þessir sem banka upp á hjá þér daginn eftir partý í þeim tilgangi að ná í tómu bjórflöskurnar sínar til að missa ekki “pantinn”, eru frekar ánægðir með þennan skell. Sjálf hef ég það gott svona nýflutt út, komin með þónokkrar freknur á nefið og skófar á tærnar eftir sólina sem skín við hvert tækifæri. Leigi íbúð í København Nord-Vest, steinsnar frá nýja Ungdomshúsinu. Hverfi sem er kallað Norð-VERST, vegna fjölda innflytjenda í bæjarhlutanum sem eru víst stórhættulegir. Ekki hef ég nú orðið vör við það og finnst ég bara nokkuð örugg í þessu rólega hverfi. Skellti mér í hjólatúr um daginn í góða veðrinu. Það tók aðeins lengri tíma en ég bjóst við því búið var að loka Nørrebrogade með mótorhjólum. Litla íslenska hjartað tók að slá örar í smá stund af ótta við að þarna væru að hefjast hörð mótmæli eða að þetta væru Vítisenglar sem ég hef heyrt að eigi sér samastað hérna í nágrenninu. Spurði nokkrar löggur sem stóðu og gúffuðu í sig pizzu og fékk að vita að þetta væri árviss viðburður hjá mótorhjólamönnum hér úti, hittast þarna og keyra svo saman út í Bakken til að skemmta sér. Ég andaði léttar, engin hætta á ferðum svo ég hélt leið minni áfram á sandölum í gegnum leðurklædda þvöguna.

Velti því samt fyrir mér hver kom þeim orðrómi af stað að það væri ekkert mál að hjóla í Köben. Sá hinn sami hefur greinilega ekki heyrt um mótvindinn og brekkurnar sem eru bara víst til hérna og gera manni erfitt fyrir í hitanum. Ég á líka voða erfitt með að átta mig á því þegar ég heyri “ding” fyrir aftan mig, að það þýði að ég sé fyrir. Stend oft úti á miðjum hjólastíg, fólk byrjað að dingla hjólabjöllunum til að fá mig til að færa mig en ég heyri ekkert. Annað sem ég á í vandræðum með eru vespurnar. Get ómögulega haldið kúlinu þegar ég sé þær koma fljúgandi í áttina að mér. Búin að lenda í því þónokkrum sinnum að gera mig að fífli með hóp af Dönum, horfi á þau slá vespurnar frá sér og í áttina að mér og ég dett svo aftur fyrir mig í móðursýkiskasti. Afskaplega asnalegt allt saman. Að ekki sé nú minnst á það þegar ég datt af hjólinu á leiðinni yfir götu við Nørreport-station. Stýrið losnaði og fór til hægri, hjólið sjálft til vinstri og ég í götuna. Ofsa kúl á því. Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera Sunnlendingur í Kaupmannahöfn, það er sko alveg á hreinu"



Knús í bala

Anna


miðvikudagur, 27. ágúst 2008

Long time no seen :)

Er ekki kominn tími á nýja færslu ég bara spyr??


Ég er ss flutt út til Danmerkur aftur, í þetta skiptið til höfuðborgarinnar sjálfrar, Kaupmannahafnar, til að læra meiri söngtækni og fleira skemmtilegt í skóla sem heitir Complete Vocal Institute.



Leigi íbúð með Telmu á Ydre Nørrebro eða i norðvestur Kaupmannahöfn, aðalinnflytjandahverfinu (enda innflytjendur sjálfar ekki satt? hehehe...)
Dálítið skemmtileg tilviljun annars fyrir þá sem ekki vissu að í sumar byrjaði strákur að nafni Arnar að vinna á Leiró hjá ma og pa þar sem ég var líka í sumar, og kom í ljós að hann var að fara í sama skóla og ég :) Hann er samt búinn að búa hérna úti í ca. 3 ár með kærastanum sínum honum Haffa, sem er hárgreiðslumaður, sem reddaði Telmu svo einmitt vinnu á Street Cut stofu hérna úti... gasalega sniðugt allt saman! :)


Ég flaug annars út 15. með dívunum sjálfum Arnari og Haffa, en Telma greyið þurfti að bíða viku lengur. Check-innið hjá okkur 3 tók annars c.a. 1 og 1/2 klukkutíma, ekki nema. Haffi byrjaði á að skella sinni tösku upp á, slétt 20 kg takk fyrir og góðan d
aginn, svona á að gera þetta. En við Arnar hins vegar, 100 kg samtals!!! Þannig að saman vorum við með 120 kg af farangri, geri aðrir betur!!! Náttúrulega ekki alveg í lagi... eftir smá umpökkun og blíðuhót við gelluna í Leifsstöð (lentum auðvitað á aðalfýlupúkanum á svæðinu) þurftum við að borga um 30 þús kall fyrir yfirvigtina og komumst loksins inn í fríhöfn:)

Haffi fussandi og sveiandi yfir okkur Arnari hehehe... góð saman :)



Konan í Check-inninu að reyna að koma öllum farangrinum okkar upp á færibandið



Íbúðin er bara alveg ágæt, mjög stór og fín, smá sparsl á stofuveggjunum reyndar sem er ekkert allt of fagurt, og baðherbergi sem er varla hahaha.... alveg heil
l fermeter að stærð eða eitthvað, sturtan tengist í vaskinn og svo til að sturta niður í klósettinu þá tosar maður í keðju sem hangir niður úr loftinu... ekta københavnskt haha :)

En við erum í óða önn að koma okkur fyrir, búið að fara 2 ferðir í Ikea og kaupa, í fyrri ferðinni var ég alein að rembast á "tag-selv" lagernum að koma 2 boxdýnum upp á vagninn sem keyrði alltaf í burtu frá mér! Ábyggilega verið frekar fyndið að fylgjast með þeim tilburðum hehe.. Svo þurfti ég að borga 2svar fyrir helv.. heimsendinguna því að ég villtist á leiðinni heim (Anna snillingur) og þeir þóttust hafa hringt í mig og bankað og eitthvað.. eitthvað fóru þau símtöl frá þeim nú fram hjá mér, en svona er þetta víst!





"DESVÆRRE" - uppáhaldsorðið hjá þessum danaelskum, svarið við öllu sem þeir nenna ekki að díla við. En nú er þetta allt að koma, stofan að taka á sig mynd, búið að kaupa eldhúsborð og 4 rauða stóla í skranbúð á Vesterbro og svona... kemur allt bara!

***

Veðrið er búið að vera fínt, allavega hlýrra en á Íslandi :) sem er svosem ekki alltaf jákvætt, eins og þegar maður er íslendingur í ENGU hjólaformi haha... alltaf kófsveitt og sexí þegar ég mæti í skólann, mmm!!! En bíðið bara, ég verð komin í toppform næst þegar þið sjáið mig!!! hehehe...


Ég að hjóla í skólann og nýi kærastinn minn hann Jörgen


Næst ætla ég að fá mér svona hjól


Mér líst rosa vel á skólann, rosa spennt fyrir þessari tækni sem er verið að kenna og ánægð með kennarana, þau virka rosalega vel á mig :) Við erum annars samtals 22 í skólanum, skipt í 2 hópa og ég er mjög ánægð með hópinn minn, við Arnar erum saman í hóp og hinir krakkarnir rosa hressir. Flestallir alveg geggjaðir söngvarar líka. Þetta er samt rosa nýtt fyrir mér þessi tækni, en ég er spennt að læra meira:)

Annars er ég búin að njóta þess í botn að vera hér, fyrstu helgina var djamm því það var gaypride í bænum, Rikke og Lasse bróðir hennar náttla í góðu stuði og dívurnar mínar... ég get svarið það ég fer að þekkja gay djammið í Kaupmannahöfn mikið betur en gagnkynhneigðu staðina haha.. kannski ég ætti bara að fara að koma út úr skápnum? hehehe:)

***

Svo átti Amalie úr DRH afmæli 18., hittumst nokkur og spjölluðum aðeins, á fimmtudaginn fórum við krakkarnir úr CVI svo út að borða og á Drop inn sem er tónleikastaður, þar sem er live tónlist alla daga vikunnar.. Á föstudaginn kíkti ég á tónleika í Tivoli með Stine og Emilie, á laugardaginn kom svo Telma og við kíktum í innflutningspartý hjá Fie sem var með mér í DRH... tónleikar annað kvöld með Lars úr DRH-hljómsveitinni minni og bandinu hans og Intro-fest í skólanum á föstudag... sko alveg nóg að gerast :)

Og best finnst mér hvað Köben er skemmtilega heimilisleg, þó að þetta sé stórborg miðað við Reykjavík. Ég er búin að lenda í því núna 4-5 sinnum á þessum tæpu 2 vikum að rekast á einhvern sem ég þekki hér á röltinu bara, og þá er ég ekki að tala um íslendinga í shopping spree á strikinu, finnst það nú kannski ekkert stórmerkilegt haha...
T.d. þegar ég fór og sótti Telmu út á Kastrup, settist á Starbucks með latteið mitt meðan ég beið... heyrði ég einhvern kalla á mig, þá voru það foreldrar Rikke, systir hennar og mágur, voru að fá sér einn kaffibolla áður en þau færu til Thailands í frí hehe.. mætti halda að maður væri á Íslandi ennþá bara...
Gaman að þessu:)

***

Ég get því miður ekki sett inn neinar myndir núna, myndavélasnúran mín er víst í kassa sem var sendur aftur til Íslands af einhverjum undarlegum ástæðum - desværre!! Fáum dótið okkar vonandi sem fyrst samt...

Reyni að vera dugleg að láta heyra í mér svo..

Bið að heilsa heim

Anna

sunnudagur, 16. desember 2007

VIKA - og 2 ny løg:)

Sælt veri fólkid...


Tá er aldeilis farid ad styttast i heimkomu... Mæti a klakann eftir nákvæmlega viku, um midjan dag á Torláksmessu.. ótrúlegt hvad tessir mánudir hafa verid fljótir ad lída madur...

Afskaplega blendnar tilfinningar sem berjast um í manni, hlakka alveg grídarlega til ad hitta alla aftur en tad verdur líka alveg svakalega erfitt ad kvedja alla hér.. búin ad eignast alveg fullt af rosalega gódum vinum sem ég á eftir ad sakna helling.. en svona er víst lífid... madur verdur bara ad leggja sig fram vid ad halda sambandi..


Sídasta vikan verdur voda afsløppud bara... førum td a skauta a morgun.. svo verdur gert hreint í skólanum á fimmtudaginn og honum læst eftir tad... afslutningsfest inni í matsalnum á føstudagskvøldid og svo keyrt burtu um hádegi á laugardag.. ég verd svo sídustu nóttina í Køben hjá Rikke, ætlum ad fara út og borda sushi og hafa tad huggulegt.. svo keyra Rikke, Babs, Stine og Marie mig á flugvøllinn á sunnudeginum.. gott ad turfa ekki ad kvedja bestu vinkonurnar alveg strax, get frestad øllum nema Emilie tví hún býr á Bornholm.. ;)


Annars get eg ekki sagt ad madur fái mikla heimtrá vid ad lesa fréttir af brjáludu vedri, ófærdum og hústøkum sem fjúka.. hér getur madur alveg labbad milli húsa á peysunni enntá og er oftast logn! En tad eru rottur hér og voda ójólalegt audvitad.. svo tad vegur adeins upp á móti..


En í dag er ég búin ad vera uppi í stúdíói.. vorum ad taka upp sídasta lagid sem vid sømdum sjálf.. tad heitir Dancing With You og er rólegt lag sem ég samdi textann vid og smá af laginu med Lars... bara akústískur gítar og smá trommur... unplugged stemning..

Búin ad skella tví inn á speisid... og henti loksins hinu laginu inn sem vid tókum upp fyrir langaløngu.. tad er lag sem Thomas a mestallan heidurinn af, og heitir Wrong Lane Relations.. vid køllum tad samt bara "Djángadjáng".. audveldara ad segja og smá einkahúmor, eg søng alltaf gítarbyrjunina svona og vid endudum bara á ad kalla tetta tad hehe;)


Kíkidi á tetta og segid hvad ykkur finnst.. svo gaman ad fá feedback




:)


En ég ætla ekki ad hafa tetta mikid lengra í bili... á ekki von á ad eg hendi inn fleiri bloggum á tessa sídu, nema ég flytji eitthvad út aftur sem er jú aldrei ad vita..


Segi bara takk fyrir teir sem nenntu ad lesa og fylgjast med


Sjáumst á klakanum!


ANNA OH

sunnudagur, 2. desember 2007

HOLES

Allir ad kikja inn a


Erum buin ad setja inn lagid sem vid tokum upp i vikunni.. tvi midur er tad ekki eitt af okkar eigin løgum heldur Mercury Rev lag sem heitir Holes.. og er uppahaldid okkar allra... eins og eg hef sagt adur..

Elska tad... og er rosa anægd med upptøkuna.. 
eg syng raddir i fyrsta erindi og svo skiptum vid i seinna erindinu.. og vid tokum raddirnar upp tvisvar, tannig ad søngurinn er tvøfaldur.. 


Hlustid og segid endilega hvad ykkur finnst;)


mánudagur, 26. nóvember 2007

Yo

Hey long time no see..


Tølvan min er med einhverja stæla, tekur ekki straum svo eg get ekki kveikt a henni.. verdid ad tola utlensku stafina i tetta skiptid allavega..


Eg er komin heim aftur eftir tonleikaferdalagid til Fyn og tad var bara i einu ordi sagt GEDVEIKT;) Ekkert sma gaman og gekk svaka vel, fengum rosa godar mottøkur og allt sem heitir svidskrekkur er nanast alveg horfid ur minum ordaforda. Reyndar einn skoli sem vid spiludum i tar sem tad gekk ekkert allt of vel, lelegt hljod og lelegir ahorfendur... enda bara greinilega leleg stemning i skolanum og bara rumlega 20 nemendur.. frekar kaldhædnislegt ad skolinn het Båring højskole.. profid ad segja tad med enskum hreim, jaja BORING højskole hehehe....




a føstudaginn for eg svo til Køben ad hitta hana Unni mina;) hun var herna fra midvikudegi til laugardagsmorguns svo eg rett nadi ad sja hana adur en hun for heim.. gisti med henni heima hja Fridu vinkonu hennar og Ragnheidur vinkona teirra var lika tar..


Forum i Tivoli ad borda og skoda, buid ad opna jolativoliid, voda gaman.. eg og Unnur skelltum okkur svo i eitt tæki, stærsta russibanann og SHIT hvad eg var hrædd hahaha... ekki mesti spennufikill i heimi og vid erum ad tala um tad ad eg var has eftir ferdina, buin ad øskra fra mer allt vit ... og myndin sem teir toku af okkur hahaha... priceless svipur a mer, augun alveg klemmd aftur og med galopinn munn.. og Unnur bara brosandi sæl og glød vid hlidina a mer!


Svo skelltum vid okkur heim ad skipta um føt og gera okkur sætar og svo nidur i bæ tar sem eg nadi ad tyna simanum minum, Anna Hansen alltaf sami saudurinn!




Tannig ad eg er komin med nytt numer sem tid getid sed her til hlidar..var svo heppin ad Unnur var buin ad vera med gamla simann minn i lani og var akkurat med hann tannig ad eg turfti ekki ad kaupa nyjan.. sorry elskan ad eg turfti ad rifa hann af ter!




En tad er nog um ad vera to svo ad tonleikaferdalagid se buid.. i tessari viku er svokøllud after-turne vika, førum i studio og tøkum upp, klippum saman turvidjoid og fleira.. svo spila 2 og 2 hljomsveitir tonleika i cafeinu i lok dags, sem eru teknir upp og vid faum a geisladisk.. live upptaka, spennandi hvernig tad kemur til med ad hljoma;) næstu tvær vikur verda svo projekt-uger, tar sem vid høfum tækifæri a ad vinna i okkar eigin efni og fritidsbøndunum og fleira skemmtilegt;)




Vona ad vid førum svo ad koma tessu lagi inn a netid sem allra fyrst svo tid getid fengid ad heyra..




Annars er ekki nema tæpur manudur i heimkomu.. frekar blendnar tilfinningar ad hætta her og kvedja alla.. en tad verdur audvitad voda gott ad koma heim aftur lika;) kem heim a torlaksmessu og Telma min er buin ad panta ad sækja mig a flugvøllinn, heppin eg, fæ hana til ad klippa mig og gera mig fina i leidinni;) og sja nyju ibudina sem hun var ad flytja inn i gellan!

Elska annars hvad tid erud dugleg ad kommenta.. svo gaman ad sja hverjir eru ad fylgjast med.. keep up the good work!;)
Eg kved i bili.. vona ad eg geti svo sett einhverjar myndir inn fljotlega, vona ad tølvan se ekki alveg dain!


Læt samt fylgja med tessar 2 myndir sem Hans kennari tok og komu daldid tøff ut..






Later Anna ykkar Oh;)

miðvikudagur, 14. nóvember 2007

Mojn

Jæja...í fréttum er þetta helst:

Hip hop festin var æði.. enda ekki hægt annað en að fíla sig í botn dansandi í víðum buxum og strigaskóm.. þvílík sæla! Annars þótti ég alveg bera af, var spurð af ansi mörgum hvort ég hefði verið skoppari einhvern tímann.. hahaha... "Anna Hoe" kann þetta;)


Ghettoið


Babs og Stine homegirls

Anna með ofurbros en Babs eitursvöl með pósuna á hreinu




Á fimmtudaginn var það svo hvorki meira né minna en rúmlega 5 tíma lestar/rútuferð til Jótlands, Tønder nánar tiltekið, þar sem dönsku ættingjar mínir búa. Ættræknin alveg að fara með mig;) Gisti hjá Lene og Lars, en amma hennar og afi Jacob, pabbi pabba, voru systkini. Ofsalega fín helgi...vissi ekki alveg hvernig þetta yrði því að ég þekki þetta fólk nú ekki neitt, hitt þau einu sinni áður, en þetta var bara rosa gaman!

Byrjaði á að kíkja með Lene í vinnuna á fimmtudaginn en hún er kennari í litlum grunnskóla rétt fyrir utan Tønder. Fór með henni í kennslustund hjá 3. bekk þar sem þau giskuðu á hvaðan ég væri og fengu aðeins að heyra af hverju í ósköpunum ég væri þarna.. fannst líka mikið til þess koma að mamma mín og pabbi ættu hótel á íslandi og fullt fullt af hestum hehe.. ;)



Á laugardeginum fékk ég svo "the grand tour" um svæðið, Inger og Gunnar, foreldrar Lene, keyrðu með mig til Arrild, sem er bærinn sem afi var frá, sá húsið sem langamma og alnafna Anna Hansen bjó í, kirkjuna sem pabbi var skírður í, heimsótti 2 systur hans afa og fleira.. Svo fékk ég auðvitað FULLT af góðum mat alla helgina og svona.. Sé alls ekki eftir að hafa skellt mér!





Gunnar með barnabörnin



Gaman að vita hvernig þetta allt saman er þarna og kynnast fólkinu aðeins, fékk nefnilega aldrei tækifæri til að hitta afa, þar sem hann dó í bílslysi þegar pabbi var rúmlega tvítugur ..

Annars var ég búin að búa mig undir að skilja ekki neitt af því sem þau segðu þarna... Búa svo nálægt þýsku landamærunum að þau tala Suður-jósku af bestu gerð hahaha... Lene talar nú bara eins og krakkarnir í skólanum, unga fólkið er ekki með svo mikinn hreim, en eftir því sem fólkið er eldra því erfiðara er að skilja það.. átti td MJÖG erfitt með að skilja systur hans afa!

Dæmi um hvernig þau segja hlutina...

Mojn: Notað í staðinn fyrir hej og hej hej eða farvel.. heilsast/kveðjast

Dav: Dá (Dagur)

Læste: Lojste

Hvad for noget : Hvad for ná
Gøre/køre: Gu/ku

Mad:
Hed/Ved: Heyj/veyj

Dernede: Derni

Meget: Moj


Hehehe.. frekar fyndið..


Annars virðist ég vera búin að ná mér í yndislega flensu, kvef, hálsbólga og hausverkur að hrjá mig og röddin í tómu tjóni.. alveg á besta tíma eða þannig, hljómsveitaræfingar á hverju kvöldi núna því að við leggjum í hann til Fyn á mánudaginn, á tónleikaferðalag.. má samt kannski segja að það er betra að taka út veikindin núna en í næstu viku.. líta á björtu hliðarnar ekki satt!? ;)


Þetta er svaka spennandi, komin með 6 gigg á 4 dögum svo þetta verður dálítil keyrsla.. Í gær var einmitt engin kennsla í skólanum, bara "æfingatónleikar" í salnum, öll böndin spiluðu 2 lög fyrir hina og kennararnir og hinir nemendurnir komu með gagnrýni og alls konar ábendingar um hvað mætti betur gera..

Gaman frá því að segja að þau voru alveg yfir sig hrifin af okkur! Sögðu að það geislaði alveg af okkur hvað við nytum þess mikið að spila saman og náðum vel saman, röddunin hjá okkur Marie væri mjög góð og við spiluðum bara virkilega vel... og að það væri sko ekki að heyra á okkur að við værum einhver skólahljómsveit heldur bara alvöru band á tónleikum.. rosa gott að fá svona jákvæð viðbrögð, þó svo að þetta hafi ekki verið neitt sem við ekki vissum hehe;) Ótrúlega góð stemning hjá okkur, alveg klárlega besta grúppan! Á eftir að sakna þess svakalega að spila með þeim þegar ég verð komin aftur heim, það er alveg á hreinu..

Svo um helgina eru bara æfingar og generalhljóðprufur og svona..

Nýja lagið okkar, Wrong Lane Relations, er svo í "mixun" og kemur inn von bráðar.. fylgist með:)

Lítið annað sem ég get sagt ykkur akkúrat núna, bara nóg að gera eins og þið sjáið og brjálað stuð..

Íbúafjöldinn í herbergi 6.5 hefur samt hækkað örlítið.. Stine, Emilie og Babs eru nefnilega nánast fluttar inn til okkar Rikke hehe... ákváðum að halda sleepover hérna í fyrrakvöld og þær komu yfir með dýnurnar sínar, svo gistu þær aftur í gær og mér sýnist á öllu að þær verði hér í kvöld líka... så hyggeligt að gista svona margar saman.. við erum hvort sem er alltaf að spjalla saman allar langt fram á nótt þannig að það er alveg eins gott að vera bara klárar í háttinn fyrir;) Týpískar stelpur hahaha...

Höfum þetta ekki lengra í bili

Anna "Hoe" kveður með hor í nös og ráma rödd

WOOOORD

föstudagur, 2. nóvember 2007

Léleg.....

Já já ég veit ég er léleg að blogga... hef bara ekki haft mig í það undanfarið, nóg að gera og alltaf svo gaman að ég bara hef ekki nennt því satt að segja! en nú er stóra stundin loksins runnin upp.. er ekki bara best að byrja á byrjuninni:
Fyrir tveimur helgum síðan var svokölluð "hjemrejseweekend" í skólanum, fengum frí frá föstudegi til mánudags og þá kom elsku bestasta Eddan mín hingað út og við eyddum helginni með Hörpu! :)

Við borðuðum fullt af góðum mat, bæði á veitingastöðum og heima hjá Hörpu og Sigga, en þau elduðu fyrir okkur þessa dýrindis snigla í forrétt (ég smakkaði ekki, Edda gerði það samt hehe) og svo var það önd með brúnuðum kartöflum og fíneríi í aðalrétt... mmm;)

Auðvitað var verslað dálítið... ;)


Eins og glöggir menn sjá á myndinni af stelpunum hér að ofan (halva priset) þá kíktum við til Malmö á laugardeginum.. Gerðum eiginlega ekkert annað en að versla þar samt og ákváðum því að taka túristann á þetta á leiðinni aftur upp á lestarstöðina og tókum nokkrar asnalegar myndir..


Sérstök verðlaun í boði fyrir þá sem geta fundið Eddu á myndinni af styttunum fyrir ofan.


Sænskt gangbrautarskilti - exciting stuff



Komumst líka að því að lestin milli Helsingør og Köben stoppar í Louisiana... ég sem hélt að það væri í Bandaríkjunum.. svona er maður vitlaus :) En hún stoppar samt "ekki" í Klampenborg haha... einka..


Á laugardagskvöldinu kíktum við Edda svo inn í Köben og fórum út að borða.. fengum kokteila á hálfvirði og enduðum á að flýja nánast veitingastaðinn því að ítalski þjónninn vildi svo ólmur fá okkur með sér eitthvert eftir vinnu haha...



Kíktum svo í partý heim til Fríðu sem var með Unni Lilju í ML og fórum í byen með henni, og enduðum svo kvöldið á að hitta Babs og vini hennar og Helga og einhverja fleiri úr skólanum..

Æðisleg helgi í alla staði og æði að sjá hana Eddu mína aftur:)

Í síðustu viku var svo ýmislegt að ske.. fórum í leikhús á þriðjudagskvöldinu að sjá eitthvað verk um mann sem missti pabba sinn í hryðjuverkaárásunum 11. september.. hljómar kannski ekkert allt of spennó en það var fínt stykki .. fann það hvað leikhúsfíkillinn ég hef ekki farið í leikhús lengi!

Á miðvikudeginum fórum við svo einhver 30 stykki úr skólanum á Muse tónleika í Forum í Kaupmannahöfn..


Ég og Emilie fyrir utan Forum fyrir tónleikana


Harpa og Siggi voru líka á tónleikunum


Svo var aftur komin helgi og þá kom Birna elskan í heimsókn til mín upp í skóla frá föstudegi til mánudagsmorguns!

Så hyggeligt að hafa hana hérna og gaman að einhver viti hvernig þetta lítur út allt saman:)


Á föstudeginum var "Dyrefest" í húsi 3
Stelpurnar og Bajer og Matthia klæddu sig upp á sem lýs, lúsasjampó og lúsakamb haha... frekar fyndið í ljósi þess að þau voru öll með lús fyrir dálitlu síðan... Tek það fram að ég fékk ekki lús!;)


Svo á laugardagskvöldinu var "Kærlighedsfest" í húsinu mínu, númer 6.



Hentum sófunum út og skelltum dýnum á stofugólfið, seríur voru hengdar upp, kveikt á kertum og Barry White fékk að hljóma...

Mjög skrautlegt og skemmtilegt kvöld og við skulum bara segja að ástin og kærleikurinn hafi ráðið ríkjum hahaha...



Rikke og Stine rökuðu hjarta á bringuna á Andreas haha...


Birna og Anna með pósuna á hreinu as always hehe

Hrikalega skemmtileg helgi og gaman að hafa Birnu hérna.. hana langaði nú bara held ég ekkert að fara, fannst þetta æðislegur skóli;)

Á þriðjudagskvöldið var svo Lærerjam í caféinu, allir kennararnir fóru upp á svið og "djömmuðu"

Mads og Nanna söngkennarar að troða upp

Fjör...

Svo á miðvikudagskvöldið fór hljómsveitin mín í stúdíó að taka upp nýtt lag sem kemur sennilegast inn hérna eftir helgi... Vorum í stúdíóinu frá klukkan 8 um kvöldið til hálf 4 um nóttina... tekur ekkert smá langan tíma! Vægast sagt erfitt að vakna klukkan 8 til að fara í tíma, en það var þess virði, við skellum afrakstrinum inn á myspaceið okkar við fyrsta tækifæri:)


Í byrjun kvöldsins...


Í gærkvöldi voru svo tónleikar ned i caféen með The Elephants, hljómsveitinni hennar Martine, kennarans sem sér um hljómsveitaræfingarnar hjá okkur.

Hún er gítarleikari í hljómsveitinni, voru að gefa út sína fyrstu plötu í byrjun október og eru að byrja að túra í næstu viku..

Mjög flott tónlist sem þau spila, ég festi einmitt kaup á disknum í gær, áritað eintak en ekki hvað;) hehe


Alls konar hljóðfæri sem þau nota, termínu (heitir það allavega a dönsku) barnagítar og barnahljómborð .. fyndið að horfa á þau á sviði hehe..


Endilega tékkið á þeim á myspace

www.myspace.com/theelephantsdk


Í morgun fórum við svo út í einhvern grunnskóla hérna í nágrenninu að sýna afró dansana sem við erum búin að vera að læra... gekk mjög vel og krakkarnir algjörar dúllur, komu og báðu um eiginhandaráritanir á eftir hahaha... minnti mig á góða tíma í seljahverfinu þegar ég fór einhvern tímann að horfa á einhvern jójó-meistara sýna listir sínar og fékk svo eiginhandaráritun.. toppurinn á tilverunni hahaha.. það var svo gaman að vera lítill;)

Svo er það hip-hop fest hér í kvöld, 3 aðrir lýðháskólar sem koma og svo verður rap-battle á milli skóla;) svaka stuð..


En þetta er nú bara orðið hálftíma lesning, held að ég fari að hætta þessu bulli.. spurning um að láta líða aðeins styttra á milli blogga næst svo að þetta sé ekki alltaf svona hrikalega langt!?!


Ætla að enda þetta á link á kynningarmyndband um skólann sem Fie og Andreas bjuggu til og settu á YouTube.. þar er einmitt tekið viðtal við Morten úr mínu húsi og Rikke mína, herbergisfélagann minn:) getið séð hvernig hún er í raun og veru.. eða svona næstum!

http://www.youtube.com/watch?v=QLDOLQG3wE4&eurl=http://drh.dk/p/6669


Fullt af nýjum myndum komnar hér til hliðar líka..


Góða helgi elskurnar



ANNA OH