sunnudagur, 30. september 2007

Myndamanía







Um daginn fór ég í heimsókn til Hörpu minnar yfir helgi þar sem hún er nýflutt út, til Hillerød, sem er ekki langt frá Kaupmannahöfn



Við elduðum góðan mat og höfðum það huggulegt í villunni þeirra, með kærastanum hennar honum Sigga og Bjarna og Sigga sem búa með þeim



Röltum aðeins um á laugardeginum og komumst að því að það er Pakkhús í Helsingør, selfyssingunum í okkur til mikillar gleði



Kíktum aðeins út á lífið á laugardeginum, á stað inni í Helsingør sem heitir Buddy Holly


KP KP KP KP!

Danir tækla nýtilkomið reykingabann öðruvísi en við á Íslandi, í staðinn fyrir að reka fólk út með rettuna þá er búið að planta glerbúri með loftræstingu í við hliðina á barnum hehehe;)


Súlan á Buddy Holly var heitasta heitt.. bókað mál að við prófum hana næst


Svo var það Linjefagsuge í þarsíðustu viku





Héldum tónleika og fórum í stúdíó og tókum upp blandt andet



øl! øl! øl!



Vikan leið hjá og skyndilega var kominn föstudagur, sem þýddi Náttfatapartý í húsi númer 2



Úfið hár og ferskleiki í fyrirrúmi







Svo skyndilega var kominn laugardagur sem þýddi Diskópartý í húsi númer 7




Álpappír á lofti og veggjum, diskókúla og ljós, diskóföt og diskótónlist:)






FABULOUS!





Setti inn tengla á restina af myndunum hér til hliðar..


Edda mín, eins og þú sérð hef ég verið ótrúlega dugleg að láta taka myndir af mér, geri allt fyrir þig eins og þú veist:)


Annars er það helst í fréttum að ég er komin með nýtt gælunafn sem þið þurfið að læra, hér heiti ég nefnilega Anna Oh ( sagt Anna Ó).


Ástæðan fyrir því er sú að danir segja nafnið mitt ENNE en ekki ANNA, og þegar ég fór að segja krökkunum hvernig ég segi það fóru þau alltaf að syngja Boten Anna, lagið sem við dýrkum öll og dáum hehe.. Svo kunni Rikke mín ekki textann og söng alltaf "hun hetar Anna, Anna Anna Oh..." og eftir það var ekki aftur snúið haha.. En þetta er mjög jákvætt þar sem við erum 3 Önnur hér og þar á meðal önnur Anna H, svo að þetta auðveldar fólki aðeins lífið:)


Sambúðin með Rikke gengur ennþá eins og í sögu, við erum álíka ligeglad með að henda fötunum okkar á gólfið og svona svo að það er mjög þægilegt hahaha.. við erum reyndar báðar alveg jafn ömurlegar að vakna á morgnana, það er eini gallinn við þetta.. Stillum báðar símann okkar 3svar sinnum (ég er vön að gera það til öryggis ef ég skyldi slökkva óvart í fyrsta) og svo snúsum við báðar á 5 mínútna fresti í klukkutíma! Missum meira að segja stundum af morgunmatnum haha... meiri aularnir:)


Í síðustu viku átti ég svo uppvaskstjans eftir kvöldmat, en þegar ég kom inn í herbergi eftir það beið mín þessi líka fíni pakki frá henni á rúminu mínu..


Merci súkkulaði, en merci er auðvitað franskt orð yfir takk

"Fordi du er verdens bedste roommate"

GERI AÐRIR BETUR! ;)

Kíkið á myndirnar people

Anna Oh - verdens bedste roommate kveður að sinni!





laugardagur, 22. september 2007

Heromachima...

Jæja..!

Hérna hafið þið lagið okkar, það heitir The Park og við köllum okkur Heromachima, blanda af Hero Machine og Hiroshima hahaha...;) Ég syng fyrsta erindið, aðalröddina i viðlaginu og svo syngjum við Marie saman í lokin..:)

Við þurfum samt að fara aftur í stúdíó og laga það, mjög pirrandi, hljóðmaðurinn sem kom til að kenna strákunum á lydtekniklinje á stúdíóvinnuna náði að klúðra þessu, hann náði einhvern veginn að læsa upptökunni þannig að það er ekkert hægt að gera við hana, ekkert hægt að mixa lagið meira.. bakraddirnar eru td allt of háar í viðlaginu og einhver gítarmistök og eitthvað inni.. frekar pirrandi!

En já.. smellið bara á linkinn hérna fyrir neðan til að dánlóda þessu eins og maður segir á góðri íslensku:)

Endilega kommentið svo á þetta og segið mér hvað ykkur finnst:) gott eða slæmt, vil endilega fá að heyra!


THE PARK - HEROMACHIMA

þriðjudagur, 18. september 2007

Smá sýnishorn...

..af því sem ég er að gera hérna:)

Eins og ég talaði um síðast er "Linjefagsuge" núna, þannig að vikan fer öll í hljómsveitina sem okkur var plantað í, mjög gaman:) Í hádeginu í dag var mín hljómsveit með tónleika uppi í sal fyrir hina í skólanum, spiluðum 3 af lögunum okkar og það gekk bara svona alveg ágætlega.. ég reyndar eitthvað stressuð eins og vanalega, aldrei nær maður að losna við það!! Óþolandi... ;)
En allavega.. þetta er lagið sem við erum sjálf búin að semja saman, vores selvskrevede nummer eins og daninn myndi segja:) Rikke mín var svo elskuleg að taka það upp á vídjó fyrir mig í dag, reyndar ekki mikil gæði en það heyrist allavega nokkurn veginn..

Nú er það bara spurning hvað ykkur finnst??? Set link á þetta hér fyrir neðan...

Á fimmtudaginn förum við svo í stúdíó og tökum þetta upp og mixum, reyni að henda þessu inn fullkláruðu líka seinna.. en þangað til.. enjoy:)




linjefagsuge tonleikar.wmv

föstudagur, 14. september 2007

2 blogg í sömu vikunni.. má það?

Hej kære venner...
ákvað bara að henda inn einu bloggi til að láta ykkur vita að það eru loksins komnar nýjar MYNDIR:) veiveivei .. veit að Berglind mín bíður allavega spennt:) fullt fullt af myndum! skrifaði samt ekkert við þær, geri það kannski eftir helgi.
Tenglarnir eru allir hér til hliðar.. svo henti ég líka inn einhverjum myndum frá í sumar af símadjömmum, getið fundið þær inni í möppunni.

Annars langaði mig líka að deila með ykkur hvað ég er ótrúlega ánægð með sammenspilsholdið mitt, þ.e. hljómsveitina sem ég æfi með og fer á tónleikaferðalag.. Við erum komin með einhver 5-6 lög nú þegar og þar af eitt samið af okkur sjálfum ;) og það gengur bara alveg ótrúlega vel..
Uppáhaldslagið mitt, og okkar allra held ég, er gamalt Mercury Rev lag sem heitir Holes.. Mjög spes lag, en það er svo gaman að spila það og við erum búin að gera svo margt skemmtilegt við það. Martina, kennarinn okkar er t.d. búin að lána mér og Marie, sem syngur líka, tvo lítil hljómborð sem við spilum á meðan við syngjum. Það sem ég spila á er svona lítið Casio barnahljómborð eins og maður lék sér alltaf með þegar maður var lítill, og Marie spilar á Micro Korg, sem er hljómborð sem gerir alls konar skrýtin og speisuð hljóð hahaha.. svo er einn gítarleikarinn með svona mixer sem gerir gítarhljóðin hálfskrýtin og það eru alls konar óhljóð í laginu, en það kemur svo ótrúlega flott út!!
Love it.. ;)
Getið heyrt orginalinn af laginu hér :
Okkar útgáfa er sko miklu flottari, mikið betur sungið auðvitað hehe og raddað og svona..
Annars er spennandi vika framundan, næsta vika er nefnilega "linjefagsuge", en þá er hefðbundin stundaskrá brotin upp og við verðum eiginlega bara á hljómsveitaræfingum alla vikuna, svo halda allar hljómsveitirnar tónleika í salnum til að sýna hinum afraksturinn og endum svo á að taka upp eitt lag:) Svo verður líka farið í undirbúningsvinnu á tónleikaferðalaginu, þó að það sé nú samt ekki fyrr en í nóvember...
Þetta verður æðisleg vika..
Aldrei að vita hvort að ég fái einhvern til að taka smá brot af tónleikunum upp svo að þið getið fengið smjörþef af því sem ég er að gera hérna..

Annars er búið að vera jam kvöld í kvöld, niðri í caféi, þar sem maður getur leikið sér og spilað og sungið fyrir hina... mjög hyggeligt:)
Svo er það hittingur með Hörpunni á morgun veiiiii...

En ég enda þetta á mjög fyndnu myndbandi af Stine frá því í eldriborgarapartýinu...
Hluti af hennar gervi voru nefnilega lafandi brjóst hahaha...
Men nu går jeg i seng..
Ha' en god weekend,
knus og kram Anna:)

sunnudagur, 9. september 2007

Remúlaði með frönskum kartöflum.. Þessir Danir eru náttúrulega ekki alveg í lagi!

Ákvað að breyta aðeins út af vananum og skella inn sjóðheitu bloggi á sunnudegi en ekki mánudegi..


Allt frábært að frétta, tóm gleði og hamingja en vikurnar farnar að vera skuggalega fljótar að líða! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, þetta verður búið og ég á heimleið áður en ég veit af! úff...


Helgin er búin að vera alveg frábær, og voða þægilegt að vera bara hérna í skólanum og ekki að þvælast eitthvað eins og síðustu helgar..

Á föstudaginn var menningarkvöld inni í Vig, smábænum sem er hérna rétt hjá, og fórum við öll þangað uppeftir um kvöldið og einhverjir krakkar úr skólanum voru að troða upp. Eftir dagskrána var svo ball í "Forsamlingshuset" og mér leið eins og ég væri allt í einu komin inn í Djöflaeyjuna eða eitthvað, lengst aftur í fornöld því þetta var svo gamaldags og sveitó allt saman haha.. Svo til að toppa gamaldagsstemninguna var líka svona "glymskratti" á svæðinu, eins og maður kallar jukebox á góðri íslensku.
Mjög skemmtilegt allt saman.

Í gær var svo þemafest hér í skólanum sem herbergisfélaginn minn og ein önnur mjög hress stelpa skipulögðu, og var þema kvöldsins (h)eldri borgarar hahaha.. algjör snilldarhugmynd sem ég kem til með að nota einhvern tímann þegar ég held partý heima, alveg bókað!;) Og eins og með tógapartýið um daginn tóku allir þetta mjög alvarlega og ALLIR í búning.. Hugsa að það sé mjög langt síðan að Rauða Kross búðin inni í Vig hefur rakað inn eins miklum seðlum á einni viku!;) stórgræddu á þessu alveg..


En þetta var algjör snilld, mættu allir uppáklæddir í kvöldmatinn, svo um hálf átta leytið var mæting niður í Caféið og þar spiluðum við Bingó, eða Banko eins og það heitir á dönsku, eins og sönnum eldri borgurum sæmir haha... Ótrúlega skemmtilegt kvöld í alla staði:)






Tek ég mig ekki bara vel út svona með grátt í vöngum?







Sumir tóku þemað alvarlegar en aðrir, Anders tók sig til og rakaði á sig ekta gamalmennaskalla hehe



Dagurinn í dag byrjaði svo á því að við í mínu húsi áttum þann tjans að þrífa í Caféinu... yndislegt alveg hreint, allt úti í tómum flöskum og dósum, bjórslettur á gólfinu, sígarettustubbar úti um allt fyrir utan og svona.. hressandi:)




Annars er búið að vera geggjað veður í dag og sunnudagsklúbburinn búinn að afreka mikið, en í honum fær fólk tækifæri til að miðla sérstökum hæfileikum til hvors annars, til að mynda hvernig maður heldur 3 boltum á lofti í einu með höndunum, prjónar eða "skeitar" á hjólabretti. Ég lærði hins vegar að flauta svaka hátt svona með 2 putta uppi í munninum, flott það;) þarf að komast á fótboltaleik eða eitthvað fljótlega til að geta nýtt þessa nýju hæfileika hehe..



Myndir koma vonandi inn sem allra fyrst, tölvan er bara með einhvern kjaft við mig og segir að það sé ekki pláss fyrir meira á harða disknum, meira vesenið.. Ætla að reyna að kaupa tóma geisladiska á morgun til að setja þær myndir sem eru nú þegar á tölvunni á, þá rýmkar eitthvað á henni greyinu.. Þetta eru einhverjar 2-3 hundruð myndir og minnið á vélinni er orðið fullt, svo ég hendi þessu inn við fyrsta tækifæri! Þangað til verðið þið bara að láta þessar tvær duga!:)




En ég ætla að fara að koma mér aðeins út að hlaupa, hætta þessu hangsi.. svo bíður gítarinn eftir að ég æfi mig aðeins líka!



En vegna fjölda áskorana (Veru) skelli ég hér inn í lokin uppskriftinni að ostasalatinu fræga og góða..



*



Slatti af sýrðum rjóma



Kryddostar að eigin vali ( mæli með pepperoniosti og mexíkóosti, piparostur hefur líka gefið góða raun)



Paprika



Vínber



Rauðlaukur



Sýrðum rjóma slett í skál, ostar, paprika, laukur og vínber brytjuð niður í litla bita og blandað saman við, og voilá! Borið fram með kexi.. Best er svo að leyfa salatinu að standa í smátíma til að laukbragðið nái að koma fram.



*



Svo er stefnan næstu helgi að hitta á þessa hressu skvísu hér:



Kíkja kannski í Tivoli, kannski smá búðarölt og eitthvað meira gaman:) Vííííí...
En - þangað til næst

Knus og kram

-den danske pige-

mánudagur, 3. september 2007

Every step you take... and every move you make..

Já þá er víst aftur kominn mánudagur, vika frá síðustu færslu og margt búið að gerast. .
Það voru tvennir tónleikar hér í vikunni, á miðvikudaginn kom strákur að nafni Morten, gamall nemandi hérna, og hélt tónleika með Anniku vinkonu sinni. Leiðinlegt að segja það en hann var eiginlega bara hálf glataður, hún var með mjög flotta rödd reyndar en lögin þeirra beggja hálf leiðinleg bara og þau ekkert rosa klár að spila á gítar.. geta ekki allir verið frábærir, he he:)


Á föstudaginn var svo aftur á móti dönsk söngkona á besta aldri með tónleika, Lis Sørensen heitir hún og er víst voða fræg. Tónleikarnir með henni voru mjög góðir, rosa góð söngkona. Mætti líka fullt af fólki, um 150 manns og svo við krakkarnir, frekar fjölmennt bara miðað við þetta bæjarfélag held ég:) Mér leið samt pínku eins og ég væri útlendingur á Bjögga Halldórs tónleikum, þegar hún tók þekkta slagara og allir sungu með:) en skemmti mér samt að sjálfsögðu mjög vel.




Skellum inn mynd af kellunni:)



Á laugardagsmorguninn lögðum við svo af stað til århus aftur til að fara á tónleikana með The Police eins og ég talaði um í síðustu færslu (vá var búin að skrifa snakkede om í staðinn fyrir talaði um, fyndið:) )

Tónleikarnir voru mjög góðir, um 45.000 manns á svæðinu held ég og við í innsta hring:) újee


Mér reyndar finnst lögin þeirra ekkert spes, jú jú þau eru alveg mörg góð en mér finnst þau vera endalaus endurtekning, bara endalaust viðlag aftur og aftur, maður er alltaf farinn að bíða eftir að næsta lag komi.. En samt sem áður mjög gaman að sjá þá á tónleikum og rosa stemning!


Bömmer kvöldsins er samt án efa sá að þegar við komum fór ég inn á undan með Carinu, einni af stelpunum, því að hún þurfti svo nauðsynlega á klósettið, en hin ákváðu að bíða fyrir utan eftir nokkrum sem voru ekki komin enn.. haldiði ekki að þá hafi fréttirnar á stöð 2 komið og tekið viðtal við krakkana, og langaði virkilega að tala við Íslending, en neinei, kjáninn ég var nýfarin inn! Ég sem hefði pottþétt komið í fréttunum, ég meina hver vill ekki taka viðtal við íslensku gelluna sem setti upp grindverkin og sölubásana á tónleikasvæðinu ég bara spyr? Þar fóru mínar 15 sekúndur af frægð, hehe:)

En til allrar hamingju var hann Magni okkar allra á svæðinu svo að þetta bjargaðist.. gott að við getum skipst á að halda fréttavaktina hérna úti, múhaha..






Kom svo reyndar ekkert viðtal við krakkana, því miður, en ef vel er að gáð má sjá 2 stelpur í gúddí fílíng að dansa, önnur þeirra er í hvítri og blárri regnkápu.. Það eru Stine og Emilie! Gaman að því...


Eftir tónleikana kíktum við svo aðeins í bæinn í århus, það var einhver festival vika þar svo það var troðið af fólki og ekkert neitt spes fjör.. svo fengum við fría gistingu, Mikkel er þaðan og það vildi svo heppilega til að vinur hans sem er að leigja hús þarna var ekki heima um helgina svo við fengum að gista þar.. nóg pláss, jafnvel þó að við værum 15 krakkar.. Mjöög ljúft..



Annars er allt gott að frétta bara, ég var að fá þær skemmtilegu fréttir að hún Edda mín er búin að panta ferð út 18. október!! Hlakka ekkert lítið til að hitta hana, farin að sakna hennar ansi mikið:) vívíví.... Svo verða víst líka komnir hvolpar þegar ég kem heim aftur, Lukka litla hvolpafull:) gaman gaman
Mig er líka farið að dreyma á dönsku, mjög skondið.. maður er svo klár sko;)
Takk annars fyrir öll kommentin, ánægð með ykkur.. það er SVO gaman að fá smá kveðjur þegar maður er svona í úglöndum..

En ég held að ég hafi bara ekkert meira að segja í bili, bara stay in school og keep on being cool my friends..
Set svo inn myndir innan skamms!



Yours truly Annsen

mánudagur, 27. ágúst 2007

Titill

Hola todos..
Anna hin danska er mætt til leiks á mánudagskvöldi eftir frekar strembna helgi. Margt búið að gerast síðan ég skrifaði hér inn síðast.. Á föstudaginn bauð hús númer 2 í Togafest, og mér til mikillar undrunar sem íslendingi mættu ALLIR - og þá meina ég allir í búning, með lak vafið um sig hehe.. Mér fannst þetta mjög svo merkilegt því að þegar íslendingar eru með þemapartý er oftast ekki nema um 25%, ef það er þá svo há prósenta, af fólkinu sem mætir í búning. En þetta var mjög gaman og við enduðum inni í "hyggehuset", húsinu okkar, þar sem ég gerði grillaði samlokur ofan í gesti og gangandi.
Mjög skemmtilegt allt saman!


Eftir um 3 tíma svefn var svo ræs end sjæn til að missa ekki af rútu sem átti að flytja okkur í ferjuna til Aarhus, þar sem ég er búin að vera um helgina ásamt 24 öðrum úr skólanum að undirbúa tónleikasvæði fyrir næstu helgi. The Police, Sting og co. eru nefnilega með comeback tónleika næsta laugardag á Vestereng í Aarhus, svæði sem rúmar um 55 þúsund manns og það vantaði sárlega mannskap til að gera allt klárt. Þetta hljómaði allt mjög spennandi, skólastjórinn lét þetta hljóma eins og þetta væri smá vinna á laugardeginum, ekkert rosa mikið og við myndum fá vel borgað fyrir. En annað kom á daginn, og þreytta togaklædda liðið frá Den Rytmiske Hojskole endaði á að vera úti að vinna í 9-10 tíma á laugardeginum og 8 tíma á sunnudeginum í alls konar veðri, meðal annars við að girða allt svæðið af, ekkert smá svæði, bolta saman risastór járnskilti, setja upp pall fyrir fatlaða tónleikagesti, setja upp söluborð í tjöldum, ljós og rafmagn inn í tjöldin, setja upp innganginn og fleira og fleira skemmtilegt. Um kvöldið var upphaflega planið að kíkja eitthvað í miðbæ aarhus, en orkan var bara ekki svo mikil, en við sátum samt eitthvað frameftir með að drekka bjór og svona, bara róleg og góð stemning.. En á sunnudeginum var svo ræs klukkan hálf SJÖ..
" God morgen, klokken er half syv og vi skal staa op nu".
Yndislegt ik?



Fólkið sem við vorum að hjálpa var líka eitt það stærsta samansafn af furðulegu fólki sem ég hef á ævinni séð, öll eitthvað alveg hrikalega spes og ekki alveg eins og fólk er flest. Þau tilkynntu okkur það eftir vinnu á laugardagskvöldinu að þau færu alltaf saman NAKIN í bað, það væri svo gasalega gaman að vera öll allsber saman að drekka bjór og vildu ólm fá okkur með. Við afþökkuðum pent, sem varð til þess að enginn fór í sturtu um helgina! Geiri, einn af íslendingunum lenti í frekar skrýtinni aðstöðu þarna þegar hann fór á klósettið inni í klefanum þar sem þau voru, hann labbaði þarna inn og sá að þar sátu fullt af nöktum karlmönnum að drekka bjór, og allt í góðu, það er svo sem ekkert sem maður sér ekki í sundlaugum á Íslandi. En þegar hann kom út aftur þá stóðu 2 af stelpunum sem voru að vinna þarna, báðar frekar ómyndarlegar greyin, beint fyrir framan klósetthurðina á Evuklæðunum og biðu eftir að hann kæmi út og sæi þær, þetta var allt planað og þeim fannst þær ekkert smá fyndnar.
Frekar spes lið já.


Launin fyrir vinnuna áttu að vera annars vegar miði á tónleikana, sem er fínt, eða gjöf að verðmæti 1000 DKK. Í gærkvöldi kom svo í ljós, eftir að við höfðum unnið miklu meira en við áttum von á, að þeir sem kæmust á tónleikana fengju miða á dýrasta svæðið, inner circle, sem er náttúrulega ekkert smá gott, miði sem kostar 895 danskar krónur. En þeirsem komast hins vegar ekki á tónleikana, fengu að velja á milli þess að fá The Police PEYSU, eða þá að gefa skólanum sem við erum í 1000 danskar krónur!
Frekar skítt svo ekki sé meira sagt, og fólk skiljanlega frekar vonsvikið eftir helgina! C'est la vie..
En ég er ss að fara til Aarhus aftur næstu helgi, verður örugglega mjög gaman á þessum tónleikum og svo kannski kíkt eitthvað á næsturlífið í borginni sem er kölluð "verdens storste landsby":) Það varð eitthvað lítið úr því vegna þreytu um liðna helgi nefnilega.. Svo er ég líklegast á leiðinni til Köben helgina þar á eftir þar sem að Harpa a.k.a. Sharp er að flytja út til Sigga síns.. hlakka mikið til að hitta hana - og kannski jafnvel kíkja í nokkrar fatabúðir líka:)


Annars er bara allt fínt að frétta, skólinn er kominn á fullt skrið og ég fékk eiginlega öll þau valfög sem ég bað um, píanó, gítar og svo reyndar afródans en ekki jóga, en það er fínt líka. Þessi tími er blanda af afródansi og afrótrommum, og sá sem kennir þetta er sjálfur nemandi í skólanum, Ebenezer heitir hann og er frá Ghana í Afríku, svo að þetta er alvöru!;)
Mjög notaleg tilfinning líka eftir þessa helgi að það var gott að koma "heim". Þetta er bara orðið virkilega notalegt að vera hérna og maður farinn að líta á þetta sem heimilið sitt. Virkelig hyggeligt:)
Okkar hús er líka besta húsið, búið að setja rauð áklæði á sófana í stofunni, seríur og kertaljós, alltaf þægileg tónlist á fóninum, þetta er sko húsið sem fólk kemur inn í til að hafa það rólegt og "hygge sig". Mjög kósí!



En jæja, ég nenni ekki meir, ætla að fara að koma mér í háttinn..
Veriði nú dugleg að kommenta þið þarna svo ég viti að þið eruð að fylgjast með mér!
Hilsen í bili.. Anna